Skessuhorn - 29.05.2019, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201922
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Josephine Mayr er 29 ára gömul
kona sem fæddist í Þýskalandi árið
1990. Faðir hennar er þýskur en
móðir hennar frönsk. Hún fluttist
14 ára til Frakklands með móður
sinni eftir skilnað foreldra hennar.
Þar komst hún í kynni við siglingar
og heillaðist af hafinu. Eftir að hafa
reynt fyrir sér í alls lags vinnu, oftast
tengdri sjó, fann hún ísland. Hafði
heillast af landinu í gegnum Nonna
og Manna þættina. Nú finnst henni
hún vera komin „heim.“ Jo keypti
nýverið hús á Arnarstapa og starfar
hjá Láka Tours í Grundarfirði.
Var send á
siglinganámskeið
„Ég fæddist í Munchen í Þýskalandi
og bjó þar ásamt foreldrum mín-
um til 14 ára aldurs. Þá skildu for-
eldrar mínir og ég flutti með móð-
ur minni til Parísar,“ segir Jo eins
og hún er jafnan kölluð. Fljótlega
fluttu þær mæðgur þó á Bretaníu-
skagann í Frakklandi þar sem hún
kynntist siglingum. „Móðir mín
sendi mig á siglinganámskeið þegar
ég var 16 ára gömul og þar heillað-
ist ég af sjómennsku. Fyrstu kynni
mín af siglingum voru þarna á eins
manns seglbátum sem ég sigldi á
námskeiðinu.“ Jo fór þarna nokk-
ur sumur í röð og var orðinn leið-
beinandi á námskeiðinu. „Mér
fannst þetta svo gaman að ég gerð-
ist leiðbeinandi þarna til að sleppa
við námskeiðsgjöldin,“ segir hún
hlæjandi. Fljótlega var hún farin að
keppa í siglingum í keppnisliði sem
hét Team Jolokia. „Ég tók eitt tíma-
bil með þeim og það var ofboðslega
gaman,“ segir Jo þegar hún rifjar
þetta upp. „Tímabilið var eitt ár en
keppt var um helgar og voru keppn-
isleiðirnar misjafnlega langar. Ætli
þetta hafi ekki verið um fjörutíu
til fimmtíu dagar á sjó þetta árið,“
bætir hún við. Þarna var hún 24 ára
og búin að læra hönnun meðfram
þessu. „Þarna hætti ég í hönnunar-
námi og fór að vinna í seglagerð í
Frakklandi. Ég fékk fljótlega tæki-
færi til að vinna hjá enn stærri segla-
gerð í Bretlandi og stökk á það. Mér
fannst það samt frekar leiðinlegur
vinnustaður og flutti fljótlega eftir
það til Grikklands þar sem ég fékk
vinnu hjá annarri seglagerð ásamt
því að kenna siglingar.“
Lærði af biturri reynslu
Eftir ævintýrið í Grikklandi skipti
hún algjörlega um starfsvettvang
og réði sig á skíðahótel í frönsku
Ölpunum. „Þetta var nokkurs kon-
ar húsvarðarstarf þar sem ég sinnti
viðhaldi á stóru skíðahóteli. Ég fór
þó fljótlega að hugsa mér til hreyf-
ings aftur þar sem yfirmaður minn
var erfiður og okkur samdi illa.“
Þá sá hún auglýsingu sem heill-
aði hana. „Það var verið að leita að
umsjónarmanni verkefnis um að
setja á laggirnar sjóbjörgunarfyrir-
tæki í Bangladesh. Þetta höfðaði til
mín og ég stökk á þetta tækifæri og
réði mig þangað í tvö ár. Það æv-
intýri stóðst engan veginn vænting-
ar og ég var komin aftur upp í flug-
vél eftir tvo mánuði. Þetta var mjög
slæm reynsla, erfiðar og mjög krefj-
andi aðstæður. Ég óttaðist jafnvel
um líf mitt á tímabili og ákvað að
segja skilið við þetta verkefni,“ út-
skýrir hún.
