Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 103

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 103
Bókmenntir í óvænta pössun, amman hringir, móðurbróðirinn hringir, amman hringir aftur, mamma og pabbi Klöru koma og gera usla, nágranninn í kjallaranum kvartar nokkrum sinnum yfir hávaða, ókunnug kona hringir og segir Klöru að systir hennar hafi orðið fyrir slysi. Gestirnir drekka og dansa svolítið meðan þessu fer fram. Klara fær aðkenningu að taugaáfalli, gerir upp við nágrann- ann í kjallaranum og horfist í augu við ábyrgð sína á dauða sameiginlegrar vinkonu þeirra. Hún leggur svo af stað í morgunsárið til að heimsækja syst- urina á sjúkrahúsið og setja henni stólinn fyrir dyrnar. Sjálf hyggst hún skilja við Svenna og byrja að búa með Emblu og drengnum. Sumir myndu segja að þetta væri fyrirsjáanlegt laugardagskvöld í ungri og stressaðri uppafjölskyldu í Reykjavík - eða hvað? Auður Jónsdóttir hefur sömu aðferð í verðlaunabók sinni, Fólkinu í kjallar- anum, og Henrik Ibsen, sagan sem gerist í núinu væri ef til vill ekki athyglisverð nema vegna samtals síns við fortíðina, sögurnar sem áður hafa gerst verða ekki aftur teknar, þær eru virkt jarðsprengjusvæði sem persónurnar hljóta að fara yfir með herfilegum afleiðingum. Þannig er saga Auðar, listilega fléttuð og grípandi. Klara og Fjóla í fyrsta kafla bókarinnar stendur aðalpersónan frammi fyrir því að þurfa að kaupa þvottaefni í kjörbúð og ræður ekki við að taka eina tegund fram yfir aðra. Þetta myndi einhver segja að væri til marks um að stúlkan ætti við svo alvarleg innri vandamál að stríða að hún væri hætt að bera af venjulegum hversdagsverk- um. Hún virkaði ekki í samfélaginu. En hún segist alltaf hafa verið svona, gerir vanda sinn verufræðilegan, lætur Svenna leysa hann og eyðir málinu. Strax á eftir kemur fyrsta endurlit Klöru til uppvaxarára hennar og Emblu sem er fjórum árum yngri. Þær eru í útilegu með Fjólu, bestu vinkonu Klöru, og foreldrum beggja, drykkjan og rifrildin fara úr böndunum um nóttina og börnin verða viti sínu fjær af ótta. Þessi minning skýtur upp kollinum nokkrum sinnum í textanum og er greinilega ein af verstu uppákomunum af mörgum sem til greina koma. Saga Klöru fer síðan fram og tilbaka í tíma en heldur sig lengst af í fortíðinni og vill ekki vera í nútíð sinni. Foreldrar systranna eru alkóhólistar af 68 kynslóðinni og líf þeirra einkenn- ist æ meira af partýjum, rifrildum, slagsmálum, sjálfsmorðshótunum, framhjá- haldi, eyðileggingu, öskrum og rugli. Inn á milli er systrunum bættur skaðinn með suðurlandaferð, fjallgöngum, bókmenntum og tónlist, leik, gleði, ást og alúð sem enginn veit í raun hvort eru alvöru tilfinningar eða sektarkennd og uppbætur. Barn alkóhólista er alið upp við þessa óvissu um hvað er hvað og hvað er þess. Og það mótar afstöðu þess til annarra. Sálufélagi Klöru er Fjóla. Fjóla er Besta vinkonan með stórum staf. Við hana virðist Klara mynda sterk tilfinningabönd og í henni virðist hún finna ein- hvern sem skilur stöðu hennar og tilfinningar. Bernskuminningar hennar eru bundnar Fjólu sem er alltaf við hlið hennar þegar mest á reynir. Þó er ákveðinn munur á þeim vinkonunum sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Þær tengjast TMM 2005 ■ 4 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.