Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 51

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 51
 VIRK VIÐFANGSEFNI RÁÐSTEFNUNNAR • Hvernig nýtum við okkur ákveðna verkferla inni á vinnustaðnum sem stefna að því að draga úr fjarveru starfsmanna frá vinnu vegna veikinda eða slysa (e. disability management) og eflum þannig atvinnuþátttöku og endurkomu til vinnu? • Hvernig getum við spáð fyrir um það hvort starfsmaður muni koma fljótt/seint til baka í vinnu eftir fjarveru vegna veikinda? • Hafa sjúkdómsgreiningar einhver áhrif á það hvernig við metum hve mikla starfsgetu einstaklingur hefur? • Hvernig samræma vinnustaðir ákveðna stuðningsíhlutun og forvarnir þegar kemur að fjarveru vegna veikinda og endurkomu til vinnu? • Hve áhrifaríkt er IPS-módelið (Individual Placement and Support), sem byggir á einstaklingsmiðaðri atvinnuleit og stuðningi, í að auðvelda einstaklingum að komast aftur inn á vinnumarkaðinn? R áðstefnan sem ber yfirskriftina Vinnum saman – Aukin atvinnutenging í starfs- endurhæfingu á Norðurlöndunum er skipulögð af VIRK í samstarfi við National Centre for Work and Rehabilitation, Linköpings Universitet, Svíþjóð; AIR- National Advisory Unit on Occupational Rehabilitation, Rauland, Noregi; Marselisborg Centret, Public Health and Quality Improvement, Central Region, Danmörk; og Finnish Institute of Occupational Health, Finnlandi. Þema ráðstefnunnar er matsferlið í starfsendurhæfingu og stjórnun þess en auk þess verður sérstök áhersla lögð á samtengingu milli starfsendurhæfingar og vinnustaðarins og hvernig efla megi endurkomu einstaklinga inn á vinnumarkaðinn eftir veikindi og slys. Fjallað verður um mismunandi fyrirkomulag í þessum efnum á milli Norðurlandanna og eftirfarandi viðfangsefni m.a. reifuð: Þátttakendur og fyrirlesarar koma frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Bandaríkjunum, Bretlandi og Íslandi og munu þeir fjalla um rannsóknir og verkefni sem tengjast endurkomu einstaklinga inn á vinnumarkaðinn eftir veikindi eða slys. Sérstök áhersla verður lögð á að skoða „best practice” rannsóknir og gæðaverkefni sem leggja áherslu á að auðvelda samvinnu milli vinnustaða og starfsendurhæfingar sem skila mun einstaklingnum aftur til vinnu á sem skilvirkastan hátt fyrir alla hagsmunaaðila. Ráðstefnan er m.a. ætluð þeim sem vinna við starfsendurhæfingu þ.e. sérfræðingum í endurhæfingu innan trygginga- og heilbrigðisgeirans, ráðgjöfum, rannsakendum, atvinnurekendum og starfsmönnum stéttarfélaga. Ráðstefnan fer fram á ensku. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu ráðstefnunnar á www.virk.is Aðalfyrirlesarar Dr. Tom Burns Dr. Burns er heiðursprófessor í samfélags- geðlækningum við University of Oxford, Englandi. Titill erindis: „Modifying IPS – does it still work?” Dr. Reuben Escorpizo Dr. Escorpizo er prófessor við University of Vermont, Bandaríkjunum og stundar rannsóknir við Swiss Paraplegic Research í Sviss. Titill erindis: „Current and future efforts on using the ICF in work disability.” Dr. William Shaw Dr. Shaw er yfir rannsóknum við Liberty Mutual Research Institute for Safety, í Massachusetts Bandaríkjunum og kennir við University of Massachusetts Medical School, Bandaríkjunum. Titill erindis: „Improving employer policies and practices to prevent disability.” 51virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.