Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019 HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Beltone Trust ™ Þessa dagana, í blíðunni á Húsavík, stendur yfir undirbúningur fyrir heilmálun hinnar fornfrægu Húsa- víkurkirkju, en í gær var unnið að því að fjarlægja málningu af þaki kirkjunnar með háþrýstisprautum. Kirkjan var síðast heilmáluð fyrir aldarafmæli hennar árið 2007 og fyrir um tveimur árum voru norður- og vesturhlið hennar málaðar, en vegna votviðris síðustu ár tókst ekki að klára að mála kirkjuna alla. Skoðuð af fjölmörgum Norður- og vesturhliðin eru þær hliðar kirkjunnar sem vinsælast er að taka myndir af. Sem kunnugt er þá er kirkjan mikil bæjarprýði á Húsavík og fjöldi fólks skoðar hana að innan sem utan á degi hverjum. Í þeim hópi er mikið um erlenda ferðamenn sem leggja leið sína til Húsavíkur. Fyrir aldarafmæli kirkjunnar var turninn, sem er 26 metra hár, lag- færður en hann var þá illa farinn. Mikið verk er fyrir höndum í sumar, en vonast er til þess að verkið klárist í sumar. Þegar kirkjan verður mál- uð verður byrjað á þakinu. Þegar neðar er komið verður að mála með penslum, en að þakinu undanskildu er kirkjan öll klædd norskum viði. Húsavíkurkirkja var vígð 2. júní 1907, en hún er krosskirkja, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni arkitekt. Á vef Kirkjukorts kemur fram að hún sé óvenjuleg fyrir þær sakir að þar er enginn hefðbundinn predik- unarstóll. jbe@mbl.is Ljósmynd/Björn Jóhann Björnsson Húsavík Um þessar mundir er málning fjarlægð af þaki Húsavíkurkirkju. Fornfræg kirkja fær nýja kápu  Húsavíkurkirkja heilmáluð í sumar Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Skráðum atvikum á Landspítala hef- ur fjölgað um 7,6% á milli ára á sama tíma og alvarlegum atvikum hefur fækkað úr sjö atvikum í þrjú. Þetta kemur fram í nýútgefnum starfsem- isupplýsingum Landspítala fyrir maí 2019. Ólafur Baldursson, framkvæmda- stjóri lækninga á Landspítala, segist telja að aukningu skráðra atvika megi rekja til bættrar skrán- ingar. Segir hann að stjórn spítal- ans hafi með kerfisbundnum hætti farið að leggja meiri áherslu á vinnuna á bak við öryggis- mál sjúklinga á síðustu 7-10 árum. „Fyrir um 10 árum var meiri feimni og ákveðin hræðsla við þenn- an málaflokk sem atvik eru, sem er að hluta til enn til staðar, en starfs- fólkinu okkar hefur tekist að breyta hugarfarinu þannig að nú er umræð- an um þetta miklu opnari og meiri viðurkenning á að þessir hlutir ger- ist og að það sé okkar skylda að leita að umbótum til þess að vernda næsta sjúkling sem kemur í sama ferli og atvikið varð í,“ segir Ólafur. Hann leggur áherslu á að ekki sé fullvíst að betri skráning sé ástæða aukningar- innar en segist hafa sterkar vísbend- ingar um að svo sé. Spítalinn sé til að mynda með ákveðinn mælikvarða sem mæli öryggismenningu meðal starfsmanna og niðurstöður mæl- inga gefi til kynna að starfsfólkið telji mikilvægara en áður að skrá at- vik. Viðhorf jákvæðari í dag „Viðhorf starfsmannanna til ör- yggismenningar er miklu jákvæðara en það var og það er grunnurinn.“ Ólafur segir jafnframt að viðhorf sjúklinga hafi einnig breyst í sömu átt og að þeir séu líklegri en áður til að tala um hlutina og láta vita ef eitt- hvað hefur komið upp hjá þeim. Ólafur segir að atvikum sé skipt í þrjá flokka eftir alvarleika. Atvik á stigi eitt segir hann að sé eitthvað sem skiptir máli fyrir sjúklinginn en hefur engar alvarlegar afleiðingar, það geti til dæmis verið minni háttar misskilningur sem truflaði sjúkling um stund en er fljótlega leiðréttur. Stig tvö er, að sögn Ólafs, eitthvað sem hefur meiri áhrif á sjúklinginn en stig eitt. Alvarleg atvik, af gráðu þrjú, er hins vegar þegar sjúklingur verður fyrir eða hefði getað orðið fyrir alvarlegum skaða. Ólafur segir óráðlegt sem stendur að túlka um of tölur um alvarleg atvik. „Við vonum auðvitað að þetta sé vísbending um að við séum að ná tökum á alvarlegu atvikunum en það er auðvitað mikil bjartsýni og ég vil ekkert fullyrða um það,“ segir Ólafur. Skráðum atvikum á Landspítala fjölgar  Ástæða fjölgunar atvika talin vera bætt skráning á spítalanum Fjölgun skráðra atvika » Skráð atvik sjúklinga á Landspítala voru 1.604 í maí 2019 en á sama tímabili í fyrra voru atvikin 1.491. Er breyting milli ára því 113 atvik eða 7,6%. » Þrjú alvarleg atvik sjúklinga höfðu verið skráð í maí 2019 en þau voru sjö á sama tímabili í fyrra. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Spítali Að mörgu þarf að hyggja. Ólafur Baldursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.