Heimsmynd - 01.06.1992, Side 63

Heimsmynd - 01.06.1992, Side 63
liÍÍHWfifcjv.*. ■■ á heimili hennar í Los Angeles fyrir nokkrum árum til að taka upp þætti fyrir Stöð 2 um Islendinga erlendis. I þessum þætti, sem hún á eintak af sjálf, segir hún blákalt við Hans Kristján að hún myndi aldrei selja húsið sitt. Það vefði hana verndar- örmum. Hún liti á það sem Bergþórshvol og myndi heldur brenna inni í húsinu en að selja það: „Ég sagði þetta sennilega vegna þess að eftir að Hal Linker dó breyttist líf mitt mjög mikið á einu ári.“ Móðir hennar og stjúpfaðir höfðu einnig bú- ið í Los Angeles. „Aðeins nokkrum mánuðum áður en Hal féll frá dó Stefán stjúpfaðir minn og móðir mín tók þá ákvörð- un að flytja til íslands. Þessi litla fjölskylda sem ég hafði haft mér við hlið leystist upp á aðeins 10 mánuðum.“ Sonur hennar var þá þegar fluttur til Noregs. Hún var því orðin ein eftir. Húsið var það eina sem ekki hafði breyst í lífi hennar: „Það var ástæðan fyrir því að ég vildi ekki láta það af hendi. Þrátt fyrir að ég hreinlega týndist í því.“ hana óaði einnig við því að láta allt safnið frá sér sem þau Hal höfðu sankað að sér á ferðum sín- um um heiminn: „Þetta var ekki neitt túristarusl. Þetta voru verðmætir munir. Það sem ekki síst vakti fyrir mér var hvað ég ætti að gera við allt filmusafnið. Ég þurfti að koma öllum þessum munum í verð.“ Halla sagðist í lok bókar sinnar bjartsýn á að geta unnið við og aflað sér tekna af filmusafni sínu. Þegar Hal dó voru þau hjónin orðin atvinnulaus og jafnframt tekjulaus. Nokkrum ár- um áður var þeim Hal sagt upp á sjónvarpsstöðinni þar sem þau höfðu komið fram, Dagurínn 1 lííi HöUu Linker minnir mann óneitanlega á líí ríku kvennanna í bandarískum bíómyndum. Halla, Hal og Davíð með vikulega ferðaþætti í 18 ár. Halla vissi að þessi tímamót væri óumflýjan- leg en Hal þrjóskaðist við og vildi koma þeim aftur inn í sjónvarpið. Það gekk ekki. Tímarnir voru breyttir. Til að hafa eitt- hvað í bakhöndinni reyndu þau fyrir sér í ferðaskrifstofubransan- um, það gekk aðeins í tvö ár. Þau fengu ekki svim- andi há laun hjá sjón- varpsstöðinni og áttu því engar innistæður í bönk- um þegar komið var að þessum tímamótum, að- eins fasteignir. Þau áttu fjallakofa sem þau gerðu upp og seldu áður en Hal dó og draumahúsið sem þau bjuggu í. Hún varð að sjá sér farborða. Halla reyndi fyrir sér í gerð myndbanda en sá fljótt að það gaf lítið í aðra hönd: „Mikið af ungu og vel menntuðu fólki er að reyna að feta sig áfram í kvikmyndagerð í Bandaríkjunum en fær enga vinnu. Hví ætti rúmlega sextug kona að reyna fyrir sér þar sem vonlaust er að fá atvinnu?“ Hún segist finna fyrir miklum bölmóði í Banda- ríkjunum: „Það er ægilega mikil svartsýni ríkjandi hjá ungu fólki í Kaliforníu og ekki að ástæðulausu. Þessari svartsýni er maður búinn að finna fyrir í tvö ár", segir hún áhyggjufull. „Þetta er raunveruleiki því flugvéla- og hergagnaiðnaðurinn í Kaliforníu hefur verið háður hernaðarbrölti Bandaríkjanna. Eftir að kalda stríðinu lauk lokar hvert fyrirtækið af öðru, sér- staklega minni fyrirtækin sem framleiddu hluta úr flugvélum og hergögnum. Það er sagt að það eigi enn eftir að segja upp tvo hundruð þúsund manns í þessum iðnaði í Kaliforníu. Margt af þessu fólki er hámenntað og kann ekkert annað en sitt fag.“ Það er ljóst að sama ástand ríkir í Kaliforníu og hefur ríkt á Islandi. Draumahús Höllu, sem þau Hal bjuggu sem lengst í, er hátt framhald á bls. 91 HEIMSMYND 63

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.