Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 60

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Síða 60
Endurhæfing, lausnir og tækifæri Þátttakendunum bar saman um að endurhæfing hefði haft afgerandi jákvæð áhrif á bata þeirra, bæði andlega og líkamlega. Einn sagði: „En, þarna [í endurhæfingu] fyrst finn ég virkilega að það var einhver til að hjálpa mér.“ Þessi niðurstaða um heildstæða og faglega þjónustu í endurhæfingu er í samræmi við samanburðarrannsókn Godges o.fl. (2008). Áhugavert er að viðmælendur töluðu allir um að lífsreynsla þeirra hefði falið í sér nýjar lausnir og tækifæri í einhverri mynd. Einn sagði: „...um leið og ég ákveð að gera eitthvað... einhvern veginn breyttist eitthvað [til hins betra]...“ Sumir fóru í nám og aðrir skiptu um starf í kjölfar veikindanna. Allir fundu sína leið, eins og kemur einnig fram hjá Manthei (2007) í eigindlegri rannsókn hans um reynslu ráðþega af ráðgjöf. Mikilvægt er að hver og einn nýti möguleika sína og sé óhræddur við að reyna eitthvað nýtt, það þarf bara að hefjast handa. Sveigjanleiki og opinn hugur fyrir nýjum möguleikum (Bussolari og Goodell, 2009) koma sér vel á síbreytilegum vinnumarkaði þar sem einstaklingarnir þurfa í meira mæli að bera ábyrgð á eigin starfsferli og gæta hagsmuna sinna (Guðbjörg Vilhjálmsdóttir og Guðrún Birna Kjartansdóttir, 2009). Mikilvægi ráðgjafar og virkrar hlustunar Í frásögnunum komu fram skýr dæmi um hvað það getur hvatt og hjálpað að „læra að tala“ um vandann, deila reynslu sinni með öðrum sem eru í sömu sporum og hversu jákvætt það er að fá hvatningu frá þeim. Þátttakendur lýstu hversu erfitt þeim þótti það þegar ekki var hlustað á þá og efast var um orð þeirra. „Því að ég þekki það... að það sé ekkert hlustað.“ Þegar einhver sannarlega hlustar, þá er það allt annað: „Hann [læknirinn] hlustaði á mig... sem mér fannst alveg frábært.“ Áðurnefnd rannsókn Manthei (2007) endurspeglar vel mikilvægi þessara þátta. Hjálplegt getur verið fyrir einstaklinginn að segja sína sögu. Það auðveldar honum að tengja saman fortíð sína, nútíð og framtíð. Þannig nær hann að endurskapa sögu sína og finna nýjar lausnir. Í ráðgjöf skiptir miklu máli í því að styðja og hvetja ráðþega við mótun nýrra hugmynda um sig og möguleika sína og aðstoða þá við að finna nýjar leiðir (Patton og McMahon, 2006). Flestir þátttakenda upplifðu skort á ráðgjöf og leiðsögn, bæði um hagnýt mál og sálrænan stuðning. Einn þátttakandi sagði: „En ég sé svona eftirá... eftir þeim tíma að hafa bara ekki notað hann til einhvers bara þroskandi, fara í nám eða eitthvað.“ Niðurstöður okkar sýna mikilvægi ráðgjafar og stuðnings í endurmenntun og í starfsendurhæfingu, sem er í samræmi við niðurstöður úr öðrum rannsóknum um gæði ráðgjafar og ráðgjafarsambands (Plant og Turner, 2005). Mikilvægi nærveru og umhyggju Áhrifamestu lýsingarnar í viðtölunum snérust um umhyggju eða skort á henni. Einn sagði um reynslu sína af umhyggjuleysi: „Þessari manneskju var náttúrulega nákvæmlega sama um það hvernig mér leið...“ Sami þátttakandi lýsir gagnstæðu viðmóti frá öðrum fagmanni og ber saman: „...þessi kona... vissi hvað hún var að gera... Hún var að hugsa um það hvernig mér leið...“ Þátttakendur lýstu einnig þörf sinni fyrir umhyggju og nærveru á erfiðum stundum. Einn þátttakanda sagði: „Þú þarft ekki að ... gera eitthvað. Bara að vera.“ Eftir reynslu sína töldu þátttakendur að fagfólk þyrfti í senn að sýna tilfinningalega næmni fyrir líðan annarra og faglega færni, eins og Sigríður Halldórsdóttir, (2006) skilgreinir faglega umhyggju. Þátttakendur bentu ennfremur á að fagfólk þyrfti að gefa eitthvað af sjálfu sér persónulega því þeir þyrftu ekki aðeins að sýna sína faglegu hlið heldur einnig sína mannlegu hlið. Einn þátttakandi talaði fyrir marga þegar hann sagði: „Það er ekki nóg að vera góður fagmaður ef mannlegu samskiptin eru ekki í lagi“ og að „það skipti öllu máli hvernig viðmót persónan sýnir þér, hvort hún er hlý og gefandi.“ Að mati þátttakenda sýnir góður fagmaður velvild og einlægan áhuga á velferð einstaklingsins og kemur fram af umhyggju og virðingu án þess að dæma eða sýna yfirburði. Lokaorð Megin tilgangur þessarar rannsóknar var að draga fram hvernig hægt væri að bæta þjónustu við fólk sem er að takast á við skerta starfsgetu. Áhersla var lögð á endurhæfingu, bataferli fólks og leið þeirra út í lífið á nýjan leik. Í rannsókninni kom fram nauðsyn þess fyrir einstaklinginn að hafa einn tengilið sem fylgdi honum í gegnum bataferlið þannig að samfella myndaðist í stuðningi og ráðgjöf. Betra samstarf á milli kerfa og stofnana myndi ennfremur stuðla að betri þjónustu. Á síðustu árum hefur aukin og bætt starfsendurhæfingarþjónusta komið að verulegu leyti til móts við þessar þarfir fyrir samfellu og stuðning á endurhæfingartímabilinu, sem lýst er í rannsókninni. Stuðningur frá sérfræðingum, jafningjastuðningur og stuðningur fjölskyldu og vina var ómissandi fyrir einstaklingana þegar þeir voru að takast á við bataferlið. Ennfremur sýndi sig hversu mikilsvert það er fyrir einstaklinginn sjálfan að vera virkur. Símenntun og endurmenntun höfðu líka mikið að segja. Í tengslum við endurmat einstaklingsins á möguleikum sínum hvað varðar menntun og atvinnu skiptir góð náms- og starfsráðgjöf miklu máli. Rannsóknin dró fram mikilvægi viðmóts fagfólks þegar einstaklingurinn þarf á stuðningi að halda því aðgát skal höfð í nærveru sálar. Einstaklingur sem er að takast á við skerta starfsgetu, vegna veikinda eða slyss, upplifir aukið varnarleysi í þessum tilvistarlegu breytingum og þarf góða ráðgjöf og leiðsögn frá sérfræðingum sem sýna virðingu og eru allt í senn umhyggjusamir, faglegir og mannlegir. Á síðustu árum hefur aukin og bætt starfsendur- hæfingarþjónusta komið að verulegu leyti til móts við þessar þarfir fyrir samfellu og stuðning á endurhæfingartímabilinu, sem lýst er í rannsókninni.“ 60 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.