Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 38

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 38
Ingibjörg Haraldsdóttir myrk og dularfull. Persónulega finnst mér nauðsynlegt að ljóðin snerti tilfinningar lesandans, hvort sem þau eru hugljúf eða hrollvekjandi eða eitthvað þar á milli. Víkjum nú aftur að Ijóðinu sem ég byrjaði á. Heiti þess, Einu sinni var, tengir þetta ljóð við ævintýri bernskunnar. Ef vel er að gáð má finna þarna frásögn af litlum bókaormi sem leitar skjóls í ljóðum og sögum þegar veröldin er dimm og drungaleg - sú frásögn var að minnsta kosti kveikjan að ljóðinu. Vegurinn frá kveikju til fullskapaðs ljóðs er hins- vegar oft nokkuð langur og hlykkjóttur og ekki víst að mikið sé eftir af upprunalegu hugmyndinni þegar skáldið er orðið ánægt með ljóðið og finnst það birtingarhæft. Líklega er ég eina manneskjan sem kem auga á litla bókaorminn í þessu ljóði. í fyrstu bók minni, Þangað vil égfljúga, sem kom út 1974, er að finna nokkur ljóð sem fjalla einnig um bernskuna. Þau eru öll byggð á minni eigin reynslu af því að vera barn. Eitt þeirra heitir Kýr í haga. Þar segir frá fyrstu áheyrendum að skáldskap höfundarins, nefnilega kúnum á bænum þar sem ég var í sveit og hafði þann starfa að reka kýrnar á beit á morgnana og sækja þær á kvöldin. Þar segir m.a.: jórtrandi kýr í haga lygna augum og hlusta á ævintýrin mín Ykkur kann að detta í hug að þetta sé fegruð útgáfa af veruleika sem hafi í raun verið miklu hversdagslegri, en ég er ekki þeirrar skoðunar. Ég man ljóslega eftir að hafa samið sögur og jafnvel vísur handa kúnum, og kyrjað þær upphátt þegar við vorum komnar nógu langt út í haga, kýrnar og ég, burt frá eyrum fólksins á bænum. Ég sé þær enn fyrir mér, svo rólyndar og góðar, og heyri þær baula lágt öðru hverju einsog til að taka undir með skáldinu, og svo sveifla þær halanum og slá taktinn. Ef ég man rétt voru sögurnar mínar og vísurnar yfirmáta rómantískar og væmnar en kýrnar létu það ekki trufla sig, þær voru yndislegir hlust- endur og skyldi enginn vanmeta slíkt públikum, enda segir í síðustu ljóðlínunni: „Þolinmæði kúnna þrýtur aldrei." Mér verður stundum hugsað til þessara löngu liðnu bernskudaga minna vestur í Hnappadalssýslu og finnst þá að ég hafi unað sæl og glöð í sveitinni frá vori til hausts þessi fjögur sumur sem ég var þar, böðuð sólskini alla daga; mér finnst ég hafa þambað sindrandi vatnið úr bæj- arlæknum og nagað puntstrá þess á milli. Þessum minningum mínum hættir stundum til að renna saman við sögur og kvæði sem í hávegum 36 TMM 2005 ■ 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.