Heimsmynd - 15.01.1990, Side 48
Gammósíur og hlý,
stiír nfiusa frá Jnsenh
Jean-Paul Gaultier
1987.
Leðurjakki frá Enrico
Coveri 1986.
Chanel í sígildi sínu
1986.
Dragtir kvenna á framabraut síðasta áratugar
heyra liðinni tíð. Þörfin til að segja hver mað-
ur er og hvað maður starfar í gegnum fatnað-
inn er ekki til staðar nú. Með orðum Gianni
Versace hins ítalska: Utlit konunnar í stjórn-
unarstöðu og hinnar starfandi stúlku í ein-
kennisbúningum er ekki framtíðin. Við vilj-
um afslappaðra andrúmsloft í klæðaburðin-
um.
egar fór að líða að lokum þessa ára-
tugar urðu einhverjar sviptingar í þá
veru að leita aukinna þæginda og lúx-
usblærinn er örlítið á undanhaldi. Hvað sem
tískuhönnuðir reyna er staðreynd ársins 1990
enn sem fyrr að venjuleg kona hefur um það
bil tíu mínútur til að klæða sig á morgnana.
Um kvöldklæðnaðinn gildir öðru máli. Fyrir
vikið verða gallabuxur og rúllukragapeysur
áfram uppáhaldsklæðnaður margra, sportleg-
ur og þægilegur fatnaður sem hægt er að
hreyfa sig í ómeðvitað þar sem önnur hugðar-
efni sitja í fyrirrúmi.
Og hvaða blikur eru svo á lofti vorið 1990?
Hvítt og aftur hvítt, segir Lagerfeld í París,
Ozbeck í London og Mizrahi í New York. Sítt
yfir stuttu, til dæmis sítt pils með klauf að
framan yfir stuttbuxum, lína sem Gianfranco
Ferre leggur áherslu á. Síðir jakkar yfir stutt-
um blússum sem sýna rifbeinin er skoðun
Byblos, sem segir að línan sé þokkafull en
ekki kynæsandi. Ralph Lauren er enn við
sama heygarðshornið að koma lífsstíl hönn-
unar sinnar á framfæri. Hann vill að golf
verði meira í tísku svo að opnir sumarskómir
fái notið sín og sígildur sportfatnaður hristi
slyðruorðið af golfurum sem í Ameríku þykja
svolítið polyestersinnaðir. Og lengra erum við
ekki komin nú undir aldamót en svo að tísku-
hönnuðir virðast sammála um að hverfa aftur
til sjöunda áratugarins þar sem konur voru í
hvítu frá toppi til táar.
Annað sem tískuhönnuðir virðast sammála
um í tengslum við lífsstíl kvenna og fatnað er
að klæðnaður til áhrifa sé á undanhaldi.
nnar hönnuður, Isaac Mizrahi, segir:
Mér finnst konur ekki þurfa að líta út
eins og karlkonur til að ná markmið-
um sínum. Auðvitað þurfa þær skynsamlegan
vinnufatnað rétt eins og karlar en það er líka
nauðsyn að halda frumleika og gefa kímnigáf-
unni lausan tauminn.