Skessuhorn - 29.05.2019, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201912
TIL LEIGU
Digranesgata 6, 770 fm² verslunarrými við
þjóðveginn. Rými með góðri vörumóttöku
og nægum bílastæðum.
Halldór Jensson, sölustjóri, veitir nánari upplýsingar
í síma 840 2100 eða halldor@reitir.is
Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000
Kaldilækur er lítið kaffihús sem
staðsett er í Sjómannagarðinum
í Ólafsvík og hefur það verið rek-
ið á sumrin síðan 2017 af bræðrun-
um Antoni Jónasi og Ólafi Hlyni
Illugasonum. Breyting verður á
rekstrinum í sumar en síðastliðinn
laugardag opnaði Kaldilækur aftur
þetta sumarið. Það eru þau Sigur-
björg Jóhannesdóttir og Daði Rún-
ar Einarsson sem sjá um rekstur-
inn í sumar. Aðspurð sagði Sigur-
björg að þar sem Anton væri far-
inn að vinna í Reykjavík og Óli væri
úti á sjó hefðu þeir ekki séð sér fært
að reka Kaldalæk í sumar. Fannst
henni og Daða ómögulegt að láta
þetta standa autt og hafði langað
að gera eitthvað sjálf, stukku þau
því á tækifærið og tóku við Kalda-
læk. Þar sem þau eru bæði í fullri
vinnu annars staðar mun Sæbjörg
systir Sigurbjargar standa vaktina
á Kaldalæk í sumar. Ætla þau að
reka kaffihúsið með svipuðu sniði
og verið hefur þó að þau hafi gert
smávægilegar breytingar á matseðl-
inum. Munu þau í sumar bjóða upp
á súrdeigsbrauð með vali um hum-
mus eða salat, graut og bakkelsi.
Auk þessa ætla þau að halda áfram
að bjóða upp á eins ferskt kaffi og
mögulegt er. Svipaður opnunar-
tími verður áfram og verið hefur
en opið verður á virkum dögum frá
8 á morgnanna til 17 og um helgar
frá kl. 10 til 17. Ætlunin er einn-
ig að vera með kvöldopnun á föstu-
dögum og laugardögum og mun þá
verða opnað aftur klukkan 20 og
ræðst það svolítið af stemningunni
hverju sinni hve lengi verður opið.
Fór sumarið vel af stað hjá þeim þá
daga sem hefur verið opið og eru
þau mjög spennt fyrir því að taka á
móti gestum. þa
Taka við rekstri
Kaldalækjar í sumar
Þrjátíu og tveir nemendur braut-
skráðust frá Stóriðjuskóla Norður-
áls í maí, fjórtán úr grunnnámi og
átján úr framhaldsnámi. Skólinn
hefur verið starfræktur frá árinu
2012 og hafa 164 nemendur út-
skrifast frá honum á þessum tíma.
„Tilgangur námsins er að auka
kunnáttu og öryggi starfsfólks, efla
starfsánægju, auka verðmætasköp-
un og styrkja samkeppnisstöðu fyr-
irtækisins. Einnig má líta á Stór-
iðjuskólinn sem framlag Norðuráls
gagnvart ákalli um aukna mennt-
un á sviði iðnaðar hér á landi, jafn-
framt því sem markmið skólans falla
að áherslum á þekkingu, tækniþró-
un og umhverfi nýsköpunar,“ segir
í tilkynningu.
Hópurinn nú í vor er sjá sjötti
sem brautskráist frá Stóriðjuskól-
anum. Um 80% þeirra sem hafa
lokið námi eru í starfi hjá Norður-
áli en aðrir hafa kosið að afla sér
enn frekari menntunar. Norður-
ál er í samstarfi við Símenntunar-
miðstöðina á Vesturlandi og Fjöl-
brautaskóla Vesturlands um námið,
en auk þess koma sérfræðingar frá
Norðuráli að kennslunni.
mm/sb
Hópurinn sem útskri-
faðist úr framhaldsnámi
við Stóriðjuskólann
ásamt forsvarmönnum
fyrirtækisins.
Útskrift frá
Stóriðjuskóla Norðuráls
Hópurinn sem útskrifaðist úr grunnnámi Stóriðjuskólans ásamt forsvarmönnum
fyrirtækisins.