Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 53

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 53
Una Margrét Jónsdóttir „Sigga litla systir mín liggur útí götu“ Klúrir söngvar barna Það er staðreynd, hvort sem okkur líkar betur eða verr, að flest börn heyra einhvern tíma klámvísur, syngja þær jafnvel sjálf eða búa til nýjar. Sum börn hafa gaman af slíkum kveðskap, ekki síst af því að hann er bannaður. Önnur láta sér fátt um finnast og einnig eru til mörg börn sem hafa óbeit á klámvísum, en komast samt ekki hjá því að heyra aðra krakka fara með þær. Enginn hópurinn er betri eða verri en annar, þetta eru börn af báðum kynjum og úr öllum þjóðfélagshópum. Undanfarin ár hef ég verið að rannsaka leikjasöngva barna og hef þá einnig safnað afbökunum og stríðnissöngvum sem tíðkast á barnsárun- um. Það fór ekki hjá því að allmargar klúrar vísur ræki á fjörur mínar. Til- gangur minn með söfnuninni var að gera útvarpsþætti og semja síðar bók um þetta efni. En hvað átti ég að gera við klúru vísurnar? Áttu þær heima í leikjasöngvabók sem ég vildi að fólk af öllum kynslóðum gæti lesið? Það fannst mér vafasamt, þó var þetta tvímælalaust efni sem ég hafði fundið í rannsókninni og vildi síður stinga undir stól. Ég tók því þá ákvörðun að skrifa um þetta grein í tímarit sem ætlað væri fullorðnum. Nú kann einhver að spyrja hvers vegna ég vilji halda þessum klámvís- um frá börnum. Eru þær ekki einmitt frá börnum komnar? Vissulega, en eins og ég tók fram er sumum börnum illa við klámvísur og þau hafa fullan rétt til að vera í friði fyrir þeim, eftir því sem hægt er. Margir foreldrar myndu líka hafa á móti því að börnin þeirra læsu klámvísur í leikjabók og sú afstaða er skiljanleg. Aðrir kunna að spyrja hvers vegna ég sé að birta þetta. Eru þetta ekki dónalegir og groddalegir rusltextar sem betur væru geymdir en gleymdir? Það eru þeir vissulega margir, en þeir veita samt fróðleik um börnin okkar og þau tímabil sem þeir eru runnir frá. Þegar Ólafur Davíðsson safnaði íslenskum leikjum á 19. öld tók hann með í rit sitt, Islenskar skemmtanir, leik sem var svo klúr að hann lagði ekki í að birta TMM 2005 ■ 4 51
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.