Heimsmynd - 01.06.1992, Side 50

Heimsmynd - 01.06.1992, Side 50
NAFN MARÍA RÚN HAFLIÐADÓTTIR ALDUR 19 ára STARF Nemi og fyrirsæta STAÐA OG HAGIR Fegurðardrottning íslands, er ógift og barnlaus. HÆÐ: 178 sentímetrar ÞYNGD: 55 kfló HVERT ER VIÐHORF ÞITT TIL LÍKAMA ÞÍNS? „Að reyna að gera allt til að halda honum í góðu forrni." HVERNIG HELDUR ÞÚ ÞÉR í FORMI? „Ég hleyp stundum en fyrir fegurðarsam- keppnina var ég í góðri líkamsrækt hjá Katý.“ HVERNIG ER MATARÆÐI ÞÍNU HÁTTAÐ? „Ég borða hvorki sælgæti né drekk gos. Þess í stað drekk ég mikinn appelsínusafa. Ég borða lítið af mjólkurvörum og reyndar af kjöti og fiski einnig en þess í stað borða ég mikið af hrísgrjónum og pasta.“ HEFUR ÞÚ ALLTAF VERIÐ í FÍNU FORMI? „Ég var frekar horuð sem barn en ég hef alltaf verið hraust enda tek ég alltaf lýsi á morgnana.“ HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ ÖORUM? „Að hætta að reykja til þess að geta stundað ein- hverja líkamsrækt. Einnig ráðlegg ég fólki að ganga meira. Það eru aðeins 20 mínútur í Heiðmörk frá borginni. Og svo ráðlegg ég fólki að borða ekki á milli mála.“ Á HVAÐA HLUTA LÍKAMANS LEGGURÐU MESTA ÁHERSLU ÞEGAR ÞÚ ERT AÐ KOMA ÞÉR í FORM? „Hjá Katý var mesta áherslan lögð á fótleggina og rassinn til þess að við litum betur út í sundbol." HVERJIR ERU VEIKLEIKAR ÞÍNIR? „Mig vantar meiri ögun þegar ég er að gera magaæfingar." HVAÐ ERTU ÁNÆGÐUST MEÐ í ÚTLITI ÞÍNU? „Fótleggina og þá aðallega kálf- ana.“ 50 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.