Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
HÓTEL FLATEY
Gisting og ferjusigling • 35.500 kr.
Hótel Flatey • info@hotelflatey.is • Sími 555 7788 • hotelflatey.is
Verið
velkomin
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfandi framleiðendur skógar-
plantna eru að stækka garð-
yrkjustöðvar sínar og nýir framleið-
endur eru að huga að uppbyggingu.
Ástæðan er stóraukin skógrækt í
landinu, bæði á vegum ríkisins og
áhugafélaga. Á bak við liggur hug-
myndin um að skógrækt sé góð leið til
að binda kolefni og þar með að full-
nægja skuldbindingum Íslands í
loftslagsmálum.
Skógræktin er að auka mjög kaup
sín á skógarplöntum, ekki síst vegna
skógræktar bænda á lögbýlum, eftir
mörg mögur ár eftir hrun. Á næsta
ári er áætlað að gróðursetja 3,3 millj-
ónir trjáplantna á vegum Skógrækt-
arinnar og í verkefnum sem hún
stjórnar. Er það rúmlega 20% aukn-
ing frá gróðursetningu í ár og nærri
60% aukning frá árinu 2018.
„Ég hef trú á þessu“
„Við erum mjög bjartsýn um fram-
haldið og finnst jákvætt að sjá aukn-
inguna. Ég hef trú á þessu,“ segir
Hólmfríður Geirsdóttir, annar eig-
andi garðyrkjustöðvarinnar Kvista í
Reykholtshverfi í Bláskógabyggð
sem lengi hefur stundað framleiðslu
skógarplantna auk annarrar rækt-
unar.
Mikill samdráttur varð í fjárveit-
ingum til skógræktar eftir hrun og
þar með framleiðslu trjáplantna.
Hólmfríður segist hafa orðið að skera
niður um helming, þrátt fyrir að vera
með samning við ríkið eftir útboð.
Framleiðslan hafi farið niður í 500
þúsund plöntur en hafi síðustu árin
verið að aukast aftur og sé nú orðin
1,1 til 1,2 milljónir plantna. Fram-
leiðslugeta stöðvarinnar er nú full-
nýtt að nýju.
Raunar segir Hólmfríður að þau
eigi aðra garðyrkjustöð við hliðina
sem hægt sé að breyta á auðveldan
hátt og stórauka þannig framleiðsl-
una. Þau vilji hins vegar minnka við
sig en vonar að áhugasamt fólk vilji
kaupa stöðvarnar og haldi uppbygg-
ingunni áfram. „Ég vil gjarnan sjá
þetta blómstra. Ég hefði farið sjálf í
uppbygginguna fyrir tíu árum,“ seg-
ir Hólmfríður.
Hólmfríður segir að allir séu að
auka við sig í skógrækt þessi árin,
Skógræktin, skógarbændur, land-
græðsluskógar og Kolviður.
Garðyrkjustöðin Sólskógar á Ak-
ureyri er að margfalda framleiðslu
sína á trjáplöntum, eins og nýlega
kom fram í frétt á vef Skógrækt-
arinnar. Þá eru garðyrkjubændur að
huga að því að færa sig á þetta svið
og hugmyndir eru uppi um stofnun
nýrra stöðva.
Stefnt að fjórföldun
Skógræktin gerði á síðasta ári
áætlun um fjórfjöldun nýskógræktar
til þess að auka kolefnisbindingu í
skógum og hjálpa til við að standa við
skuldbindingar Íslands samkvæmt
Parísarsamkomulaginu. Enn eru
unnið að útfærslu þessa verkefnis
með aðgerðaáætlun en það gengur út
á það að auka gróðursetningu úr 3,1 í
12,4 milljónir plantna til ársins 2023.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,
sviðsstjóri skógarauðlindasviðs hjá
Skógræktinni, segir að verkefnið sé
vel raunhæft en það byggist vissu-
lega á fjárveitingum. Á hún ekki von
á öðru en að þær fáist.
