Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Qupperneq 12
Mat á ávinningi
starfsendurhæfingar
VIRK hefur fengið ráðgjafafyrirtækið Talna-
könnun til að leggja sjálfstætt mat á ávinning
af starfseminni á árunum 2013, 2014
og 2015 út frá þeim upplýsingum um
einstaklinga sem skráðar eru af ráðgjöfum
í gagnagrunn VIRK. Þessar upplýsingar
eru svo settar í samhengi við útgjöld VIRK
á hverju ári fyrir sig. Skoðuð er framfærslu-
staða einstaklinga við lok þjónustu hjá VIRK
á þessum árum og ýmsar lýðfræðilegar
breytur sem skráðar hafa verið í gagnagrunn
VIRK. Þessar upplýsingar eru síðan settar
í samhengi við upplýsingar um laun
mismunandi starfsgreina og bótafjárhæðir
hjá TR og lífeyrissjóðum.
Til að gera þetta þarf Talnakönnun að gefa
sér tilteknar forsendur þar sem ekki er
vitað hvað hefði orðið um einstaklinga sem
ljúka þjónustu hjá VIRK ef þjónustan hefði
ekki verið til staðar. Sumir hefðu getað náð
árangri upp á eigin spýtur á meðan aðrir
hefðu hugsanlega hlotið varanlega örorku.
Til að nálgast þetta gaf Talnakönnun sér
eftirfarandi forsendur:
• Ef einstaklingur er á örorkulífeyri hjá
lífeyrissjóðum eða TR við komu til
VIRK og útskrifast á vinnumarkað
er reiknað með að einstaklingurinn
hefði farið á varanlega örorku án
aðkomu VIRK. Þetta er í takt við þá
staðreynd að mjög fáir einstaklingar á
örorkulífeyri fara aftur á vinnumarkað.
• Ef einstaklingur er á endurhæfingar-
lífeyri hjá TR við komu til VIRK
og útskrifast á vinnumarkað er
reiknað með að helmingur þeirra
hefði farið á örorku út starfsævina.
Þetta er í samræmi við þær tölur
sem hafa komið frá TR en þær
sýna að um helmingur þeirra sem
fer á endurhæfingarlífeyri endar á
örorkulífeyri. Reiknað er með að
hinn helmingurinn hefði komist á
vinnumarkað eftir 60 mánuði.
• Reiknað er með að aðrir en þeir sem
útskrifuðust á endurhæfingar- og
örorkulífeyri hefðu verið óvinnufærir
í fimm ár ef þeir hefðu ekki notið
þjónustu VIRK en enginn hefði farið á
varanlega örorku. Frá þessum fimm
árum (60 mánuðum) dragast síðan
mánuðir í starfsendurhæfingu. Þetta
er mjög varfærin forsenda. Ekki er gert
ráð fyrir varanlegri örorku hjá neinum,
en hún kostar samfélagið mjög mikið.
Út frá þessum forsendum var niðurstaða fyrir
hvern og einn reiknuð út og þannig fundin
heildartala fyrir þá sem fara í launaða vinnu.
Niðurstaða þessara útreikninga gefur um
9,7 milljarða króna í ávinning á árinu 2013,
11,2 milljarða króna á árinu 2014 og 13,8
milljarðar króna á árinu 2015. Ábatinn af
starfseminni skilar sér til Tryggingastofnunar,
lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna
skatttekna og til einstaklinganna sem um
ræðir. Þessar stærðir eru settar í samhengi
við rekstrarkostnað VIRK á þessum árum í
mynd 10.
Það er auðvitað ekki einfalt að finna einhlítan
mælikvarða á árangur VIRK en mikilvægt er
að skoðaðar séu sömu kennitölur á hverju
ári og að aðferðin byggi á skynsamlegri
nálgun. Þessi nálgun Talnakönnunar byggir
á fremur varfærnum forsendum og jafnvel
þó forsendum sé talsvert hnikað til þá er
niðurstaða Talnakönnunar sú að starfsemi
VIRK sé mjög arðbær.
Flókin framfærslukerfi og
misvísandi skilaboð
Í starfsendurhæfingu þá skipta tímasetningar
miklu máli. Það er mikilvægt að koma
snemma að málum þar sem rannsóknir og
reynsla hafa sýnt fram á það að það getur
verið mjög erfitt að endurhæfa einstaklinga
til vinnumarkaðsþátttöku sem hafa verið frá
vinnumarkaði mánuðum eða árum saman.
Á sama hátt þá er líka mikilvægt að hefja
ferlið ekki of snemma þar sem í flestum
tilfellum heilsubrests þá dugar þjónusta
heilbrigðiskerfisins til að koma viðkomandi
aftur til starfa og rannsóknir hafa sýnt fram
á að of mikil þjónusta of snemma getur
lengt þann tíma sem viðkomandi er frá
vinnumarkaði. Hjá VIRK miðum við því
við það að einstaklingar komi þegar liðnar
eru 4-6 vikur frá upphafi heilsubrests
og ljóst er að hindranir eru til staðar fyrir
atvinnuþátttöku í kjölfar veikinda eða slyss.
Það er líka mikilvægt að einstaklingar fái
skýr og samræmd skilaboð um ábyrgð
og mikilvægi atvinnuþátttöku frá bæði
framfærsluaðilum og þjónustuaðilum innan
velferðarkerfisins. Til að geta haldið uppi
öflugu velferðarkerfi þurfum við að gera þá
kröfu til einstaklinga að þeim beri skylda til
að sjá fyrir sér með launuðu starfi svo fremi
sem þeir hafi möguleika og getu til þess. Sú
Kerfið er flókið
og ógagnsætt fyrir
einstaklingana og veldur það
oft streitu og álagi á erfiðum
tímum. Það er þannig vel
þekkt hjá ráðgjöfum VIRK
að streita einstaklinga
vegna óvissu um framfærslu
næstu mánaða veldur því
að minni árangur næst í
starfsendurhæfingu og hún
tekur lengri tíma en ella.“
8,0
7,0
6,0
5,0
4,0
3,0
2,0
1,0
0
Gefðu líðan þinni og starfsgetu einkunn
á kvarðanum 0-10 þar sem 0 er lægsta og 10 hæsta einkunn
Sjálfsmynd Vinnugeta
3,6
2,0
6,7
5,0
Í upphafi þjónustu í lok þjónustu Mynd 9
12 virk.is