Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Qupperneq 45
VIÐTAL
Er margt starfsfólk undir þinni stjórn?
„Ég er yfir allri sjúkraþjálfun á LSH, undir
minni stjórn eru um hundrað manns á átta
starfseiningum og því er í mörg horn að
líta. En vegna þess hve náið samstarf okkar
Halldóru var hafði ég tekið eftir ákveðnum
breytingum í skaphöfn hennar, það var
„styttri í henni þráðurinn“, eins og hún
orðaði það sjálf.
Eftir að Halldóra hafði fengið áfall í vinn-
unni þá kom hún til mín og við ákváðum að
hún „fengi aðeins að hvíla sig,“ svo enn sé
notað orðalag hennar.
Hún kom svo aftur en þá var greinilegt
að hún gat ekki valdið öllu því sem hún
þurfti að gera, þetta var einfaldlega of
mikið fyrir hana eins og hún var þá orðin
til heilsunnar.“
Hefur þú áður séð kulnun í starfi?
„Já, ég er búin að vinna sem yfirmaður í
mörg ár og veit að kulnun er til í ýmsum
myndum og á ýmsum stigum. Í tilviki
Halldóru reyndist kulnunin langt gengin. En
Halldóra hefur þannig persónuleika að það
ástand duldist kannski lengur en ella vegna
þess hve hress hún er að jafnaði í bragði
og hve dugleg hún hefur verið við allskyns
verkefni utan vinnunnar líka. Hún hefur til
dæmis aldrei sagt: „Ég er svo þreytt, ég fer
beint heim að sofa.“ Mikilvægt er að gera
sér grein fyrir að það er margt sem spilar
inn í þegar einstaklingur fær kulnun. Segja
má að þetta tengist lífsstíl viðkomandi
manneskju að töluverðu leyti.
Fólk getur orðið þreytt á vinnunni sinni án
þess að um kulnun sé að ræða. Kannski
er þetta orð ofnotað. Oft grípur fólk til þess
ráðs, ef það finnur fyrir vinnuleiða, að finna
sér ný verkefni. Það getur hjálpað í vægum
tilvikum en ekki þegar fólk er virkilega með
kulnun í starfi, eins og var í tilviki Halldóru.“
Samkennd mikilvæg
í samskiptum
Hefur þú sótt námskeið um kulnun?
„Já, ég hef gert það. Hætta getur verið á
slíku ástandi þar sem álag er óhóflegt eins
og gerist stundum á hinum fjölbreytilegustu
vinnustöðum, inni á heimilum og jafnvel í
tómstundastarfi. Sé hið óhóflega álag utan
vinnustaðar getur hann orðið griðastaður.
Hætta er á kulnun þegar álagið fer yfir
ákveðin mörk. Þá er mikilvægt að traust
og trúnaður ríki og fólk þori að koma og
segja sínum yfirmanni frá líðan sinni.
Þýðingarmikið er þá að því sé vel tekið
og viðkomandi fái stuðning frá yfirmanni
og starfsfélögum. Mikilvægt er líka að
starfsmanni sé gert ljóst að hann eigi
afturkvæmt á vinnustaðinn.
Í tilviki Halldóru þá byrjaði ég á að tala við
hana, síðan, þegar ég áttaði mig á hve brýn
nauðsyn var á að grípa inn í, þá vísaði ég
henni á stuðningsteymi hér á spítalanum,
sem tekur á móti starfsfólki sem á við
veikindi eða kulnun að stríða. Ég get leitað
til stuðningsteymisins og það getur í raun
allt starfsfólk hér á LSH. Sjálf hef ég fundið
fyrir álagi stundum en aldrei fyrir kulnun í
starfi. En allir lenda í margvíslegum áföllum
á lífsleiðinni, svona lagað er eitt af því.
Samkennd er afar mikilvæg í samskiptum
við fólk.“
Hvernig fundust þér úrræði VIRK?
„Mér fannst þau virka mjög vel. Halldóra
var í sambandi við mig í gegnum allt
endurhæfingarferlið. Ég hvatti hana til
þess að koma og vera í sambandi við
vinnustaðinn. Hún gerði það. Hún skrifaði
líka samstarfsfólkinu bréf um líðan sína.
Mér fannst það einkar heppileg ráðstöfun.
Þegar hún kom svo aftur til starfa þá kom
hún á öðrum forsendum en áður. Fólk
breytist við svona áföll. Halldóra er núna
með markvissari stefnu í sínu starfi og
hefur lært að setja sjálfri sér þau mörk sem
gefast vel.“
Hefur þú lært á þessari reynslu Halldóru?
„Já við höfum öll lært mikið af þessu,
einkum mikilvægi þess að grípa fljótt inn
í. Á LSH erum við með starfsmannastefnu
þar sem fram kemur mikilvægi þess að
yfirmaður hafi samband við starfsmann
í veikindaferli. Sem og þýðingu þess að
starfsmaðurinn haldi reglulegu sambandi
við vinnustað sinn. Einnig er fjallað
um endurkomu og að skoðað sé hvort
ástæða sé til að breyta vinnufyrirkomulagi
viðkomandi einstaklings. Þetta hefur allt átt
við í tilviki Halldóru.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Hætta er á kulnun þegar álagið fer yfir ákveðin mörk.
Þá er mikilvægt að traust og trúnaður ríki og fólk þori
að koma og segja sínum yfirmanni frá líðan sinni. Þýðingarmikið er
þá að því sé vel tekið og viðkomandi fái stuðning frá yfirmanni og
starfsfélögum. Mikilvægt er líka að starfsmanni sé gert ljóst að hann
eigi afturkvæmt á vinnustaðinn.“
45virk.is