Heimsmynd - 01.05.1989, Page 54

Heimsmynd - 01.05.1989, Page 54
HETJUR MYNDLISTARLIFSINS ÞRIÐJI MAÐURINN MM grundvallaratriðum eru tveir megin- Iþættir til staðar í sköpun listaverka. Annars vegar sá þáttur sem ræðst af þekkingu, innsýn og lífsskilyrðum listamannsins sjálfs. Og hins vegar sá sem lýtur að sviðsetningu þekkingar, innsýnar og lífsskilyrða áhorfandans eða neytandans. Sé fyrri þátturinn miklaður upp kemur ýmist út úr því spámannalist sem uppgötvast seinna, eða sérvitringalist sem gerir ekki annað en gera mannlíf líðandi stundar aðeins fjölbreyttara. Á þeim tímum þegar ofvöxtur hleypur í seinni þáttinn verður áhorfandinn eða neytandinn eiginlega hinn raunverulegi skapandi verksins. En neytandinn skap- ar með því að meðhöndla listamanninn, nota hann sem verkfæri til að sviðsetja eigin heimsmynd á táknrænan hátt. Út úr þessum táknum (þeim listaverkum sem neytandinn hefur umleikis) má ef til vill lesa frjálslyndi, næmni, íhaldssemi, ríkidæmi, allt eftir þeirri ímynd sem neytandi hefur af sjálfum sér og þeim möguleikum sem hann hefur á því að koma henni í kring. Þessir tveir hópar, listamenn og áhorf- endur, ná því saman í gegnum góðlátlega glímu þar sem þeir leyfa hvor öðrum að þreifa fyrir sér í sköpunargáfu hins. Listamenn hlaða oft lofi á neytandann og kalla hann stundum höfðingja, en neytandinn kallar listamanninn þá í stað- inn meistara. Hér hefur verið lýst tveim- ur augljósustu leikurum á sviði listalífs- ins. En hér hefur þó aðalleikaranum verið gleymt, enda er hann ýmist ósýnilegur - eins og heilagur andi í heilagri þrenningu sem jafnan er táknaður með stýrandi, blessandi hönd sem þó er í raun ósýnileg - í gervi leikstjórans og leikritahöfundar- ins sem hafast að á bak við tjöldin. Eða þá sem aðalmaðurinn í leikritinu, einn á sviðinu allan tímann og leikur allar pers- ónur verksins, sem hann reyndar skap- aði líka sjálfur, og leikstýrir í ofan á lag sjálfum sér. Heilagur andi birtist stund- um sem allt í öllu og gegnsýrir heiminn. Persónugervingurinn, sem hér er lýst og hefur komist óséður inn í listalífið, inni- heldur: safnstjóra, galleríeigendur, upp- boðshaldara, skrásetjara og gagnaverði. Með öðrum orðum þá sem hafa með höndum niðurröðun og dreifingu á lista- verkunum og upplýsingunum um þau. Og þessi tiltölulega nýja aðalpersóna listalífsins er auðvitað sú sem er mest skapandi af þeim öllum, því hún notar bæði hugarheim listamanna og neyt- enda, oft á djarfan og óvæntan hátt, sem aðalefnivið í sín eigin sköpunarverk og hefur í raun komist upp á milli lista- manna og neytenda og tekið við stjórn- inni á sambandi þeirra. Þriðji maðurinn verður þó sjaldan að efniviði í sköpunar- starfi hinna, því hann er ýmist alveg ósýnilegur eða ofsýnilegur. Heilagur andi, ef hann stendur undir merkjum, getur aldrei orðið að efniviði í neinu verki nema sínu eigin. Á sama tíma og listalíf frá sjónarhorni listamanna og neytenda er ekki nema saklaus leikur þar sem þeir kitla góðlát- lega hégómagirnd hvors annars, þá hefur þriðji maðurinn (listaverkaverðir, miðl- arar og skrásetjarar) ákveðinn tilgang í huga. Því sá sem hefur mesta yfirsýn, og hefur um leið tök á því að vera ósýnileg- ur, veit jafnframt hvað eru raunhæf markmið miðað við gefnar aðstæður. Tilgangur þriðja mannsins er fyrst og fremst að komast yfir völd, þá peninga. Bera Nordal, forstöðumaður Listasafns Islands. Bera er öflugasti fulltrúi þriðja mannsins í íslenskum myndlistarheimi. Afl forstöðumanns hefur í aðalatriðum þrjár rœtur: Tengsl við stjórnmálalega valdhafa, innsjn í heim viðskipta og peninga, hœfilegan aðgang að hugsunarhcetti og háttalagi listamanna og listunnenda. Ut úr samruna þessara þriggja þátta kemur stórbrotnasta sköpunaraflið í íslenskri myndlist um þessar mundir — afl sem skapar ekki úr venjulegu hráefni, heldur afl sem notar fullunnin verk og hugsunarhátt sem hráefni í eins konar „yfirsköpun“ á „stórlistaverkum“. eftir • HANNES LÁRUSSON 54 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.