Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Page 27
VIRK
Mynd 2
Undir flokkinn „Annað“ í mynd 1 falla eftirfarandi skilgreiningar:
• Ekki náðist í einstakling
• Einstaklingur var kominn í vinnu þegar ráðgjafi hafði samband
• Nauðsynleg gögn bárust ekki
• Einstaklingur afþakkaði mat á raunhæfi
Ef niðurstaða beiðnateymis eða mats er að starfsendurhæfing sé ekki raunhæf eða tímabær
er einstaklingi vísað í önnur úrræði. Þá er bréf sent til einstaklingsins og tilvísandi læknis.
Þegar beiðnateymi kemst að þeirri niðurstöðu að starfsendurhæfing sé ekki tímabær falla
mál í flestum tilfellum undir eftirtalda flokka:
1. Læknisfræðilegri greiningu/meðferð/endurhæfingu er ekki lokið.
2. Einstaklingur á við fíknivanda að stríða og þarf viðeigandi aðstoð/meðferð áður
en starfsendurhæfing er líkleg til árangurs.
3. Starfsendurhæfing er ekki talin raunhæf eða er þegar fullreynd.
4. Ekki er talin þörf á heildstæðri/sérhæfðri starfsendurhæfingu.
Stöðugt er verið að reyna að bæta upplýsingaöflun áður en einstaklingur fer í þjónustu
til ráðgjafa VIRK til að tryggja að verið sé að senda einstakling í viðeigandi þjónustu.
Einstaklingar á leið í þjónustu eru því beðnir að fylla út nokkra spurningalista og hefur það
gefist vel. Markmiðið í framtíðinni er að geta verið með það góða skimun í upphafi þjónustu
að hægt sé að áætla endurhæfingarþunga sem þjónustan getur tekið mið af.
Almennt hefur ekki verið mikil bið eftir þjónustu ráðgjafa VIRK síðastliðið ár og fylgjast
sérfræðingar á rýnideild VIRK reglulega með biðtíma til að geta gripið til viðeigandi ráðstafana
ef sýnt er að bið sé orðin löng.
Starfsendurhæfingarferli hjá VIRK
Einstaklingur
kemur með tilvísun
frá lækni til VIRK
Rýni beiðna af
fagteymi VIRK Starfsendurhæfingarferli í umsjón ráðgjafa
Full þátttaka á
vinnumarkaði
Lok þjónustu
Starfsgetumat
ef starfsgeta er skert
eða óljós
Mat á raunhæfi
starfsendurhæfingar
Nei
Já
Starfsendurhæfing ekki
raunhæf – vísað í önnur
úrræði innan velferðarkerfisins
Sa
ms
tar
f v
ið
ým
sa
fa
ga
ðil
a
inn
an
ve
lfe
rða
rke
rfis
ins
Þverfagleg rýni á 3ja
mánaða fresti
Sérhæft mat eftir
þörfum og aðstæðum
Fjö
lbr
eyt
t þ
jón
us
ta
á s
við
i
sta
rfs
en
du
rhæ
fin
ga
r v
eit
t
af
úrr
æð
aa
ðil
um
um
al
lt l
an
d
Starfsendurhæfing ekki
raunhæf – vísað í önnur
úrræði innan velferðarkerfisins
Mynd 2 hér fyrir neðan sýnir yfirlit yfir ferilinn
hjá VIRK í grófum dráttum. Þeir einstaklingar
sem fara í þjónustu til ráðgjafa VIRK hitta
viðkomandi ráðgjafa í tvö til þrjú skipti til
að klára upplýsingaöflun og leggja drög að
fyrstu áætlun í starfsendurhæfingu. Áætlunin
er síðan borin undir rýniteymi VIRK sem
samanstendur af ráðgjafanum, lækni og
sálfræðingi. Þegar áætlunin liggur fyrir pantar
ráðgjafinn viðeigandi úrræði og úrræðaaðilar
hafa samband við einstaklinginn til að boða
hann til sín. Ráðgjafinn hittir einstakling síðan
reglulega til að fylgja áætlun eftir. Áætlanir
eru endurskoðaðar á þriggja til sex mánaða
fresti af rýniteymi sem samanstendur af
ráðgjafanum, sálfræðingi og sjúkraþjálfara.
Fagaðilar í rýniteymum eru allir verktakar á
vegum VIRK en eru í góðum tengslum við
rýnideild VIRK sem sér um þjálfun þeirra
og reglulega upplýsingagjöf. Þar sem að
ráðgjafar VIRK eru staðsettir um allt land nýta
rýniteymin sér fjarfundabúnað fyrir sína fundi
og hefur það gefist vel.
Ef áætlanir eru ekki að ganga eftir og framfarir
eru litlar er einstakling vísað í þverfaglegt mat
á vegum VIRK. Í lok ferils fara einstaklingar
í starfsgetumat ef þeir ná ekki að útskrifast í
fulla vinnu, atvinnuleit eða nám.
27virk.is