Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 23
VIRK
Hlutverk VIRK er að móta, samþætta og hafa eftirlit með þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem miðar markvisst að atvinnuþátttöku
einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa. Ráðgjafar VIRK starfa hjá stéttarfélögum samkvæmt samningi við VIRK og nánari verklagslýsingu
sem þeim ber að kynna sér.
Siðareglur ráðgjafa VIRK halda á lofti þeim gildum og markmiðum sem VIRK Starfsendurhæfingarsjóður byggir starfsemi sína á. Gildi VIRK
eru; fagmennska, virðing og metnaður. Með fagmennsku tryggjum við áreiðanleika, þekkingu, öryggi og traust. Við berum virðingu fyrir
okkur sjálfum og samferðafólki okkar ásamt því að leggja áherslu á samvinnu og samstarf. Við höfum metnað og kjark til að fara nýjar leiðir.
RÁÐGJAFI VIRK & STARFIÐ
1. grein
Ráðgjafi hefur í heiðri sanngirni og heiðarleika og starfar í anda jafnréttis. Frumskylda hans er að veita einstaklingum faglega og áreiðanlega
þjónustu og virða velferð og mannhelgi. Ráðgjafi skal ekki mismuna einstaklingum vegna persónulegra tengsla, kyns, kynþáttar, kynhneigðar,
trúar eða annarra sambærilegra þátta.
2. grein
Ráðgjafi heldur þagnarskyldu í heiðri og virðir umgengni við trúnaðargögn. Ráðgjafi starfar samkvæmt útgefnu verklagi VIRK um meðhöndlun
trúnaðargagna. Hann aflar, skráir og miðlar einungis upplýsingum sem hafa verið samþykktar með upplýstu samþykki einstaklings. Hann
gætir ávallt fyllstu vandvirkni og virðingar við skráningu og meðhöndlun persónulegra gagna.
3. grein
Ráðgjafi vinnur af heilindum og tileinkar sér gildandi verkferla í gæðahandbók VIRK og starfar innan þess ramma. Ráðgjafi sýnir kostnaðar-
vitund í starfi og fer ávallt vel með fjármuni VIRK.
4. grein
Ráðgjafi ástundar fagleg vinnubrögð og starfar sem hluti af þverfaglegu teymi. Hann lærir af reynslu og leitast við að bæta þekkingu sína og
hæfni í starfi. Ráðgjafi tekur þátt í þróun þekkingar í starfsendurhæfingu og byggir störf sín á gagnreyndum aðferðum.
5. grein
Ráðgjafi skal ávallt forðast hagsmunaárekstra í starfi sínu. Honum er óheimilt að þiggja persónulega gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá
einstaklingum í þjónustu eða úrræðaaðilum. Ráðgjafi misnotar ekki stöðu sína í þágu einkahagsmuna og ber að upplýsa stjórnendur VIRK um
ólögmæta eða ótilhlýðilega háttsemi sem hann kann að verða var við í störfum sínum. Um störf ráðgjafans gilda almenn vanhæfissjónarmið
samkvæmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993.
RÁÐGJAFI VIRK & EINSTAKLINGUR Í ÞJÓNUSTU
6. grein
Ráðgjafi sýnir einstaklingum í þjónustu virðingu, nærgætni og skilning en setur jafnframt skýr mörk. Hann upplýsir einstaklinga um réttindi
þeirra og skyldur í þjónustu- og starfsendurhæfingarferli VIRK. Ráðgjafi hefur trú á eigin getu einstaklings og stuðlar að því að hann geti tekið
upplýsta ákvörðun í starfsendurhæfingarferli sínu. Hann tryggir skilvirkt upplýsingaflæði á milli allra aðila er koma að starfsendurhæfingu
einstaklinga og fylgir málum eftir.
7. grein
Ráðgjafi stendur vörð um og virðir rétt einstaklinga til einkalífs með því að gæta trúnaðar og þagmælsku í hvívetna. Ráðgjafi skráir einungis
upplýsingar sem varða starfsendurhæfingarferil einstaklings. Ráðgjafarsambandi lýkur um leið og þjónustu VIRK. Þagnarskylda helst þótt
ráðgjafi láti af störfum. Þagnarskyldan nær þó ekki til atvika sem ráðgjafa ber að tilkynna samkvæmt lögum.
8. grein
Ráðgjafi vinnur samkvæmt einstaklingsbundinni áætlun sem er unnin í samvinnu við þverfagleg teymi sérfræðinga VIRK. Ráðgjafi hefur
samvinnu að leiðarljósi, laðar fram áhugahvöt einstaklings til breytinga, hvetur og styður en er ekki meðferðaraðili. Hann tryggir gagnsæi og
gæði gagna í gegnum allan starfsendurhæfingarferil einstaklinga í samvinnu við aðra sérfræðinga.
RÁÐGJAFI VIRK & SAMSTARFSFÓLK
9. grein
Ráðgjafi miðlar eigin þekkingu og reynslu til annarra ráðgjafa sem og samstarfsfólks. Ráðgjafi leitast við að eiga farsæl samskipti og mynda
góð tengsl við samstarfsfólk sem og aðra ráðgjafa. Hann vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, tilvísandi lækna, fagaðila í starfsendur-
hæfingu, aðila á vinnumarkaði sem og heilbrigðis- og starfsendurhæfingarstofnanir.
RÁÐGJAFI VIRK & SAMFÉLAGIÐ
10. grein
Ráðgjafi tekur virkan þátt í að efla þekkingu á sviði starfsendurhæfingar á Íslandi. Hann talar af sanngirni og hollustu um VIRK og leitast eftir
því að efla starfsemi sjóðsins og vera dyggur málsvari hans í samfélaginu.
23virk.is