Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019 ✝ Karl Magn-ússon, fæddist í Reykjavík 19. októ- ber 1945. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 10. júní 2019. Foreldrar hans voru Bertha Karls- dóttir, f. 16. maí 1921, d. 5. sept- ember 2000, og Magnús Jóhann- esson, f. 9. desem- ber 1920, d. 1. október 1983. Systkini Karls eru Markús Örn Antonsson, f. 25. maí 1943, Guð- rún Magnúsdóttir, f. 23. október 1947, d. 28. september 2010, Magnús Hrafn Magnússon, f. 4. maí 1950, d. 12. nóvember 1989, og Erla Kristín Magnúsdóttir, f. 30. ágúst 1956. Þann 26. desember 1971 gekk Karl að eiga Vigdísi Auði Guð- mundsdóttur, sjúkraliða, f. 27. maí 1949. Hún var dóttir hjónanna Guðmundar Bjarna Jó- Hlíðdal, Gunnar Hlíðdal og Eydís Hlíðdal. Fyrir átti Inga Rós syn- ina Sigurð Karl og Hlyn Inga Óskarssyni. Karl ólst upp í Reykjavík og bjó þar fram á fullorðinsár en síð- ustu ár var hann búsettur í Hveragerði. Karl lauk gagn- fræðaprófi frá Flensborgarskól- anum í Hafnarfirði. Eftir að námi lauk vann hann ýmsa verka- mannavinnu og á sumrin sinnti hann sveitastörfum á Ásbjarn- arstöðum á Vatnsnesi. Hann hóf störf í lögreglunni í Reykjavík 1. nóvember 1970 og árið 1973 lauk hann námi frá Lögregluskóla rík- isins. Árið 1976 var hann skip- aður aðstoðarvarðstjóri og nokkrum árum síðar skipaður að- alvarðstjóri. Hann tók til starfa í umferðardeild lögreglunnar árið 1987 og kláraði þar sína starfs- ævi með sóma. Innan umferðar- deildar átti hann mjög farsælan, fjölbreyttan og góðan starfsferil sem hann ávallt sinnti af dugnaði og alúð. Karl var lengi vel í stjórn SPOEX, samtaka psoriasis- og exemsjúklinga á Íslandi Útför Karls fór fram í kyrrþey 19. júní 2019 að ósk hins látna. hannessonar, f. 30. maí 1895, d. 10. sept- ember 1983, og Þorbjargar Valdi- marsdóttur, f. 13. júlí 1916, d. 25. júní 1985, frá Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi. Börn þeirra eru: 1) .Guðmundur Bjarni Karlsson, rafvirki, f. 9. ágúst 1971, kvænt- ur Elísabetu Hrönn Gísladóttur, hár- greiðslukonu. Börn þeirra eru Svandís Hekla og Gísli Ernir. 2). Bertha Karlsdóttir, garðyrkju- fræðingur og grunnskólakennari, f. 8. nóvember 1972, börn með fyrrverandi sambýlismanni, Valdimar Antonssyni, Þorbjörg og Anton. Fyrir átti Bertha dótt- urina Heiðrúnu Ingu Þrast- ardóttur. 3). Inga Rós Karlsdóttir, skrúðgarðyrkjufræðingur, f. 24. júlí 1979, sambýlismaður Gunnar Hlíðdal Gunnarsson, grunnskóla- kennari. Börn þeirra eru Kristján Mánudagurinn annar í hvíta- sunnu byrjaði ekki eins og aðrir dagar í mínu lífi. Vakna við sím- ann þar sem Inga Rós litla systir færir mér þær fréttir að þú, pabbi minn, hafir verið fluttur inn á Borgarspítala og sért mikið veik- ur. Ég og Elsa förum með hraði niður í Fossvog og hittum mömmu og systurnar, fáum þær rosalegu fréttir, að þú hafir verið með lífshættulegt ástand á ósæð sem gaf sig! Þú fluttur með hraði í stóra skurðaðgerð. Við biðum frétta í Karfavoginum, sem þér þótti svo vænt um. Í ljósi þess hversu mikið og hættulega veikur þú varst tek- ur svona aðgerð margar klukku- stundir. Eftir nokkrar klukku- stundir þar sem við, fólkið þitt sátum í sólinni og borðuðum, þá kom símtal og við öll niður á Borg- arspítala þar sem þau stingandi orð komu sem reyndust rothögg þann daginn: „Hann Karl lifði ekki aðgerðina af. Hann Karl er látinn.