Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Page 42
Ingibjörg Haraldsdóttir en ég var með öllu ófáanleg til þess. Óttaðist að Valgerður læsi vísuna upphátt fyrir bekkinn og krakkarnir legðu mig í einelti. Eini maðurinn sem fékk að sjá vísuna auk mömmu var pabbi, sem skrifaði hana niður og varðveitti. Þótt ég vildi ekki gera vísuna mína heyrinkunna utan fjölskyldunnar var ég samt stolt af henni. Feimin og stolt. Ég man alls ekki eftir að hafa haft áhyggjur af Jónasi og Grasaferðinni hans og þeirri fullyrðingu að yrkingar þættu ekki prýða kvenfólk. Kannski var ég bara svona illa lesin. Seinna rann upp fyrir mér að með kveðjuljóðinu til Austurbæjarskól- ans hafði ég einnig verið að kveðja bernskuárin. Um svipað leyti flutt- um við af Snorrabrautinni í Kópavoginn og allt breyttist, unglingsárin helltust yfir mig með öllum sínum hræðilegu vandamálum og erfið- leikum sem bægðu burt hverri ljóðrænni hugsun. Eina bókmenntalega afrek mitt á þessum Kópavogsárum var skáldsaga sem ég byrjaði á og skrifaði sem óð væri í nokkra daga, þangað til ég las hana yfir og upp- götvaði mér til skelfingar að ég hafði alveg óvart verið að endurskrifa uppáhalds Nonnabókina mína, Borgina við sundið. Nonni var að vísu orðinn að stelpu, en flest annað var óbreytt. Þar lauk ferli þessa skáld- sagnahöfundar. Á menntaskólaárunum tók ég upp ljóðaþráðinn á nýjan leik og næst- síðasta árið mitt í MR var ég orðin svo fífldjörf og framhleypin að ég gekk á fund ritstjóra Skólablaðsins og gaukaði að honum nokkrum óendanlega sorglegum ljóðum sem ég hafði ort í nýrómantískum anda og fjölluðu öll um brostnar vonir, brennda skóga og dánar ástir. Rit- stjórinn birti ljóðin í blaðinu og mér til undrunar og gleði gerðu þau þónokkra lukku. Innan skamms voru gáfumenn skólans, jafnaldrar mínir, farnir að tala um mig sem „skáldkonu vora“ í föðurlegum tón. Ég var orðin skólaskáld. Á þessum kaldastríðsárum voru ekki sextán skáld í fjórða bekk einsog þegar Tómas var og orti. í mínum árgangi vorum við aðallega þrjú, ef ég man rétt, sem ortum í Skólablaðið: Böðv- ar Guðmundsson, Sverrir Hólmarsson og ég. Böðvar var meistari hins þjóðlega forms, Sverrir var avantgardið, framúrstefnuskáldið - og ég? Ég var stúlkan. Á einhvern hátt erum við alltaf byrjendur, hver ný skáldkona er Júlí- ana Jónsdóttir om igen, stúlka sem passar ekki inn í hefðina af því að þar eru fyrir eintómir karlar. Annað hvort lendir hún utanborðs og reynir bara að gleyma þessu, eða hún setur undir sig hausinn og þráast við, storkar hefðinni, hvort sem hún er þess meðvituð eður ei. Mikið væri nú gaman ef ég hefði treyst mér til að nota þátíð í undan- genginni málsgrein og gefa þannig til kynna að auðvitað væri þetta liðin 40 TMM 2005 • 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.