Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
2-3 svefnherbergi
2 baðherbergi
Flott hönnun, vandaður frágangur
Frábært útsýni
Geymsla og stæði í bílakjallara
Hægt að velja um tilbúnar íbúðir
eða íbúðir í byggingu
Alg jör paradís fyrir golfara
Verð frá 34.900.000 Ikr.
(246.000 evrur, gengi 1evra/142 Ikr)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
GLÆSILEGAR LÚXUSÍBÚÐIR
Las Colinas
margverðlaunað sem eitt besta golfsvæðið á Spáni
AF MYNDLIST
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það var sólbjartur og heitur laugar-
dagsmorgunn í Feneyjum og löng
röð fólks hafði myndast í frekar fá-
förnum hluta borgarinnar; hún lá frá
hellulögðu torgi, í skugganum með-
fram nokkrum húsum og að inngang-
inum að fyrrverandi athafnasvæði
ítalska sjóhersins. Af og til kom fólk
þaðan út með ánægjusvip, einhverjir
sperrtu þumalfingur ánægjulega
framan í þá sem enn biðu og dásöm-
uðu það sem þau höfðu upplifað. Eftir
tæpa tvo tíma komumst við loks inn
og fylltum það tæpa hundrað gesta
sem á hverjum tíma er leyft að ganga
upp á svalirnar í yfirgefinni skemmu
og horfa niður á sandi borið gólfið
fyrir neðan, á umtöluðustu sýningu
Feneyjatvíæringsins að þessu sinni, í
þjóðarskála Litháen. Þetta er óperu-
gjörningurinn Sun & Sea (Marina)
eftir listakonurnar Rugilë Barzdiu-
kaitë, Vaiva Grainytë og Lina Lape-
lytë, verkið sem hreppti hið eftirsótta
Gullna ljón fyrir besta skálann. Verð-
laun sem sumir gagnrýnendur höfðu
nánast viljað afhenda hinni frönsku
Laure Prouvost eftir blaða-
mannadagana áður en tvíæringurinn
var formlega opnaður, enda sýning
hennar í franska skálanum einnig af-
ar vel lukkuð, rétt eins og framlag
Martins Puryear í þeim bandaríska,
svo getið sé tveggja þeirra umtöl-
uðustu og athyglisverðustu.
En óperugjörningur Litháanna sló
í gegn, verðskuldað. Gestir horfa nið-
ur á um þriðja tug söngvara á svið-
settri baðströnd; fólkið les eða grípur
í spil í sterkri birtu á gulum fjöru-
sandi, spilar badminton, fiktar í
snjallsímum, smáhundar gjamma og
einhverjir spjalla eða blunda. Á sama
tíma hljómar rafræn mínimalísk óp-
erutónlist, um klukkustundarlangt
verk, þar sem einsöngvarar í hópi
strandgestanna segja sögur af lífi
sínu og tilveru og er brotið upp með
kór á milli. Umfjöllunarefni verksins
er tímabært, hnattræn hlýnun og
áhrifin sem hún hefur á jörðina og líf-
ið á henni. Og verkið er afar áhrifa-
ríkt og vel lukkað, hvernig sem á er
litið. Hér hefur tekist vel að finna
skála úti í borginni sem hentar verk-
inu, flytjendur eru góðir og tónlistin
og textinn að sama skapi – uppi á
svölunum eru textablöð svo gestir
geta fylgst með flutningum sem er
viðstöðulaus, frá tíu á morgnana til
sex síðdegis, á laugardögum og mið-
vikudögum. Þetta er því úthalds-
gjörningur „í anda Ragga Kjartans“
eins og sumir íslenskir gestir hafa
haft á orði.
Greint var frá því í fréttum að að-
standendum skálans hefði ekki geng-
ið vel að safna fé til að halda sýn-
ingum áfram eftir opnunarvikuna og
höfðu þá þegar þurft að treysta á
hópfjármögnum á samfélagsmiðlum.
En verðlaunin tryggðu rekstrarfé og
nú geta gestir því mætt í skála Lithá-
en tvo daga í viku að sjá óperuna;
hina dagana er skálinn opinn en
mannlaus, óperan hljómar í hátöl-
urum.
Margbrotin upplifun
Það er einstaklega góð og upp-
byggileg skemmtun að heimsækja
Feneyjar þau sumur þegar myndlist-
artvíæringurinn stendur yfir, og mik-
ilvægt að gefa sér góðan tíma til að
skoða sýningar. Skapandi samtíma-
listamenn fjalla ætíð á einhvern hátt
um eða bregðast við samtímanum og
lífinu með öllum þess hræringum, og
það er forvitnilegt að sjá og upplifa
verkin sem verða þá til. Verkin sem
eru svo furðulega fjölbreytileg, hvort
sem litið er til forma, efnistaka eða
innihalds. Og þessi forna og sökkv-
andi síkjaborg, Feneyjar, skapar ein-
staka umgjörð fyrir myndlistina.