“ Eftir svona kjarnorkubyrjun á degi, að pabbi sé dáinn, kastast þau orð veggja á milli í höfðinu en einungis sem orð. Ég óttast að fullur skilningur og áhrif þess skarðs eða þess tóms sem þú skil- ur eftir muni taka tíma að koma fram. Þegar ég, mamma og systurnar hittumst í „Hveró“ eins og þú sagðir svo oft, fara strax alls kon- ar minningar að þjóta um hugann. Það er skrýtið að dvelja þessa dagana hér í Hveró að undirbúa þig fyrir hinstu hvílu og útför. Við skoðun á öllum ljósmynd- unum við undirbúninginn þýtur maður ósjálfrátt í gegnum eigin æviminningar sem ég á um okkur, þig og alla hina í öllum þessum ferðum um allt land. Sem strákur man ég eftir litlum bensínflugvél- um sem við flugum í Laugardaln- um og skellinöðrutímabili, svo bílar og mótorhjól, sem var mjög slæmt tímabil þar sem helstu áhyggjurnar þá dagana voru að vera á undan þér heim úr vinnu, þar sem við hættum á sama tíma, til að ná hjólinu. Ef ég tapaði þeirri keppni, var fjandans hjólið horfið! Þú bara farinn á hjólinu og ég alveg brjálaður! Ég get haldið endalaust áfram. Síðust árin hafa verið þægileg og eftirminnileg sér í lagi þessar stuttu óvæntu heimsóknir seinni part dags þar sem ég, Gísli Ernir og þú ásamt Nóa gamla, sem alltaf vildi vera í fanginu þínu, ræddum heima og geima, svo þessi siður að birtast óvænt með litlar gjafir handa öllum var frábær. Elsku pabbi minn, ég þakka Guði fyrir að hafa keyrt þig heim eftir skírnina á litlu Dísu viku fyrr þar sem við Elsa og Svandís Hekla stoppuðum í Breiðumörk- inni og áttum öll fjögur rosalega þægilega stund heima hjá þér og í lokin tók ég utan um þig og kyssti á kinnina, grunlaus um að það yrði í síðasta sinn. Nú þegar þú ert farinn og þessi þraut að kveðja þig, góði kall, hef- ur verið erfið og þung en á end- anum verður þetta síðasta verk- færið frá þér til mín í þá tösku verkfæra og góðu ráða sem þú hefur gefið mér og ég notað í gegnum lífið, hvort sem það voru ráð við mótorhjólaakstur eða gjörðir ykkar mömmu fyrir mig, Elsu og börnin. Fullt af fyrir- myndum sem ég hef notað og mun síðar nota fyrir börnin mín á alls- konar tímamótum í þeirra lífi. Hvíldu þig nú, pabbi minn, núna ættir þú að vera frjáls og laus við fjandans sjúkdóma sem gerðu þér erfitt fyrir og ollu þér þreytu í gegnum árin. Núna ertu laus og þarft ekki að hafa áhyggj- ur af fólkinu þínu sem er allt tilbú- ið og útskrifað áfram í lífið með þau verkfæri sem þú skildir eftir. Ég kveð þig með þeim orðum sem ég skil betur með aldrinum. Faðirinn lifir lífinu í gegnum augu sonarins og sonurinn lifir líf- inu í gegnum augu föðurins. Takk fyrir allt. Guðmundur Bjarni Karlsson. Elsku pabbi minn. Þá er komið að kveðjustund. Hjartað mitt er brostið af sorg og söknuði en ég mun ylja mér við blíðar og bjartar minningar ásamt góðum stundum sem við höfum átt saman á lífsleiðinni. Það er margt sem reikar um hugann á þessum tímamótum og er hjarta mitt fullt af þakklæti fyrir allt það sem þú hefur kennt og gefið mér. Þú varst lögga af Guðs náð, fyrst í vegaeftirlitinu, síðan að- stoðarvarðstjóri, nokkrum árum seinna varðstjóri og síðast aðal- varðstjóri. Þú hafðir mikinn áhuga á starfi þínu sem gerði þér kleift að gera það sem þér þótti skemmtilegast, að ferðast óhindr- að um landið. Enda varstu mjög fróður og vel að þér í landafræði og þekktir hvern krók og kima á Íslandi. Ég man eftir því, þegar þú keyptir talstöðvar fyrir okkur börnin fyrir eina ferðina okkar saman um landið. Þá var ein tal- stöð í hverjum bíl og við alltaf að spyrja þig um heiti á hinu og þessu tengd landinu. Takk, pabbi, fyrir að kenna mér að keyra bíl, þú varst og verð- ur ávallt færasti og traustasti öku- maður sem ég hef þekkt enda undir þú þér alltaf best á bak við stýrið. Þú skapaðir þér gott orðspor sem bifhjólalögreglumaður og sem menntaður ökukennari tókstu að þér að kenna lögreglu- nemum á bifhjól ásamt því að vera oftar en ekki fremstur í flokki fylgdarmanna þegar þjóðhöfð- ingjar komu til landsins.