Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
KRÍT8. JÚLÍ Í 10 NÆTUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Keppendur í Greenland Air Trophy 2019, sem
flugu frá Reykjavík, lentu á Ísafirði um þrjú leyt-
ið í gær. Vélarnar eru á leið sinni yfir Græn-
landssund en stysta flugleið þangað er frá Ísa-
firði. Fimm flugvélar af mismundi tegundum og
ein þyrla taka þátt í keppninni sem felst í því að
lenda og taka á loft á eins stuttri vegalengd og
hægt er. Sautján manns fljúga með vélunum sem
biðu í gær eftir flugheimild yfir Grænlandssund.
Greenland Air Trophy 2019 keppnin
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
STOL-keppendur bíða kátir eftir flugheimild á Ísafirði
Guðrún Erlingsdóttir
Jón Birgir Eiríksson
Lög um framlengda heimild til ráð-
stöfunar á séreignarsparnaði í tvö ár
eða til 30. júní 2021 voru samþykkt á
Alþingi 7. júní sl. Í samtali við Morg-
unblaðið 15. maí sagði Ingvar Rögn-
valdsson vararíkisskattstjóri að eðli-
legt væri að með einhverju móti yrði
leitað eftir afstöðu þeirra sem voru
inni í kerfinu, hvort þeir vilji halda
áfram að ráðstafa séreignarsparnaði
inn á húsnæðislán eftir 30. júní.
Einnig kom fram að þeir sem vilja
halda áfram að ráðstafa séreignar-
sparnaði inn á húsnæðislán þyrftu
að sæka um það á www.leiðrétting-
.is. Samkvæmt skriflegu svari rík-
isskattstjóra, RSK, hefur í ljósi þess
að lögin öðlast ekki gildi fyrr en þau
hafa verið birt í Stjórnartíðindum
ekki verið leitað eftir því hvort þeir
sem ráðstafa séreignarsparnaði inn
á húsnæðislán vilji gera það áfram.
Slíkt verði gert um leið og unnt sé
og þegar lögin hafa öðlast gildi verði
auglýst í fjölmiðlum. Gert er ráð fyr-
ir því að öllum þeim sem nú séu
virkir í nýtingu heimildarinnar verði
sendur tölvupóstur með leiðbeining-
um um hvernig þeir eigi að bera sig
að við að framlengja, kjósi þeir það.
Sótt um á vefnum
Þeir sem kjósa að nýta heimildina
þurfi að fara inn á vefinn og taka af-
stöðu til þess hvort halda eigi áfram.
Þeir sem gera það fyrir 1. október
2019 fá óslitna ráðstöfun inn á lán
fyrir árið 2019 og svo áfram til 30.
júní 2021 eftir almennum reglum.
Sérstök eining hjá RSK sem stað-
sett er á Akureyri hefur frá upphafi
séð um vinnslu umsókna um ráð-
stöfun á séreignarsparnaði og breyt-
inga á þeim. Samkvæmt upplýsing-
um frá RSK hafa breytingar á
umsóknum numið mörgum þúsund-
um á hverju ári og hafa þær frá upp-
hafi verið meiri en nokkurn óraði
fyrir. Er líklegt talið að það helgist
af líflegum viðskiptum á fasteigna-
markaði undanfarin ár og verulega
mikilli endurfjármögnun. Slíkt kalli
á ítrekaða yfirferð á eldri umsókn-
um og gögnum, auk vinnu við nýjar
umsóknir. Hafi það m.a. leitt til þess
að starfsmenn úr öðrum einingum
innan RSK hafi komið til aðstoðar á
sérstökum álagstímum. Nú hafi ver-
ið bætt við hálfu stöðugildi í þá ein-
ingu sem sér um „séreignarsparn-
aðarleiðirnar“, með tilfærslu
starfsmanns milli verkefna. Fyrir
liggi að fjölga þurfi starfsmönnum
sem koma að þessum verkum. Eng-
ar breytingar hafi verið gerðar á
tölvukerfi eða öðru slíku.