Þarna segist hún hafa lært dýr-
mæta lexíu, svo sem að stökkva ekki
á öll tækifæri bjóðast, heldur velja
frekar eftir áhuga og að vel ígrund-
uðu máli. Aftur lá leiðin í frönsku
Alpana og var Jo 26 ára gömul þegar
þarna var komið við sögu. „Ég réði
mig á fjögurra stjörnu hótel með
yfir 200 herbergjum þar sem ég
sinnti viðhaldi og hljóp í hin ýmis
störf.“ Yfirmaður Jo á þessu hóteli
var frábær og undi hún hag sínum
vel þarna uppi í fjöllum. „Ég varð
samt fljótlega eirðarlaus og fann að
hafið kallaði á mig.“
Nonna og Manna þætt
irnir komu sterkir inn
Hugur Jo reikaði oft til íslands og
var þessi fámenna eyja henni of-
arlega í huga. „Ég held að skýr-
inguna á þessari íslandsdýrkun
minni megi rekja til Nonna og
Manna þáttanna,“ segir Jo. „Ég
horfði örugglega fimmhundruð
sinnum á þessa þætti þegar ég var
barn í Þýskalandi og eldri systk-
ini mín voru komin með hundleið
á þessu,“ rifjar hún upp brosandi.
„Ég var líka mjög heilluð af hvöl-
um og því lá beinast við að finna
eitthvað í þessum geira,“ seg-
ir hún. „Ég er of þýsk til að búa í
Frakklandi og of frönsk til að búa í
Þýskalandi,“ bætir hún við. Jo sótti
um hjá þremur hvalaskoðunarfyr-
irtækjum á íslandi og var Láki To-
urs í Grundarfirði eitt af þeim. „Ég
var óratíma að semja umsóknina
og var mjög stressuð þegar tölvu-
póstarnir fóru loksins frá mér,“
rifjar hún upp. Hún fékk fljótlega
neikvætt svar frá fyrsta fyrirtæk-
inu og svo kom póstur frá Láka
Tours. „Fyrst kom svar um að það
væri erfitt að fá vinnu á þeim tíma-
punkti og að tímabilið væri búið,“
rifjar hún upp. „Svo fljótlega kom
annar póstur frá Láka þar sem ég
var spurð hvort að ég gæti komið
eftir tíu daga,“ segir hún hlæjandi
er hún rifjar þetta upp. „Ég stökk á
það tækifæri og sumarið 2017 var
ég orðin hvalaleiðsögumaður hjá
Láka Tours.
Sterk tenging
við Paimpol
Jo segir það hafa verið mjög
skemmtilegt þegar hún kom fyrst
til Grundarfjarðar og sá þessa
tengingu sem var frá bænum við
Paimpol í Frakklandi, en hún bjó
nærri Paimpol þegar hún var yngri.
„Fegursti hluti Frakklands,“ seg-
ir hún stolt. Þegar tímabilinu lauk
í Grundarfirði fór hún að vinna
hjá öðru hvalaskoðunarfyrirtæki
á Norðurlandi og var þar í tvo
mánði. „Eftir það kláraði ég vetur-
inn sem jöklaleiðsögumaður á Sól-
heimajökli á Suðurlandi. Ég hafði
samt eiginlega ekki lappir í þetta
jöklabrölt þannig að fjórum mán-
uðum síðar kom ég aftur til Láka
Tours í mars 2018.“
Komin með
skipsstjórnarréttindi
Jo hefur starfað hjá Láka Tours eft-
ir þetta en síðastliðinn vetur var
hún í tveggja mánaða fríi þar sem
hún skellti sér í nám til Bretlands.
„Ég tók tvo mánuði í vetur og náði
mér í skipstjórnarréttindi í Bret-
landi. Ég er nú bara nýkomin heim
og með plagg í farteskinu sem seg-
ir að ég sé skipstjóri,“ segir hún
stolt. „Mér líður afskaplega vel á
íslandi og mér er farið að líða eins
og heima hjá mér hérna á Snæfells-
nesi.“ Jo er nýbúin að kaupa lít-
ið hús á Arnarstapa þar sem hún
býr eða leigir út til skiptis. „Það er
mikil skuldbinding að kaupa fast-
eign en það er kannski merki þess
að ég vilji setjast einhvers staðar
að eftir að hafa verið á flakki nán-
ast allt mitt líf,“ segir þessi unga
kjarnakona að endingu.
tfk
Jo í starfi sínu hjá Láka Tours að fræða
farþega um hvali.
Of þýsk til að búa í Frakklandi og
of frönsk til að búa í Þýskalandi
Josephine Mayr við Kirkjufell í Grundarfirði.
Í kröppum dansi á keppnisskútu Team Jolokia.
Lið Team Jolokia á siglingu. Jo er hér fremst á skútunni á siglingu.