Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Side 30

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Side 30
R annsóknir hafa sýnt að því fyrr sem einstaklingar reyna endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys því líklegra er að þeir komist aftur til vinnu. Það er því ávinningur bæði einstaklingsins og þjóðfélagsins í heild að einstaklingum, sem eru með starfsgetu, sé gefið tækifæri til að komast í vinnu við hæfi snemma í starfsendurhæfingarferlinu. Sérstakir verkferlar sem vinnustaðir hafa möguleika á að innleiða geta haft áhrif á hversu árangursrík endurkoma til vinnu verður hjá starfsmönnum sem hafa verið fjarverandi vegna veikinda eða slysa og getur samtenging starfsendurhæfingar við vinnustaðinn einnig auðveldað einstaklingum og vinnustaðnum þessa endurkomu. Í þessari grein mun verða fjallað um innleiðingu slíkra verkferla á vinnustað og nýtt þróunarverkefni, sem lýtur að aukinni atvinnutengingu í starfsendurhæfingu hjá VIRK þar sem leitað verður eftir samstarfi við fyrirtæki og vinnustaði um þátttöku. Eins og fram kemur í framtíðarsýn VIRK þá er hlutverk VIRK að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. Í því skyni vinnur VIRK með fagaðilum, fyrirtækjum og stofnunum að því að skapa fjölbreytt tækifæri á vinnu- markaði fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu. Árið 2015 útskrif- uðust 1.346 manns úr þjónustu frá VIRK og af þeim fóru 584 í formlegt starfsgetumat. Þetta eru einstaklingar sem ljúka þjónustu hjá VIRK án þess að hafa náð fullri starfsgetu en af þeim var rúmlega helmingur metinn með 50% eða meiri starfsgetu, eða um 300 einstaklingar. Hluti þeirra sem fóru í starfsgetumat fór aftur út á vinnumarkaðinn (um 10%) en stór hluti, eða tæplega 40% þeirra, voru ekki með vinnusamband við útskrift. Ætla má að í sumum tilfellum sæki þessir einstaklingar þá um fullan örorkulífeyri því kerfið leyfir ekki hlutfallslegan örorkulífeyri á móti starfsgetu. Hér má því tala um ákveðnar kerfislægar hindranir sem eru að hafa áhrif á getu fólks til að komast aftur inn á vinnumarkaðinn. Margir vinnustaðir telja oft mikilvægt að starfsmenn hafi staðfest starfshæfnisvottorð til 100% starfsgetu í það starf sem þeir voru ráðnir í og því fá þeir ekki tækifæri til að koma aftur til vinnu ef þeir hafa ekki náð því. Hér geta ástæðurnar líka verið kerfislægar hindranir þar sem sumir starfsmenn byrja strax að vinna sér inn veikindarétt þegar þeir koma til vinnu burtséð frá því hvert starfshlutfall þeirra er oft og tíðum. AUKIN ATVINNUTENGING Í STARFSENDURHÆFINGU JÓNÍNA WAAGFJÖRÐ deildarstjóri atvinnudeildar VIRK Sú staðhæfing að „hvíld frá vinnu er nauðsynlegur hluti af meðferðinni“ er röng því þvert á móti þá er í dag lögð áhersla á að einstaklingar haldi áfram við sína daglegu iðju og það að snúa aftur til vinnu eins fljótt og hægt er, er mikilvægur hluti af meðferðinni.“ 30 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.