Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 134

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2005, Side 134
Umræður skemmtileg sjón, enda undirritaður litlu öðru vanur en mótmælum á íslenskan máta þar sem formaður einhvers verkalýðsfélags marserar fremstur með borða eftir að hafa haldið ávarp dagsins undir pylsuáti og blöðruhafi gesta; ræðan yfirleitt ekki eftirminnileg og SS-pylsan ekkert endilega lystug. í Edinborg ríkti karnívalstemning þó að undirtónn mótmælanna hafi verið alvarlegur. Allir sameinuðust um að skemmta náunganum en koma um leið skilaboðum á framfæri til þjóðarleiðtoganna sem voru samankomnir bakvið víggirðingar Gleneagles hótelsins. Nær allir höfðu þau skilaboð fram að færa að stjórnmálamenn ríkustu þjóða heims hefðu allt of lengi sýnt skeytingarleysi í garð fátækari ríkja heims og hugsað um fátt annað en eigin þröngu hagsmuni. Sjálfsagt hefðu allir getað tekið sér í munn orð Þórbergs Þórðarsonar skálds um að lífsspeki þeirra væri lífsspeki andleysisins. „Það vakir yfir helgi eignar- réttarins eins og villidýr yfir bráð sinni. Heimurinn er „ég“ og „mitt“.“ Ungir krakkar sem ég hitti frá Wales fullyrtu að trú þeirra á stjórnmála- mönnum á Vesturlöndum væri engin. Þeir tækju ekki á raunverulegum vanda- málum heldur eltust við gæluverkefni sín og sérhagsmuni. Olíuauður Iraka skipti þá til að mynda meira máli en fólkið þar þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. En hver gæti verið orsök slíkra efasemdaradda? Af hvaða ástæðu þyrpist múgurinn út á götur Seattle, Edinborgar, Prag, Washington, eða hvar sem þjóðarleiðtogar koma saman til að ræða fyrirbæri eins og viðskipti og verslun? Þrátt fyrir efasemdir um framsýni og getu stjórnmálamannanna var búið að byggja upp talsverðar væntingar fyrir fundinn í Gleneagles. Tony Blair, forsæt- isráðherra Bretlands og sá sem hafði forsæti á fundinum, hafði verið nokkuð djarfur í yfirlýsingum sínum fyrirfram um tímamótasamkomulagið sem yrði undirritað. Hafði hann m.a. blásið á efasemdaraddir er fullyrtu að Bandaríkja- stjórn hefði takmarkaðan áhuga á heildrænum lausnum á fátækt. Auk bjartsýnna yfirlýsinga forsætisráðherrans létu poppstjörnur eins og Bob Geldof sig málið varða og blésu í fólk vonarneista um að einhver afrakst- ur yrði af fundinum. Skipulagði hann m.a. tónleika, Live Aid, víða um heim með mörgum frægustu poppstjörnum samtímans sama dag og fundurinn var í Gleneagles. Tónleikarnir áttu hvort tveggja í senn að vekja athygli á fátækt í heiminum og safna fjármunum til hjálparstarfs. Þegar Geldof og félagar héldu Live Aid tónleika fyrir um 20 árum í sama tilgangi birtust á sjónvarpsskjá Vesturlandabúa myndir af sveltandi börnum í Afríku. Myndir sem þessar hafa birst okkur um margra áratuga skeið. Risagjá er milli fátækra og ríkra, fólk deyr að óþörfu og stjórnmálamenn lofa aðgerð- um en árangur er lítill sem enginn. Brostin loforð Nýjasta skýrsla Sameinuðu þjóðanna um þessi efni sýnir að lítið sem ekkert hefur breyst og í mörgum tilfellum hefur ástandið versnað frá því sem var.1 Sú skýrsla var gefin út nokkrum mánuðum eftir fund leiðtoga G8-ríkjanna fyrir 132 TMM 2005 • 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.