Skessuhorn - 29.05.2019, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201910
Björgunarsveitin Ósk í Dölum
hefur nú fengið afhenta glæsi-
lega viðbót í björgunartækjaflór-
una, en það er nýtt sexhjól af gerð-
inni CanAm Outlander MAX 6x6
1000cc, tveggja sæta. Hjólið hefur
góða burðargetu, sjálfstæða fjöðr-
un, sturtanlegan pall auk 70 lítra
geymslupláss undir palli. í hjólinu
er 82 hestafla Rotax vél og dráttar-
getan er upp á 1140 kg.
„Þetta er kraftmikið alhliða
vinnutæki sem tekst auðveldlega á
við erfiðar aðstæður,“ segir Guð-
mundur St. Valdimarsson björg-
unarsveitarmaður hjá Ósk. „Hjól-
ið er hlaðið aukabúnaði en undir
það voru sett stærri dekk, 27x12x12
Maxxis Bighorn, loftdæla og for-
gangsljós, dráttarkúla, 7 póla tengi,
1500kg Warn spil ásamt því að
45 lítra farangurskassi var settur
framan á hljólið. Björgunarsveit-
in lét einnig bæta við vindhlíf og
gleri framan á hjólið ásamt tveimur
LED ljósum í vindhlíf. í handföng-
um er hiti og bensíngjöf ökumanns.
Hjólinu fylgdi einnig beltabúnaður
sem gerir björgunarsveitarmönn-
um kleift að nýta hjólið við erfiðar
vetraraðstæður.“
Fyrir hönd Björgunarsveitarinnar
Óskar vill Guðmundur koma fram
þakklæti til allra þeirra sem stutt
hafa við bakið á Björgunarsveitinni
Ósk í gegnum árin og þannig gert
sveitinni kleift að bæta enn frekar
í tækjabúnaðinn. Þótt hjólið sé nú
ríkulega hlaðið aukabúnaði er ætl-
unin að bæta um betur en meðal
þess sem er framundan er að bæta
við merkingum félagsins og setja
upp GPS staðsetningartæki, festa
á hjólið auka bensíntank og smíða
festingar fyrir sjúkrabörur á pall-
inn. Með hjólinu var einnig keypt-
ur öryggisbúnaður fyrir ökumenn,
þ.e. tveir hjálmar og tvær brynjur.
Þeir sem hafa áhuga á að styrkja
Björgunarsveitina Ósk geta lagt inn
á bankareikning 0312-26-5354,
kt.620684-0909. sm
Áhugafólk um handverk sem býr
í Snæfellsbæ hefur flutt í nýtt og
glæsilegt húsnæði að Norðurtanga
3 í Ólafsvík. Alls eru 22 einstakling-
ar sem standa að þessum hópi og
eru þeir á breiðu aldursbili, frá 20 til
85 ára. Margrét Vigfúsdóttir er ein
þeirra sem standa að galleríi Jökli.
Hún segir í samtali við Skessu-
horn að áður hafi hópurinn verið í
Pakkhúsinu í Ólafsvík en hópurinn
missti þá aðstöðu og hefur nú feng-
ið inni á Norðurtanga og margar
hendur komið að því að undirbúa
húsnæðið. Margrét segir að gallerí-
ið sé með handunnar vörur eins og
lopapeysur, vettlinga og glervörur
á boðstólnum. „Við höfum áhuga á
að skapa fallegt handverk og svona
verkefni þjappar hópnum saman.
Við auglýsum ekkert þessa opnum
en samt sem áður urðum við ánægð
með þann fjölda gesta sem heim-
sótti okkur í dag,“ sagði Margét
þegar rætt var við hana á laugardag-
inn. Hópurinn vill koma því á fram-
færi hann er með síðu á Facebook
sem allir geta skoðað. af
Gunnar Svanlaugsson er fæddur
og uppalinn í Stykkishólmi. Eftir
að hafa lokið kennaraprófi starfaði
hann í átta ár við Héraðsskólann
í Reykholti. „Þar starfaði ég með
ótrúlega öflugu fólki, kennurum,
almennum starfsmönnum sem og
nemendum. Margir úr þessum hópi
eru mínir tryggustu félagar í dag og
segir það töluvert um þann anda
sem ríkti í slíku umhverfi sem hér-
aðsskólarnir voru á þessum tíma,“
segir Gunnar. Árið 1984 lá leið-
in í Stykkishólm þar sem Gunn-
ar tók við afleysingum yfirkennara,
sem í dag heitir aðstoðarskólastjóri.
Hann fékk svo fasta stöðu við skól-
ann ári síðar og árið 1994 tók hann
við stöðu skólastjóra og gegndi því
starfi til ársins 2016 þegar hann
ákvað að leita að öðrum verkefnum
eftir 40 ár í skólastarfinu. „Árin hér
við Grunnskólann í Stykkishólmi
voru yndisleg og um leið gefandi og
höfum við Hólmarar verið ótrúlega
heppnir með bæði starfsfólk sem
og nemendahópana hverju sinni og
meina ég þá í öllum skólunum okk-
ar þremur,“ segir Gunnar.
