Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 50

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 50
Guðmundur Andri Thorsson uns það rennur upp fyrir okkur að það stendur ekki til að svara henni, hann ætlaði sér aldrei að svara henni; vill það ekki; en hyggst taka okk- ur sem hlustum og fara með okkur inn í alveg nýtt rými, burt frá hinni léttvægu spurningu - það stóð aldrei til að svara spurningum þar sem svörin liggja þegar fyrir. Hann er Skáldið vegna þess að honum hefur auðnast að ná slíkum tökum á íslenskri tungu og íslenskum stíl að hann getur haldið lesend- um bergnumdum á meðan hann lýsir í ljóslifandi smáatriðum smágerð- um heiðagróðri, undrandi kind, bólu á nefi - fugli. Hann er Skáldið; og hefur aldrei verið erindreki hópa, pólitískra eða annarra, þótt hann hafi alla tíð haldið á lofti sjónarmiðum mannúðar og rómantískrar vinstri stefnu sem lýsir sér í öfgafullri menningarhyggju, það er að segja skýlausri ofurtrú á að mennirnir sækist eftir því góða og fagra og sanna. Hann hefur alltaf haldið að fólk þrái næringu - og þiggi með þökkum hjálp við að finna hana. Hann hefur alla tíð starfað í anda þess meginsjónarmiðs að listin sé æðst alls þess sem mennirnir taka sér fyrir hendur; listin sé Guð: og að fólk sem ekki njóti lista gangi í myrkri og geti fyrirgert sálu sinni. Og að ef það hendi einhvern að njóta ekki listar einhvern tiltekinn dag þá hafi viðkomandi syndgað gegn Guði þann daginn og beri að gjöra yfirbót, með því til dæmis að hlusta tíu sinnum á strengjakvartett Beethovens í a-moll opus 132. Verstir í hans huga eru falsspámenn, allir þeir sem gera falskt tilkall til þess að skapa list, loddarar sem vilja draga fólk á asnaeyrunum í því skyni að krýnast þeirri dýrð sem listin umvefur þann sem stundar hana af auðmýkt og lotningu. Thor hefur því alla tíð verið ástríðufullur boðberi hinna fögru lista meðal okkar - og ekki er haldinn konsert í Reykjavík með klass- ískri tónlist eða myndlistarsýning opnuð að hann sé þar ekki mættur, eins og til að blessa samkomuna - sjálft Skáldið. Þegar ég var lítill fékk hann lánaða kvikmyndasýningarvél og sýndi okkur strákunum í götunni myndir eins og Alexander Nevskí eftir Eisenstein og Afkomanda Djengis Kahn og Chaplin myndir - en ekki Gög og Gogge því að þeir voru loddarar að hans mati. Hann spilaði fyr- ir mig Mozart og Vivaldi og lét sem sér þætti gaman að Bítlunum fyrir mig en ekki Kinks sem hann kallaði Gömlu mennina. Á eldhúsgólfinu í Karfavogi 40 sýndi hann mér hvernig maður tekur osotógari leiftur- snöggt á andstæðing sinn svo hann fellur við án þess að vita sitt rjúk- andi ráð. Við fórum í sund og við fórum á pósthúsið og við fórum upp í sveit og við sögðum oft hvor við annan: rimsírams og flimsíflams og ballíbœ og svo tjöllum við okkur í rallið. Og á meðan við vorum að tjalla okkur í rallið sagði hann mér söguna um apann og skipstjórann, söguna 48 TMM 2005 • 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.