Hún segir að nægt framboð sé af
landi til skógræktar, meðal annars í
gegn um skógrækt á lögbýlum. Ágæt
þekking sé til að stunda ráðgjöf þótt
vissulega þurfi að auka rannsóknir
eftir því sem umfang skógræktar
eykst. Plöntuframleiðendur séu að
bregðast við aukinni eftirspurn með
stækkun stöðvanna og nýjum. Hún
segir að huga þurfi að verklega þætt-
inum. Plöntun sé atvinnuskapandi og
æskilegt væri að koma upp vinnu-
flokkum verktaka sem fari á milli til
að planta. Vonast hún til að ein-
staklingar sjái tækifæri í því.
Framleiðsla trjáplantna aukin
Skógrækt eykst hröðum skrefum Það kallar á aukningu í framleiðslu skógarplantna
Garðyrkjubændur bæta við sig Stefnt að fjórföldun í nýskógrækt með loftslagsverkefni
Morgunblaðið/Eggert
Haustlitir Trén vaxa sem aldrei fyrr og skógarnir breiða úr sér. Áhugafélög og stofnanir og verkefni á vegum rík-
isins auka við sig. Áhugi á skógrækt hefur vaxið sérstaklega vegna þeirrar verkunar trjánna að binda kolefni.
Skógræktarstarf
» 650 bændur eru þátttak-
endur í skógrækt og ýmis verk-
efni eru unnin á vegum ríkisins.
Yfir 60 skógræktarfélög eru
innan Skógræktarfélags Íslands
og eru landgræðsluskógar um-
fangsmesta verkefni þeirra.
Hólmfríður
Geirsdóttir
Sigríður Júlía
Brynleifsdóttir
Nýskógrækt 2018 til 2023
Helstu tegundir 2018
Þúsundir plantna
Áætlun um fjórföldun nýskógræktar*
Milljónir plantna
Birki 300
Rússalerki 540
Stafafura 700
300Sitkagreni
12
9
6
3
0
2018 2019 2020 2021 2022 2023
2,1 2,7 3,3
3,1
5,0
6,2
8,0
12,4
Öll nýskógrækt á Íslandi*
Skógræktin og tengd
verkefni
*Áætlun um fjórföldun
nýskógræktar til
kolefnisbindingar
Forsætisnefnd Alþingis hefur fallist
á niðurstöður siðanefndar þingsins
þess efnis að Þórhildur Sunna Æv-
arsdóttir hafi brotið siðareglur fyr-
ir alþingismenn með ummælum sín-
um um Ásmund Friðriksson,
þingmann Sjálfstæðisflokksins.
Álit forsætisnefndar var birt á
vef Alþingis í gær en það var af-
greitt á fundi nefndarinnar á föstu-
dag, degi eftir að þingstörfum lauk.
Siðanefnd Alþingis komst að
þeirri niðurstöðu að ummæli henn-
ar um Ásmund, einkum ummæli
um að rökstuddur grunur væri uppi
um refsiverða háttsemi hans, bryti
gegn siðareglunum.
Ummælin féllu í sjónvarpsþætt-
inum Silfrinu á RÚV og var Þór-
hildur Sunna þar að ræða endur-
greiðslur sem hann naut frá Alþingi
á grundvelli skráninga í aksturs-
dagbók hans. Siðanefndin taldi aft-
ur á móti að Björn Leví Gunn-
arsson hafi ekki gerst brotlegur við
reglurnar en Ásmundur kvartaði til
forsætisnefndar vegna ummæla
þeirra beggja vegna endurgreiðslna
samkvæmt akstursdagbók hans.
„Fyrir mér er málinu lokið. Ég
hélt að Þórhildur Sunna myndi
hafa manndóm í sér að biðja mig
afsökunar á því
að hafa ásakað
mig um þjófnað
en þau ætla
greinilega að
halda áfram,“
sagði Ásmundur
Friðriksson,
þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins,
við mbl.is í gær.
„Þingmenn verða núna hrædd-
ari við að segja sannleikann um
mögulega spillingu. Það er nið-
urstaðan,“ sagði Jón Þór Ólafs-
son, þingmaður Pírata og einn
nefndarmanna í forsætisnefnd Al-
þingis. Hann skilaði séráliti í for-
sætisnefnd um málið.
Forsætisnefnd
sammála siðanefnd
Þórhildur Sunna hafi brotið siðareglur
Ásmundur
Friðriksson
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Jón Þór
Ólafsson