Skipta má myndlistarupplifuninni í
Feneyjum á árum tvíæringsins í
tvennt. Annars vegar tvíæringinn
sjálfan, sem samanstendur af svokall-
aðri aðalsýningu sem er sett saman
af sýningarstjóra og teygir sig yfir
hinn svokallaða ítalska skála í garð-
inum Giardini og Arsenale, sem eru
fyrrverandi húsakynni skipasmíða-
stöðvar feneyska flotans, og svokall-
aða þjóðarskála. Hluti þeirra er í Gi-
ardini og við Arsenale en um
helmingur þeirra er á víð og dreif út
um borgina, á hinum ýmsu eyjum: í
fyrrverandi kirkjum, vöruhúsum,
verslunarhúsum, skúrum og skemm-
um. Að þessu sinni eru þjóðarskál-
arnir 89 talsins en Feneyja-
tvíæringurinn mun vera eina
myndlistaruppákoman þar sem lista-
menn eru valdir til að koma fram sem
fulltrúar þjóðar sinnar, nánast eins
og íþróttamenn á Ólympíuleikum.
Fyrir utan tvíæringinn eru síðan
allrahanda aðrar myndlistarsýningar
í borginni og sumar með frábærum
listamönnum fyrri alda rétt eins og
samtímans. Þær eru sumar í form-
legum söfnum en aðrar settar upp í
aflögðum eða virkum kirkjum, inni á
heimilum og hefðarsetrum, í gall-
eríium og tilfallandi húsakynnum.
Framboðið er svo mikið að það veitir
ekki af fimm til sjö dögum til að skoða
sýningar; dögum þar sem mikilvægt
er að gæta þess að fara ekki of hratt
yfir og njóta á milli sýninga hvíldar,
matar og drykkjar. Og nóg er af slík-
um lystisemdum í þessari heillandi
borg. En hér læt ég nægja að nefna
það helsta á tvíæringnum sjálfum en
meðal athyglisverðra sýninga í borg-
inni má sem dæmi nefna teikningar
eftir Leonardo da Vinci, yfirlitssýn-
ingar á verkum Baselitz, Letiziu Ba-
taglia, Helen Frankenthaler, Jannis
Kounellis og Luc Tuymans, innsetn-
ingu Joan Jonas og áhrifamikla sýn-
ingu Seans Scully í kirkju og klaustri.
Verk um áhugaverða tíma
Hinn bandaríski Ralph Rugoff,
forstöðumaður Hayward Gallery í
London, var skipaður alráður sýn-
ingarstjóri aðalsýningar tvíærings-
ins að þessu sinni, hins 58. í röðinni.
Og eftir að hafa unnið undanfarin
misseri ásamt aðstoðarfólki að val-
inu, og með njósnara út um hin ýmsu
lönd, kynnti hann þemað og sýn-
inguna sem hann kallar Megir þú lifa
á áhugaverðum tímum. Rugoff valdi
verk eftir 79 listamenn, æði alþjóð-
legan hóp. Og þótt það virðist eðllegt
þá var það engu að síður nýjung að
hann valdi einungis verk eftir lifandi
listamenn. Fyrrverandi sýn-
ingastjórar hafa oft stutt val sitt með
verkum eftir látna meistara.
Og annað sem heyrir til nýjunga
er að verk eftir nær alla listamenn-
ina má bæði sjá í hinum víðáttumiklu
sölum Arsenale, þar sem þau fá gott
pláss, og í minni sölum ítalska skál-
ans í Giardini, þar sem hver og einn á
færri eða minni verk sem blandast
meira saman en á hinum staðnum.
Sumir sýningarstjórar fyrri ára
hafa keyrt á eitt meginþema í aðal-
sýningunni, með misgóðum árangri.
Rogoff ákvað hins vegar að hafa ekki
eitt meginstef, annað en að vekta at-
hygli á því að tímarnir séu „áhuga-
verðir“ og getum við túlkað það orð
hvert með okkar hætti, í ljósi verk-
anna á sýningunni. Hann segir
listina ekki vinna á sviði stjórnmál-
anna en í verkum sínum bregðist
margir listamenn hins vegar við
ástandi heims- og þjóðmála, og þar á
meðal við allrahanda ógn sem þeim
sýnist beinast að stofnunum og gild-
um. Listin geti ekki stöðvað ris þjóð-
ernisafla í hinum ýmsu deildum jarð-
ar eða bætt ömurleg örlög
flóttamanna víða um lönd. En á sýn-
ingunni kunni gestir að sjá, segir Ru-
goff, hvernig ólíkir listamenn skapi
Myndlistarkeppni þjóðanna
Litháar hrepptu verðskuldað verðlaun fyrir besta þjóðarskálann í Feneyjum Áhrifamikil
aðalsýning með verkum 79 samtímalistamanna Innsetning Hrafnhildar í íslenska skálanum góð
Morgunblaðið/Einar Falur
Í Arsenale Hluti af ljósmyndaröð Sohams Gupta, sem fjallar um fólk á jaðri indversks samfélags, og tvær hinna
flennistóru sjálfsmynda hinnar suðurafrísku Zanele Muholi sem blasa við í mörgum sölum aðalsýningarinnar.
Vefur Kóngulær spunnu upplýst
verk Tomásar Saraceno í Berlín.
Dauðafley „Barca Nostra“, ómerkt en umtalað verk Christophs Büchel
stendur á bryggjukanti við Arsenale. 700 til 1.100 manns fórust með skipinu.