Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Page 54
Una Margrét Jónsdóttir hann á íslensku, birti hann á latínu í staðinn. En hann tók hann samt með, og það væri skrýtið að vera teprulegri á 21. öldinni en Ólafur Dav- íðsson var á 19. öld, einkum þegar til þess er litið að heimildarmaður Ólafs um þennan ósiðlega leik var enginn annar en 18. aldar maðurinn Jón Ólafsson frá Grunnavík. Ég vil líka nefna annað dæmi og vitna í æviminningar Matthíasar Jochumssonar, bókina Sögukaflar af sjálfum mér. Hann segir þar frá telpu, jafnöldru sinni, sem var á Kleifastöðum í Gufudalssveit veturinn 1847-8, en Matthías var þá 12 ára: Eftir það fór sú telpa að reyna til að troða í mig stafrofinu í ars amatoria - á íslensku sveitamáli. Ég, sem var yngri í þeim fræðum, brást reiður við og segi: „Heldurðu að manneskjan sé skynlaus skepna!?“ „Ógn ertu vitlaus!" svaraði hún. Bæði vorum við börn náttúrunnar, „sakleysingjar", sem kallað er, en því sakleysi skyldi enginn trúa! Matthías var óvenju bersögull í æviminningum sínum á þeirrar tíðar mælikvarða. (Sögukaflarnir komu út árið 1922.) Hann fer samt svipaða leið og Ólafur, notar latnesku orðin „ars amatoria" til þess að segja okk- ur frá þessari fyrstu kynlífsfræðslu sinni. En væri ekki býsna gaman núna að vita hvernig þetta „íslenska sveitamál" var sem litla 19. aldar stúlkan notaði til að fræða drenginn um kynlíf? Vísurnar sem birtar verða í þessari grein eiga það sameiginlegt að hafa verið á vörum barna, sumar nýlega, aðrar fyrir mörgum árum. Sumar eru vafalaust ortar af fullorðnum, aðrar bera með sér að börnin hafa sett þær saman sjálf. En í heimi barnanna hafa þær lifað, enda þótt börnin vissu vel að svona kveðskap áttu þau ekki að kunna, samkvæmt óskrifuðum reglum samfélagsins um góða hegðun. Ég hef nú innganginn ekki lengri, en vil vara þá sem hafa mikla óbeit á klámi við framhaldi þessarar greinar. Vísurnar eru vissulega misjafn- ar, sumar fremur saklausar, aðrar af dónalegra tagi, og vel skiljanlegt að þær veki andúð hjá fólki. Rinn tinn tinn ... Margir ímynda sér sjálfsagt að þótt dónalegar vísur heyrist hjá börnum nútímans hafi fyrri tíðar börn verið vel upp alin og aldrei látið sér slíkt um munn fara. En börn hinna gömlu góðu daga voru ekki eins saklaus og menn ímynda sér. Stúlka nokkur sem ólst upp á sveitabæ á Norður- landi á 4. og 5. áratugnum var ekki gömul þegar hún lærði þessa vísu: 52 TMM 2005 ■ 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.