Heimsmynd - 01.06.1992, Blaðsíða 27
KONA MÁNAÐARINS, LISTIR, TÍSKA, MATUR, MENN OG MÁLEFNI í JÚNÍ1992
Hvar og hvernig
býrðu?
Ég bý í níutíu fermetra
húsasmiðjuhúsi uppi í Mos-
fellsdal.
Hver er nýjasta upp-
götvun þín?
Hversu mikið íslenska
þjóðin virðir og dáir illa inn-
rætta menn, líkt og ástin á
störum og mávum. Svoleiðis
fuglar eru orðnir allsráðandi
hvert sem litið er.
Hvað er siðleysi fyrir
þér?
Það er siðleysi að lifa á rík-
inu en þykjast um leið berjast
fyrir einkavæðingu og vera
frjálshyggjumaður.
Hvað ergir þig mest í
íslensku þjóðfélagi?
Það er fólkið sem kosið
hefur verið á þing undanfarið
og virðist í engu sambandi
við íbúa þessa lands.
Hvar vildir þú helst
búa?
Ég vildi helst búa hér á ís-
landi. Næsti kostur væri Suð-
ur-England, þar er svo bú-
sældarlegt.
Hver er besta bíó-
myndin sem þú hefur
séð nýlega?
Það er til dæmis myndin
Once Around í leikstjórn
Lasse Helströmm, sem gerði
myndina Mit Liv som Hund.
Ég hef því miður ekki séð
nýjustu mynd Ettore Scola.
Hver er uppáhalds-
bókin þín?
Það rís úr djúpinu eftir
Guðberg Bergsson.
Á hvernig tónlist
hlustar þú?
Núorðið yfirleitt á klass-
íska tónlist. Þessa dagana er
fiðlukonsert eftir Tsjaj-
kovskíj í miklu uppáhaldi.
Svo hlusta ég á Stuðmenn
þegar ég er í stuði.
Hver er uppáhalds-
flíkin þín?
Svarta sparipilsið sem var
grátt einu sinni. Ég lét lita
það.
Áttu eitthvað sem þú
eða aðrir álíta stöðu-
tákn?
Brúnan Landroverjeppa
dísel. Þar er pláss fyrir tólf og
ég er mjög öfunduð af hon-
um.
í hverju vildiröu helst
fjárfesta?
í trjárækt.
Hvaða hæfileika vildir
þú helst vera gædd?
Ég vildi að ég gæti dansað
suðurameríska dansa
hnökralaust. Þá öfunda ég
mjög góðar söngkonur og hef
gert mér far um að sitja á
milli Röggu Gísla og Didd-
úar, svo allir haldi að röddin
komi frá mér.
Burtséð frá núverandi
starfi, hvernig vildir þú
helst afla þér tekna?
Ég myndi vilja reka hótel
einhverstaðar á Islandi eftir
mínu höfði, sérstaklega ætlað
þreyttum Islendingum. Og
ég vildi vera fornleifafræð-
ingur.
Hvaða manneskju í
þínu fagi dáirðu mest?
ítalska kvikmyndaleik-
stjórann Ettore Scola og kon-
una hans, en hún hjálpar
honum með handritin.
Ef þú hefðir lifað áður
hver hefðir þú viljað
vera?
Ætli ég hefði ekki viljað
vera Guðný Klængsdótttir,
amma mín. Mér skilst að hún
hafi lifað þægilegu lífi, látið
hverjum degi nægja sína
þjáningu og ekki gert mikið
veður út af hlutunum.
Hvers iörast þú helst?
Að hafa byrjað að reykja
sem barn.
Við hvernig kringum-
stæður missir þú helst
stjórn á skapi þínu?
Það er þegar fólk er að
tuða, smátuða og er lengi að.
Þá missi ég stjórn á skapi
mínu því ég vil að fólk segi
hlutina hreint út og hratt,
helst í einni setningu í stað
þess að tuða í sífellu.
Hvað kemur þér helst
til að hlæja?
Bara djúpstæður hallæris-
brandari.
Ertu trúuð?
Nei.
Hverju langar þig
helst að koma í verk?
Búa til nytjaskóg umhverf-
is húsið heima hjá mér.
Hverju vildir þú
breyta í fari þínu?
Gasprinu. Ég gaspra svo
mikið.
Með hverjum vildir þú
snæöa kvöldverð fyrir
utan maka?
Ég verð að öfundast við
ritstjóra blaðsins og segi
bara: Yoko Ono.
Ef þú værir alveg á
kúpunni fjárhagslega
hvaða munað þætti þér
erfiðast að neita þér
um?
Lindubuff. Annars hef ég
ekki vanið mig á mikinn
munað. Ég borða að meðal-
tali fjögur til fimm Lindubuff
á viku. Stykkið kostar um
fimmtíu krónur.
Hverju berðu helst
virðingu fyrir?
Gömlu fólki.
Hvað er fegurð?
Einstaklingsbundið. Mér
finnst ekkert jafnfallegt og
minn einkadalur að kvöldlagi
þegar sólin er að setjast og
horft er í vestur undir söng
mófuglanna.B
VIÐ SPYRJUM SPURNINGANNA
GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR
kvikmyndagerðarmaður hefur verið viðloðandi kvik-
myndagerð síðan 1976 og leikstýrði síðast Kristnihaldi und-
ir jökli eftir sögu föður síns. Guðný, eða Duna eins og hún
er jafnan kölluð, fékk nýlega styrk úr Kvikmyndasjóði til
að gera kvikmyndina Karlakórinn Hekla en það fram-
lag er 17 prósent af heildarkostnaði myndarinnar sem einn-
ig er fjármögnuð af Þjóðverjum og Eurimage kvikmynda-
sjóðnum. Guðný er 38 ára gömul, gift Halldóri Þorgeirs-
syni kvikmyndagerðarmanni. Sonur þeirra Halldór er sjö
ára.
Nýja myndin sem fyrirtæki Guðnýjar og Halldórs,
Umfoi framleiðir en Guðný leikstýrir er tekin upp í
Hveragerði og Mosfellssveit, á Skáni í Suður-Svfþjóð og í
borginni Blankenberg, suður af Köln í Þýskalandi. Hluti
myndarinnar gerist einnij; á sjó. Tökur hefjast 15. júní og
þeim lýkur í lok ágúst. I aðalhlutverkum eru Ragnhildur
Gísladóttir, Kristján Jóhannsson óperusöngvari, Þórhallur
Sigurðsson, Egill Olafsson, Sigurður Sigurjónsson, Örn
Arnason og fleiri. Þema myndarinnar: Karlakór sem fer (
ferðalag til útlanda. Guðný hefur unnið að handritinu und-
anfarin tvö ár. Þetta er gamanmynd, sem hún segist vona
að komi til með að skemmta fólki um leið og það fái tæki-
færi til að hlusta á fallega tónlist.H
HEIMSMYND 27