Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 57
AÐSEND GREIN
Skert starfsgeta
Skert starfsgeta getur stafað af líkamlegum
eða sálrænum þáttum og varað í
afmarkaðan tíma eða orðið varanleg.
Einstaklingur með skerta starfsgetu þarf
stundum að hætta störfum um tíma eða
skipta um starf vegna sjúkdóms eða slyss.
Fólki ætti að gefast tækifæri til að reyna
sig í sínu gamla starfi aftur eða reyna sig
í nýju starfi til að kanna getu sína til að
starfa á ný (OECD, 2007; Sameinuðu
þjóðirnar, 2006). Vinnan er fólki mikilvæg,
ekki aðeins efnahagslega heldur veitir
hún einnig félagslega stöðu og félagsleg
tengsl, sem gefa fólki öryggi og lífsfyllingu
(Blustein o.fl., 2008). Þegar einstaklingar
standa frammi fyrir skerðingu á starfsgetu
Mikilvægi meðferðar-
sambands
Gott viðmót og innsæi er forsenda þess
að ráðgjafa takist að mynda góð tengsl
við ráðþega og byggja upp gagnvirkt
meðferðarsamband þar sem báðir aðilar
vinna saman af fullri einlægni og trausti
að lausn mála (Masdonati o. fl., 2009,
2014). Í ráðgjöf skiptir miklu máli að hafa
tengslanet einstaklingsins í huga og horfa
Það kom greinilega
fram í rannsókninni
hversu trúin á bata og jákvæðni
voru eflandi og batahvetjandi
en neikvæður hugsunarháttur
að sama skapi niðurbrjótandi.“
þurfa þeir að endurskoða möguleika
sína og það getur reynt á (Corbière og
Amundson, 2007). Þessu fylgir oft óvissa
og andleg streita og einstaklingum reynist
oft erfitt að skipuleggja framtíðina þar sem
þeir eru einstaklega viðkvæmir í þessum
aðstæðum (Sigrún Hulda Steingrímsdóttir
og Sigríður Halldórsdóttir, 2015) og
þarfnast ráðgjafar og stuðnings (Egan,
2009). Þá eru hvatning og valdefling
mikilvægir þættir, en hvatning inniber trú
á möguleikum einstaklings og valdefling
byggist á jafnrétti í samskiptum, að
einstaklingurinn nái eða viðhaldi stjórn á
eigin aðstæðum og lífi (Blustein o.fl., 2008;
Breeding, 2008). Breytingar á lífi fólks
geta komið skyndilega og reynst erfiðar en
geta líka leitt til nýrra tækifæra (Bussolari
og Goodell, 2009). Við þær aðstæður er
mikilvægt að halda í trú á eigin getu og vera
jákvæður. Það getur haft áhrif á hversu
vel viðkomandi tekst að finna verkefni
við hæfi því ef einstaklingurinn er virkur
í breytingarferlinu getur það auðveldað
honum að komast út í atvinnulífið á nýjan
leik (Jacobs og Blustein, 2008). Einnig
er mikilvægt að atvinnurekendur séu
sveigjanlegir og tilbúnir að aðlaga störfin
að þörfum einstaklinganna. Það er öllum
mikilvægt að hafa merkingarbært hlut-
verk. Í glímu við óvissu eru núvitund og
virkni einstaklingsins mikilvæg bjargráð
(Jacobs og Blustein, 2008; Blustein o.fl,
2008).
Aðlögunarhæfni á starfsferli
Óvæntir atburðir í lífinu geta reynt á
aðlögunarhæfni fólks. Bjargráð einstakl-
ingsins felast m.a. í leikni hans í að bregðast
við þeim aðstæðum sem upp koma (Savicas,
2005; Guðbjörg Vilhjálmsdóttir og Guðrún
Birna Kjartansdóttir, 2009). Sjálfsmynd
einstaklingsins og mat hans á eigin getu
skipta verulegu máli fyrir áframhaldandi
starfsþróun hans og líf. Mikilvægt er að
einstaklingurinn nýti bjargráð sín og sé
virkur í að takast á við breyttar aðstæður
(Ebberwein o.fl., 2004). Þannig hefur hann
áhrif á líf sitt í óvissu og breytingum. Lítið
skref í átt til virkni getur leitt til breytinga
(McMahon og Patton, 2006) samanber
svonefnd „fiðrildaáhrif“. Hið óvænta getur
falið í sér nýja möguleika fyrir einstaklinginn
og það er hlutverk ráðgjafa að opna augu
hans fyrir þeim tækifærum sem breytingar
geta falið í sér (Bussolari og Goodell, 2009).
57virk.is