Þú hafðir sterkar skoðanir á mótorhjólateg- undum, enda fór það ekki fram hjá neinum sem þekktu þig að allt annað en Harley Davidson, flokk- aðir þú sem rusl. Þú varst mikill bíladellukall og handlaginn við vélar, Volvo og amerísk tryllitæki voru í uppá- haldi. Ég bý að því í dag enda kenndir þú mér að skipta um dekk, mæla olíu og passa upp á að bíllinn sé alltaf í toppstandi. Þú varst stoltur af ævistarfi þínu í lögreglunni og verkefnum sinntir þú af festu og lítillæti en stoltastur varstu af barnabörnunum þínum sem nú eru orðin tíu talsins. Þér var mikið í mun að okkur öllum gengi vel í lífinu og liði vel enda gættir þú og hlúðir vel af þínum nánustu og passaðir upp á að eng- an skorti neitt. Þú varst einstak- lega mikill dýravinur og eiga kis- urnar mínar eftir að sakna þín mikið. Þeir sem þekktu til þín vita að þú varst stór og mikill á velli, með stórt hjarta og með mikla lund, en hafðir ríka kímnigáfu og komst mér oft til að hlæja með hnyttnum tilsvörum og hrossa- hlátri. Síðustu árin í Hveragerði hafð- ir þú góðan tíma til að sinna tölvu- málum enda var það þitt helsta áhugamál. Þú settir saman og tókst í sundur heilu tölvurnar og gast dundað við þetta heilu dag- ana. Skemmtilegast fannst þér þó að vinna í myndvinnslu í ofur „MAC-anum. Stundvísi og áreið- anleiki voru eiginleikar sem þú bjóst yfir og lagðir mikla áherslu á, við afkomendur þína og er ég ævinlega þakklát fyrir það. Elsku pabbi, þú varst hjarta- hlýr, heiðarlegur, örlátur og góð- ur maður, mikið óskaplega verður tómlegt án þín. Ég kveð þig í hinsta sinn og veit að þú munt ávallt vaka yfir okkur. Pabbi Með ást þinni kenndir þú mér að elska. Með trausti þínu kenndir þú mér að trúa. Með örlæti þínu kenndir þú mér að gefa. Takk pabbi Þín dóttir Bertha. Kæri Kalli. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu, er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Takk fyrir allt og allt, elsku tengdapabbi. Elsa Hrönn Gísladóttir. Elsku afi Kalli var margt. Hann var hugrakkur og sterkur og var fátt sem stóð í hans vegi. Hann var samt fyrst og fremst hlýr og góður. Hann var besta ein- tak manns sem nokkur gæti hugs- að sér. Ég tel mig gæfusaman að hafa kynnst honum, ekki bara því hann er afi minn heldur líka því hann gerði allt betra. Það gerir mig glaðan að hugsa um tímann sem ég fékk að verja með afa mínum því ekki eru allir svo heppnir. Við afi vorum miklir vinir og áttum saman endalaust af minn- ingum og því tekur andlát hans mig sárt. Hann var ávallt góður við alla og hvað þá ástvini. Aldrei kom hann illa fram við aðra og var ávallt örlátur. Hann var góðhjart- aður og mikill dýravinur. Hann unni tölvum og bílamál- um af mikilli ástríðu og erfði ég það allt frá honum. Afi var hjartahlýjasti maður sem ég hef kynnst og heimurinn er svo sann- arlega síðri nú þegar hann er far- inn. Þín verður saknað og þér verð- ur aldrei gleymt. Þinn vinur og afastrákur, Anton Valdimarsson. Nú farinn ertu mér frá. Hvað geri ég þá? Þig hafa ég vil og segja mér til. Nú verð ég að kveðja. Fæ ekkert um það að velja. Þú kvaddir mig með hlátri. Það er ekki skrítið að ég gráti. Í hjarta mér þú verður, þaðan aldrei hverfur. Ég minningu þína geymi en aldrei gleymi. Elsku hjartans afi minn, nú friðinn ég finn. Þá kveð ég þig um sinn og kyssi þína kinn. (Ágústa Kristín Jónsdóttir) Takk fyrir allt, elsku afi minn. Er svo þakklát fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og allar minn- ingarnar Með þér. Ég elska þig og á eftir að sakna þín. Þín Svandís Hekla. Hann Kalli er dáinn. Snöggt og án nokkurs fyrirvara var klippt á lífsþráð hans. Vel man ég þegar hann kom ungur drengur til sumardvalar hjá Möggu og Lofti á Ásbjarnar- stöðum. Hann varð þar fastur gestur og batt mikla tryggð við alla í þessum afskekkta dal. Mér fannst oft sem hann liti á Þor- grímsstaðadal sem mikilvægan og mótandi stað í sínu lífi og hann fylgdist ávallt með fólkinu þaðan af lifandi áhuga. Það var hans fólk. Uppvaxtarstaður minn, Þor- grímsstaðir, er næsti bær og vit- anlega hittumst við