Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Qupperneq 29

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Qupperneq 29
 VIRK Samstarf við þjónustuaðila Þeir þjónustuaðilar sem eru í samstarfi við VIRK um starfsendurhæfingarúrræði eru tæplega 700 talsins og starfa um allt land. VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er með samning við átta starfsendurhæfingarstöðvar en það er liður í því að tryggja að til staðar sé fagleg þekking og reynsla á sviði starfsendurhæfingar um allt land. Á starfsendurhæfingarstöðvum er unnið markvisst með þær hindranir sem eru til staðar og samhliða því er unnið með styrkleika einstaklings og þeir tengdir við möguleg störf á vinnumarkaði. Rík áhersla er lögð á að nálgun í starfsendurhæfingu sé heildræn sem og að einstaklingurinn taki virkan þátt í þeirri vinnu sem á sér stað. Á þeim landsvæðum þar sem ekki er starfandi starfsendurhæfingarstöð hafa ráðgjafar VIRK það hlutverk að tengja mismunandi fagaðila saman í heildstæð úrræði fyrir einstaklinginn. Um 70 sálfræðingar starfa með VIRK og veita einstaklingum með geðrænan vanda einstaklingsviðtöl sem og hópmeðferð. Mikil áhersla hefur verið lögð á að þróa hópúrræði sem byggja á gagnreyndum aðferðum og hafa sálfræðingar komið vel til móts við þarfir einstaklinga í þjónustu VIRK með geðrænan vanda. Þá starfa einnig með VIRK tæplega 200 sjúkraþjálfarar. Þeir veita fjölbreytta ein- staklingsþjónustu og hópúrræði fyrir einstaklinga með stoðkerfisraskanir. Líkt og með sálfræðinga hafa sjúkraþjálfarar um allt land í samstarfi við VIRK þróað fjölbreytt hópúrræði fyrir þennan hóp. Þá hafa sjúkraþjálfarar einnig veitt einstaklingum með stoðkerfisraskanir, sem eru að vinna að því að gera hreyfingu að hluta af lífsstíl sínum, stuðning. Sú þjónusta miðar alltaf að því að gera einstaklinginn ábyrgan fyrir eigin hreyfingu. Þá hafa fjölmargir fagaðilar, s.s sálfræðingar og sjúkraþjálfarar þróað saman úrræði sem taka mið af aðstæðum þeirra einstaklinga sem eru í þjónustu á vegum VIRK. Töluverð gróska hefur átt sér stað í þróun úrræða sem byggja á reynslu síðastliðinna ára og hefur VIRK átt í farsælu samstarfi við fagaðila um allt land vegna þessa. Hjá VIRK hefur alltaf verið lögð áhersla á að aðlaga menntun og starfsreynslu einstaklings að störfum sem eru í boði á vinnumarkaði. Einnig er skoðað hvernig hægt er að byggja ofan á þekkingu sem er til staðar eða hvort starfstengd úrræði geti aukið starfsmöguleika. Ef einstaklingur þarf að fara í annað starf er markvisst skoðað hvaða styrkleikar eru fyrir hendi og reynt að aðlaga þá að öðru launuðu starfi, stundum þarf menntun að koma til svo það sé raunhæft. Um 100 símenntunaraðilar um allt land veita námsúrræði með það að markmiði að auka möguleika á vinnumarkaði. Um 100 þjónustuaðilar veita þjónustu sem flokkast sem heilsueflandi úrræði. Undir þann flokk fellur m.a. líkamsrækt með stuðningi íþróttafræðings, vatnsleikfimi og ýmis hópúrræði á vegum fagaðila. Fjöldi þjónustuaðila veita atvinnutengd úrræði og má þar helst nefna vinnuprófanir, úttekt, ráðgjöf og stuðning á vinnustað við endurkomu til vinnu sem og úrræði sem miða að því að búa einstaklinga undir atvinnuleit. Þá starfa ráðgjafar VIRK náið með atvinnurekendum á sínum svæðum. Kaup á þjónustu fagaðila Kaup VIRK á þjónustu fagaðila hafa aukist mikið á undanförnum árum en árið 2015 námu þau um 900 miljónum króna og lækka örlítið frá árinu áður eins og sjá má á mynd 1. Mynd 2 sýnir skiptingu útgjalda milli mismunandi tegunda af úrræðum á árinu 2015. Eftir mikinn vöxt síðustu ára var á árinu 2015 lögð rík áhersla á skilvirkni þeirrar þjónustu sem VIRK kaupir af þjónustuaðilum. Þá var unnið markvisst að því að þróa enn frekar ferla til að tryggja eftirlit og hagkvæmni í þjónustukaupum. Áfram verður lögð áhersla á gagnsæi, hagkvæmni og skilvirkni í þjónustu- kaupum á þessu ári samhliða því sem VIRK vinnur áfram náið með þjónustuaðilum að því að þróa einstaklingsmiðuð úrræði fyrir þann fjölbreytta hóp einstaklinga sem sækja starfsendurhæfingaþjónustu. Mynd 2 Mynd 1 Sérhæfð starfsendur- hæfingarúrræði Sálfræðiþjónusta Sjúkraþjálfun Nám og námskeið Heilsuefling / líkamsrækt Annað Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2015 vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum um allt land árin 2010-2015 62% 18% 7% 3% 6% 4% 1.000 900 800 700 600 500 400 300 200 100 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 Útgjöld í milljónum kr. Ár 29virk.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.