Þurfa að sækja um framlengingu
Sækja þarf um framlengda heimild til ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á húsnæðilán Frestur
til að sækja um og fá óslitna ráðstöfun allt árið er til 30. september Lögin hafa ekki enn öðlast gildi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Húsnæði Tugir milljarðar af sér-
eignarsparnaði liggja í fasteignum.
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir undirritun
viljayfirlýsingar stjórnvalda og
einkahlutafélagsins Kadeco, þróun-
arfélags Keflavíkurflugvallar ehf.
um skipulags á svæðinu í kringum
Keflavíkurflugvöll vera mikil tíma-
mót. Bjarni sagði að í kjölfar vilja-
yfirlýsingarinnar í gær verði sam-
starfssamningur útfærður og aðilar
séu sammála um að tækifæri liggi á
svæðinu til framtíðar.
Virði í þróun svæðisins
„Það sjá allir virðið í því að skapa
vettvang fyrir þróun svæðisins í
heild bæði fyrir atvinnu og íbúa,“
segir Bjarni sem telur að Kadeco
komi líklegast til með að bera kostn-
aðinn af verkefninu en nú sé aðeins
verið að hefja skipulags- og hug-
myndavinnu fyrir uppbyggingu til-
framtíðar. Auk fjármálaráðuneytis-
ins og Kadeco standa Isavía,
Reykjanesbær og Suðurnesjabær að
yfirlýsingunni. Að sögn Mörtu Jóns-
dóttur framkvæmdastjóra Kadeco
er verkefnið ákaflega spennandi og
hvetjandi tækifæri og hún er bjart-
sýn á sköpun og uppbyggingu verð-
mæta á svæðinu til lengri tíma litið.
Marta segir verkefnið byggja á hug-
myndafræði Aerotropilis sem byggt
er kenningum dr. John Kasarda.
Verðmæti flugvallarsvæðis
Hugmyndafræði
Aerotropilis á flug-
vallarsvæðinu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Framtíðin Elín Árnadóttir frá Ísavia, Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra, Magnús Stefánsson og Friðjón Einarsson undirrita viljayfirlýsingu.
Ákæruvaldið telur að hæfileg refs-
ing yfir manninum sem ákærður er
fyrir að verða tveimur að bana með
því að kveikja í einbýlishúsi á Sel-
fossi í október gæti verið allt að 18
ár. Kolbrún Benediktsdóttir sak-
sóknari benti á það í málflutningi
sínum fyrir Héraðsdómi Suðurlands
í gær að aldrei hefði nokkur maður
verið sakfelldur á Íslandi fyrir tvö
manndráp sem hlotist hefðu af sama
verknaðinum. Saksóknarinn fór
ekki fram á neina sérstaka refsingu,
heldur lagði það í hendur dómara að
meta hver refsing mannsins ætti að
verða. Hæfileg refsing konu sem
einnig er ákærð í málinu, sagði sak-
sóknari að væru sex mánuðir í fang-
elsi, óskilorðsbundnir.
Refsing mannsins
allt að átján ár
Hæstiréttur dæmdi í gær Vaðla-
heiðargöng hf. til að greiða verk-
takanum Ósafli hf. rúmar 37 millj-
ónir króna vegna 1,2% lækkunar á
efnisgjaldi. Er þetta þriðja ólíka
niðurstaðan sem fæst í dómsmálið á
dómstigunum þremur, en í héraðs-
dómi höfðu Vaðlaheiðargöng verið
dæmd til að endurgreiða alla lækk-
unina, 51 milljón króna. Lands-
réttur sýknaði Vaðlaheiðargöng,
en Hæstiréttur fann milliveginn.
Vaðlaheiðargöng
greiði verktaka
Heildarfjárhæð sem greidd hefur
verið inn á húsnæðislán frá 1. júlí
2014 til og með maí 2019 nemur
58.302.972.931 kr.
55.737 hafa nýtt sérráðstöfun
á séreignarsparnaði til greiðslu
inn á húsnæðislán og úttektar
við kaup á íbúðarhúsnæði til eig-
in nota frá því það var heimilað
2014.
23.700 nýttu heimildina í maí.
55.737 nýtt
sérráðstöfun
NIÐURGREIÐSLA LÁNA