oft. Kalli bar alltaf sama persónuleika. Alveg frá því að hann var smástrákur með glottaralegan svip og skemmtileg tilsvör. Þessum eigin- leikum hélt hann alltaf. „Ósköp ert þú í síðu pilsi, Vigdís mín,“ sagði hann við Dísu, litlu systur mína, þegar einhverjir krakkar frá Ásbjarnarstöðum komu fram- eftir og við vorum að þvælast um í blautu grasi. Meinlaust, græsku- laust og smá kímið eins og var hans háttur. Við eldri systkini Dísu sáum ástæðu til að halda þessu til haga og stríða henni með þegar þau Kalli fóru að draga sig saman rúmum áratug síðar. Einlægni, trygglyndi og trú- mennska voru sterkir eiginleikar í fari Karls Magnússonar. Hann varð sér úti um réttindi lögreglu- manns þegar þau Dísa fóru að búa saman og börn að fæðast, og hann starfaði í lögreglunni alla sína starfsævi. Oft vitnaði hann í starfsfélagana og sagði sögur frá vinnustaðnum. Aldrei þó af við- kvæmum málum sem lögreglan þurfti að takast á við, en ýmis þeirra hafa án vafa reynt meira á en við skrifborðsfólkið gerum okkur grein fyrir. En hann hafði líka ánægju af starfinu og fannst skemmtilegt að keyra um á bíla- og hjólaflota lögreglunnar og fara hratt ef svo bar undir. Það var þó fjölskyldan sem mér virtist alltaf vera Kalla mikilvæg- ust. Dísa og krakkarnir. Þeim var hann stoltur af. Og ekki dró úr þeirri ánægju þegar barnabörnin fóru að fæðast. Hann mátti líka vera stoltur af sínum hópi, því af- komendur þeirra Dísu eru mikið myndar- og atgervisfólk. Að leiðarlokum vil ég þakka Karli mági mínum innilega fyrir öll okkar samskipti. Við Hólmgeir komum mjög oft til þeirra Dísu hér á árum áður. Þeim samfund- um hefur fækkað síðari ár, en allt- af var hressandi og skemmtilegt að koma til þeirra. Sérstaklega vil ég þakka honum fyrir hve vel hann reyndist móður minni, Þor- björgu, í hennar heilsuleysisbasli. Amma mín, Jónína, kunni líka svo vel að meta gamansemi Kalla og ýmsa aðra eiginleika. Honum sé þökk. Við Hólmgeir sendum Dísu og fjölskyldunni allri okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. – Lífið á sér bæði gleði- og saknaðarstundir. Við sem eldumst þurfum marga að kveðja og þá verður okkur litið bæði aftur um öxl og fram um veg: Og ég horfi fram um veg ég horfi aftur um veg – undrandi við enn ein vatnaskil sem taka sér nú bólfestu í blóði mínu. (Hannes Pétursson) Jónína Guðmundsdóttir. Karl Magnússon Jónsi minn. Þannig var ég vön að tala til þín og geri það nú í hinsta sinn. Nú ert þú farinn allt of ungur úr þess- ari veröld og í húsi okkar situr sorgin. En hjálp er að finna í góðum minningum og þær á ég margar um þig en mín fyrsta minning tengd þér er sú þegar Sunna Ella Jón Reynir Hilmarsson ✝ Jón Reynir(Jónsi) Hilm- arsson fæddist 24. júní 1982. Hann lést 10. maí 2019. Útförin fór fram 29. maí 2019. mín, þá 15 ára segir: „Mamma hvað fyndist þér ef ég byrjaði á föstu?“ Og ekki leið á löngu þar til þú Jónsi minn, rauðhærður, glaðlegur og ljúfur drengur komst inn í líf fjölskyldunnar. Þau urðu 18 árin sem þú, Sunna Ella og síðar börnin ykk- ar fjögur voruð líf okkar og yndi, þakka þér það, elsku Jónsi minn. Þakka þér góðmennskuna og gleðina. Þakka þér greiðviknina. Þakka þér ástina sem þú gafst Sunnu Ellu. Þakka þér allra mest börnin þín fjögur sem þú skilur eftir þig. Þín verður saknað og þín verður minnst og börnin þín fá ávallt stuðning og ást frá fjöl- skyldunni. Mig dreymdi eina nóttina að ég væri fiðrildi sem flaug um og var ánægður með það. Skyndilega vaknaði ég og var orðinn Chuang-tzu aftur. Hver er ég í raun og veru? Fiðrildi sem dreymir að það sé Chuang-tzu eða Chuang-tzu sem heldur að hann sé fiðrildi. (Chuang-tzu, 3.öld f.Kr.) Friður sé með þér. Saknaðarkveðja, Kolbrún og Róbert, Thelma Birna, Pétur og börn, Viðar og Aníta. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.