Skemmtanastjóri
á Tenerife
Þegar Gunnar hætti skólastarfinu
bauðst honum starf skemmtana-
stjóra á Tenerife með aldurshópinn
60 plús. „Þar hef ég starfað með
fjóra til fimm hópa á hverjum vetri
og nýt þess virkilega. í dag starfa ég
með Heimsferðum og hlakka ótrú-
lega til hverrar ferðar. Öll þessi
verkefni eru í raun mjög svipuð og
næ ég því að nýta mér allt það sem
ég hef áður lært með öllu því frá-
bæra fólki sem ég hef verið sam-
ferða hingað til,“ segir Gunnar.
„Mitt lífsmottó hefur alla tíð
verið; Taktu svo vel á móti hverri
manneskju að hún hafi áhuga á að
hitta þig aftur. Þetta lífsgildi nota
ég mjög í öllum þeim verkefnum
sem ég hef tekið að mér og líð-
ur mér mjög vel með það. Á Te-
nerife vinn ég mikið með gleðina
og væntumþykjuna og geri allt sem
ég get til að fólkinu í kring um mig
líði sem best. Það verður svo margt
mun þægilegra ef okkur líður vel og
brosið hefur svo mikið að segja,“
segir Gunnar. „Brosið kostar ekk-
ert og það eru svo miklar líkur á að
við fáum bros á móti ef við splæsum
í eitt slíkt,“ bætir hann við. Hann
segir mikilvægt sem skemmtana-
stjóri að miða afþreyinguna alltaf
að hverjum hópi fyrir sig og segir
það svipa mjög til þess sem gert er
í skólunum.
Býður upp á leiðsögn
um Hólminn og
Snæfellsnes
„Ég er gríðarlega stoltur af því
sem að við Heimsferðarfólk erum
að bjóða þessum aldurshópi upp
á í dag og hafa í raun orðið mikl-
ar breytingar á öllu framboði fyrir
60 plús hópinn undanfarin nokk-
ur ár, og er það vel,“ segir hann.
„Ferðir okkar fyllast mjög fljótt og
hljótum við að túlka það þannig að
við séum að gera eitthvað rétt og
meira að segja koma sumir aftur og
aftur.“
Ferðirnar til Tenerife eru farn-
ar á veturna og Gunnar fór því að
hugleiða hvað hann gæti gert á vor-
in og sumrin. „Ég hef verið þeirrar
skoðunar að við Hólmarar sem og
Snæfellingar höfum verið að gera
prýðilega hluti í móttöku ferða-
fólks en alltaf getum við bætt okk-
ur, það þekkjum við vel og þann-
ig eigum við að hugsa. Því ákvað
ég að bjóða fram krafta mína sem
fylgdarmaður eða leiðsögumaður
fyrir einstaklinga sem og hópa hér
í Hólminum og jafnvel Snæfells-
nesinu öllu. Ég hef tekið þátt í slík-
um verkefnum svona á lausa tím-
anum hingað til en nú ákvað ég að
auglýsa mig formlega og er þeg-
ar búinn að bóka töluvert í sumar
og nú þegar unnið með nokkrum
hópum,“ segir Gunnar.
„Ég elska lífið“
Snæfellsnes er vinsæll áfangastaður
og þangað kemur fjöldi skemmti-
ferðaskipa, sérstaklega í Grundar-
fjörðinn og einnig í Hólminn og
hefur Gunnar bókað sig í nokk-
ur verkefni með farþegum þessara
skipa. „Það er ótrúlega gefandi að
fá að rölta með áhugasömu ferða-
fólki hvaðan sem úr heiminum það
kemur, og gefa af sér því sann-
arlega vinn ég áfram samkvæmt
mínu lífsmarkmiði þótt ég efist
nú um að margir að þessum ferða-
löngum mæti aftur á Snæfellsnesið,
en hver veit og af hverju skildi það
ekki vera? Já, svona líða nú dag-
arnir, vikurnar, mánuðirnir og um
leið árin hér í Hólminum og það er
sannarlega algjör óþarfi að láta sér
leiðast því um leið og maður hættir
að hafa gaman af lífinu og að leika
sér þá verður maður fyrst gam-
all og leiðinlegur,“ segir Gunnar.
„Þetta gerist allt í höfðinu á okk-
ur sjálfum og því stjórnum við best
sjálf. Ég bara elska lífið og er þakk-
látur fyrir allt sem ég hef náð að
gera hingað til og fyrir það þakka
ég með því að dreifa brosinu og
gleðinni áfram til þerra sem hafa
áhuga á að hitta mig aftur,“ bætir
hann við að endingu. arg
Björgunarsveitin Ósk fær vel
búið sexhjól í flotann
Félagar í Ósk f.v: Guðmundur St. Valdimarsson, Benedikt Máni Finnsson, Óskar
Páll Hilmarsson og Guðmundur Guðbjörnsson.
Heiðrún Hallgrímsdóttir, Svanfríður Þórðardóttir, Margrét Vigfúsdóttir og Rakel
Ósk Gunnarsdóttir í galleríinu Jökli.
Gallerí Jökull fluttur
í nýtt húsnæði
Steig til hliðar eftr 40 ár í skólastarfinu og er nú leiðsögumaður
„Lífsmottó að taka svo vel á móti hverri manneskju
að hún hafi áhuga á að hitta þig aftur“
Í sumar mun Gunnar taka á móti fólki og fræða það um Stykkishólm og nægrenni á Snæfellsnesi. Ljósm. sá.