Heimsmynd - 01.06.1992, Blaðsíða 14
Nóri er sögupersóna í metsölubókinni Á slóð kolkrabbans eftir Örnólf Árnason,
sem út kom hjá bókaforlaginu Skjaldborg fyrir síðustu jól. Nóri var helsti
heimildarmaður höfundar um baksvið og leynda valdaþræði viðskiptalífsins.
Samkvæmt bókinni er Nóri gamall skólabróðir höfundar, rösklega fimmtugur
einhleypur lögfræðingur sem býr með móður sinni og aðstoðar hana við rekstur
kvennærfataverslunar við Laugaveginn.
Þeir félagar Örnólfur og Nóri halda áfram að hittast og skeggræða um
margvísleg málefni líðandi stundar.
r
vergi á Vesturlöndum er siðleysi í
opinberri þjónustu liðið af eins
fáránlegu umburðarlyndi og hér á
Islandi, segir Nóri.
Hann stendur í útskotinu það-
an sem sjá má bæði upp og niður
■/ \ i ' !>I
ÍAk
n l/ ' m" i s ■
vjj hl r
Laugaveginn en horfir ekki út fremur en fyrri
daginn. Eg sit hins vegar og sýp kaffi í útskorn-
um sófa undir glannalegu, sólgulu og rauðu
Blöndalsmálverkinu af Reykjavíkurhöfn með
smágerð og þungbúin fjöllin á myndum Þórar-
ins B. Þorlákssonar og Jóns Stefánssonar á
veggnum gegnt mér. Sólarglenna varpar blóma-
mynstrum stórisanna inn í stofuna eins og
skuggamyndum. Og það glampar á gljáfægðar
borðplöturnar og stytturnar frá félögunum
Bing og Gröndal.
Ég er staddur á heimili gamla skólabróður
míns þar sem hann hefur átt heima alla sína
ævi, eða jafnlengi og móðir hans hefur rekið
verslun með kvennærföt handa fínum frúm á
neðri hæðinni í þessu sama húsi sem margir
segja að mamma hans hafi fengið í bætur fyrir
að faðir hans átti erfitt með að gangast við hon-
um. Búð Kristínar átti fyrir skömmu afmæli. í>á
mátti sjá í blómum skrýddum gluggunum borða
með áletruninni: Brjóstahöld í hálfa öld.
Frænka mín, gift okrara sem er mikill fjalla-
garpur og frábær söngmaður, á ljómandi snotra
dóttur, segir Nóri og lagfærir laxableikt háls-
bindi með sérkennilegum bláum táknum sem
ég kann ekki skil á: Stelpurófan er ljóshærð
með súkkulaðibrún augu, dálítið sjaldséð, enda
eru allir karlmenn vitlausir á eftir henni. Hún
er afskaplega gormælt og heitir Málfríður.
Skinnið litla ætlar að fara að gifta sig prúðum
og huggulegum sænskum manni af aðalsættum
sem gegnir áhrifastöðu hjá Sænska sjónvarpinu.
nóri er á vestinu. Hvít- og blá-
röndótt skyrtan hans, ættuð af
Jermyn Street er auðvitað brjóst-
vasalaus með tvöföldum líning-
um. Hann stingur þumalfingrun-
um í vestishandvegina og leikur á ósýnilega
harmóníku. Nóri horfir á mig ábúðarfullur og
heldur áfram: Brúðguminn tilvonandi sagði
mér í kaffiboði á Smáragötunni fyrir skömmu
að kollegar sínir við sænska sjónvarpið væru al-
deilis forviða á því hvernig dagskrárstjóri ís-
lenska sjónvarpsins notfærði sér aðstöðu sína til
að mylja undir sjálfan sig. Hann tröllriði öllum
eftir ÖRNÓLF ÁRNASON