Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 86

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 86
Baldur Hafstað hér á eftir sem tekinn er úr inngangi verks hans. Latnesk innskot hafa reyndar verið þýdd til að auðvelda lesturinn en við það má segja að ákveðið stíleinkenni (macaronicon) þessa lærdómsmanns fari forgörð- um. Stíllinn er orðmargur og myndauðugur og um leið írónískur. Ann- að sem vekur athygli er að höfundurinn skýtur sér iðulega bak við aðra; hann tekur ekki afgerandi afstöðu, heldur lítur á málið frá mörgum hliðum. En virðing Burtons fyrir heimildarmanninum er augljós og sú afstaða skýr að hann eigi að njóta sannmælis. Því er það að „dvergur- inn“, sem stendur á öxlum „risans“, fær nafngiftina „þriggja stafa mað- ur“ [f-u-r (lat.) = þjófur] ef hann gleymir að taka fram hverjum hann eigi það að þakka að hann sjái svo vítt um veröldina. Tekið skal fram að aftanmálsgreinar, þar sem höfundur vísar af nákvæmni í heimildarit, eru ekki teknar upp í þýðingunni. Heillandi myndmál Áður en ég kem að orðum Burtons um heimildanotkun langar mig að birta eina glefsu úr bók hans þar sem fjallað er um ástina - til að sýna hvað myndmálið er oft kraftmikið og safaríkt hjá þessum sérkennilega og stórmerka höfundi: Astarþráin er sem beiskur kaleikur og hvöss eins og tvíeggjað sverð. Fætur hennar ganga í átt til dauðans, þrep hennar niður til heljar. Sá sem lendir í hringiðu ástarinnar er verr settur en sá sem hleypur fram af björgum. Ef þessi ástríða heldur áfram hitar hún blóðið og gerir það þykkt og svart. Og ef loginn nær til heilans með áframhaldandi grufli og vökum þá þurrkast hann upp og orsakar brjálæði eða sjálfsmorð. {The Anatomy of Melancholy 111:186) Ég - efmig skyldi kalla Burton segir að með því að skrifa um þunglyndi hafi hann viljað hjálpa öðr- um sem eiga við sama vandamál að stríða og hann sjálfur; í því sambandi grípur hann til líkingarinnar við holdsveika konu sem gaf allar eigur sínar til stofnunar spítala fyrir holdsveika. Síðan ávarpar hann lesandann og gef- ur í skyn af uppgerðarlítillæti að verk sitt um þunglyndi sé svo sem ekkert merkilegt enda hafi allt, sem þar kemur fram, verið sagt áður: Já, þú munt segja að þetta sé ónauðsynlegt verk, tvísoðið kál borið á borð, það sama aftur og aftur með öðru orðalagi. í hvaða tilgangi? „Engu er sleppt sem hægt er að segja vel,“ sagði Lucian um svipað efni. Hversu margir frábærir lækn- ar hafa ekki skrifað heilu bindin og háþróaðar greinar um þetta efni! Ekkert nýtt hér; það sem ég hef er stolið frá öðrum. Blaðsíðan mín hrópar á mig: Þú ert 84 TMM 2005 • 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.