Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 37

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 37
 VIÐTAL Allt þetta hefur skilað mér á góðan stað í lífinu. Kvíðinn og þunglyndið hafa minnkað mikið og líkamleg heilsa er mun betri en hún var. Ég hugsa oft til þess að ég veit ekki hvar ég væri staddur ef ekki hefði komið til samstarfið við VIRK. Þar fékk ég styrk, andlegan og líkam- legan til að takast á við erfiðleikana.“ með hjálp ráðgjafans og sálfræðingsins, ákvað ég að sækja um að komast í skóla sem mig hafði alltaf langað til að fara í. Sá skóli er í Danmörku og heitir Medie- skolerne Viborg, þar er ljósmyndadeild þessa skóla sem starfar á nokkrum stöðum í Danmörku. Haustið 2012 komst ég inn í skólann. Þá var ég orðinn nokkuð góður í hendinni eftir aðgerðina enda þá liðið rösklega ár frá slysinu. Kærastan mín fór með mér út og var líka í námi. Kvíði og þunglyndi tók sig upp Það var mjög fínt í skólanum en þegar á leið þá fór ég að finna aftur til í hendinni og gat ekki sinnt náminu eins og ég vildi. Samhliða því tók sig upp hjá mér kvíði og þunglyndi. Ég vissi um tilhneigingu mína til þunglyndis frá unglingsárum en sálfræðingurinn vill meina að kvíðinn hafi líka verið undirliggjandi þó ég hafi ekki gert mér grein fyrir því. Ég þrjóskaðist við í skólanum í eitt ár en hætti svo vegna verkja í hendinni, þetta ástand olli mér vaxandi kvíða og þunglyndi. Ég var lítið í sambandi við ráðgjafann minn hjá VIRK á þeim tíma. Hann fylgdi mér eftir í fyrstu en svo lauk því samstarfi þegar ég var búinn að vera úti í um það bil hálft ár. Eftir árið mitt í Medieskolerna í Viborg var ég í Danmörku þar til kærastan mín hafði lokið sínu námi. Þá komum við heim, það var um áramótin 2013-2014. Stuttu eftir heimkomuna talaði ég við heimilislækni minn og hann lagði til að ég myndi aftur leita til VIRK og athuga hvort ég gæti komist í samstarf þar á ný. Það gekk, ég var svo heppinn að lenda á sama ráðgjafa og áður hafði unnið með mér. Í framhaldi af þessu sendi ráðgjafinn mig í samráði við lækni í sérhæft mat. Þar var lagt mat á líkamlega og andlega færni mína. Þar kom fram að líkamlegt ástand mitt, það að vera ofurliðugur og afleiðingarnar af slysinu, kæmi í veg fyrir að ég gæti unnið hvaða vinnu sem væri. Þetta kom mér ekki á óvart. Þarna myndaðist samt dapurleiki innra með mér því ég áttaði mig á að ég myndi aldrei geta unnið fulla vinnu við ljósmyndun. Þá var strax ákveðið að fyrsta úrræðið ætti að vera sálfræðiþjónusta. Ég fór aftur til sama sálfræðingsins sem hafði sinnt mér áður. Við fórum saman í þá vinnu að ég gæti sætt mig við að snúa mér að einhverju öðru starfi. Mér fannst þetta frekar fúlt allt saman. Á meðan ég var að ákveða mig þá var mér af hálfu VIRK boðið að fara á námskeið hjá NTV (Nýja Tölvu- og Viðskiptaskólanum) í myndvinnslu (Photoshop). Það var auka púst fyrir sjálfsmyndina og kveikti á áhuga mínum á prentun. Á endanum, af því að ég var búinn að ljúka prentsmíðanámi sem hefur mikla tengingu við ljósmyndun, þá ákvað ég að fínt væri að stefna á að starfa við prentsmíði. Þegar þarna var komið sögu var ég sendur á námskeið við félagskvíða og samhliða því var í seinna samstarfinu. Mér var synjað um endurhæfingarlífeyri þá vegna þess að ég hafði búið of lengi erlendis. Ég hefði þurfti að bíða í þrjú ár til að fá slíkan lífeyri. Þannig eru reglurnar. Ég varð því að lifa mjög ódýrt. Þetta gekk af því kærastan mín var að vinna og einu sinni fékk ég fjörutíu þúsund krónur frá Félagsþjónustu Kópavogs. Í áliðnum ágústmánuði 2014 þá var álit sálfræðings og ráðgjafans míns hjá VIRK og ekki síst hjá mér sjálfum að nú væri kominn tími á að ég færi í vinnuprófun í einn mánuð. Það gekk mjög vel, eiginlega lyginni líkast ég sendur í sjúkraþjálfun og einkaþjálfun til þess að koma mér í betra líkamlegt ástand. Svo fór ég líka á námskeið sem fól í sér að læra að lifa og vinna þótt maður sé með verki. Flestir sem voru á þessu námskeiði voru með bakverki en þetta hentaði mér líka því ég er einnig með bakverki. Þessi ofurliðleiki hefur áhrif á allan líkamann. Nú er verið að rannsaka möguleika á ofurliðleika sem heilkenni, kallað Ehlers Danlos. Fáir eru með þetta svo vitað sé, kannski einn af hverjum tíu þúsund manns. Stefni á sveinspróf í vor Þess má geta að í fyrra skiptið sem ég var í samstarfi við VIRK fékk ég endur- hæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun Íslands en hann fékk ég aftur á móti ekki hve vel það gekk. Ég er svo heppinn að tengdafaðir minn rekur prentfyrirtæki og þar fékk ég vinnu og vinn þar enn og líkar vel. Ég stefni á að taka sveinspróf í greininni í vor. Samstarfi mínu við VIRK lauk í febrúarbyrjun 2015. Áður hafði ég komist í samband við iðjuþjálfa sem leiðbeindi mér við líkams- beitingu í sambandi við vinnuna. Allt þetta hefur skilað mér á góðan stað í lífinu. Kvíðinn og þunglyndið hafa minnkað mikið og líkamleg heilsa er mun betri en hún var. Ég hugsa oft til þess að ég veit ekki hvar ég væri staddur ef ekki hefði komið til samstarfið við VIRK. Þar fékk ég styrk, andlegan og líkamlegan, til að takast á við erfiðleikana. Fólkið þar er svo tilbúið til að hjálpa.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir 37virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.