Skessuhorn - 29.05.2019, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201924
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Eftir sameiningu Ólafsvíkurkaup-
staðar, Neshrepps utan Ennis,
Breiðuvíkurhrepps og Staðarsveitar
varð sveitarfélagið Snæfellsbær til í
júní 1994. Ákveðið var að búa til
nýtt starf hafnarstjóra, sem myndi
verða yfirmaður hafnarmála í hinu
nýja sveitarfélagi. Auglýst var eftir
umsóknum, Björn Arnaldsson var
ráðinn og hefur gegnt starfinu all-
ar götur síðan.
„Ég hef verið hafnarstjóri síðast-
liðin 25 ár, eða frá því haustið 1994.
Næstum jafn lengi og Snæfellsbær
hefur verið til,“ segir Björn í sam-
tali við Skessuhorn. „Tíminn líður
hratt og ég átta mig sjaldnast á því
að ég sé búinn að vera svona lengi.
Nánast allan þennan tíma hef-
ur verið mikið um að vera og allt
á fullu svingi, miklar framkvæmd-
ir á hverju ári frá því ég byrjaði,“
bætir hann við. „Ég var einmitt að
taka það saman um daginn að bara
síðasta áratug hefur Hafnarsjóður
Snæfellsbæjar lagt út fyrir fram-
kvæmdum upp á 1,3 milljarða, en
hafnabótasjóður borgar hluta af
þessum framkvæmdum,“ segir hann
og bætir því við að framkvæmdum
sé hvergi nærri lokið.
Allsstaðar eitthvað
framkvæmt
„Hafnarframkvæmdir, viðhald og
annað slíkt, eru eilífðarverkefni.
Núna vorum við einmitt að bjóða út
lengingu Norðurgarðs hafnarinn-
ar í Ólafsvík. Hann verður lengd-
ur um 80 metra og er það stærsta
framkvæmdin sem fyrir liggur á
þessu ári,“ segir hafnarstjórinn.
„í áranna rás hafa allar hafnirnar í
bæjarfélaginu tekið töluvert mikl-
um breytingum. Rifshöfn hefur
líklega breyst einna mest. Við lög-
uðum innsiglinguna með því að
byggja tvo nýja grjótgarða, ann-
an 500 metra og hinn 300 metra
langan. Nú er innsiglingin þar orð-
in mjög góð og mun betri aðstaða,
en ásýndin hefur auðvitað breyst
töluvert líka,“ segir Björn. „í Rifi
hafa líka öll hafnarmannvirkin ver-
ið endurbyggð, nema 120 metra
stálþil. Ég veit ekki hvort það verð-
ur endurnýjað áður en ég hætti að
vinna, þar sem þessi framkvæmd
er ekki komin inn á fimm ára sam-
gönguáætlun,“ segir hann, en Björn
er 65 ára gamall frá því í janúar. „í
Ólafsvík hafa ekki orðið eins mikl-
ar breytingar á hafnarmannvirkjun-
um sjálfum og í Rifi. Bæði hafa þó
verið byggðar nýjar þekjur á stál-
þilin, trébryggjan var endurbyggð
sem og grjótgarðarnir,“ segir hann.
„Á Arnarstapa höfum við einnig
framkvæmt nokkuð en ekki mikið
undanfarinn áratug eða svo. Grjót-
garðurinn var endurbyggður á sín-
um tíma og lengdur, ný þekja lögð
á. Aðkoman að höfninni var síðan
löguð og húsið var tekið í gegn að
innan.“
Áhersla á snyrtileg
hafnarsvæði
En ásýnd hafnanna hefur ekki að-
eins breyst vegna framkvæmda
og viðhalds við hafnarmannvirk-
in. „Árið 2001 var ákveðið að setja
umhverfismarkmið fyrir allar hafn-
irnar og ráðist hefur verið í ýmis
verkefni þeim tengdum allar göt-
ur síðan. Þau geta til dæmis falið
í sér að steypa götur og gangstétt-
ir eða setja upp götulýsingu, þöku-
leggja opin svæði, byggja útsýnis-
palla, raða grjóti, taka til og fleira.
Alltaf er markmiðið þó það sama;
að hafnirnar verði snyrtilegri fyrir
vikið og ásýnd þeirra betri,“ segir
hann. „Skemmst er frá því að segja
að þetta hefur gengið afar vel. Á
hverju ári höfum við tekið einhver
svæði fyrir og gert það snyrtilegt og
fínt. Ég er mjög stoltur af þessum
umhverfisverkefnum okkar. Hafn-
irnar okkar eru orðnar mjög snyrti-
legar, þó auðvitað ljúki þessu aldrei.
En það er mikill munur frá því sem
áður var og eftir því sem er snyrti-
legra þá verður umgengnin betri,“
segir Björn. „Síðan á Hafnarsjóður
Snæfellsbæjar höfnina á Hellnum
og bryggju á Búðum. Þar er aldrei
landað neinum fiski en við reynum
engu að síður að halda þessum stöð-
um snyrtilegum og í lagi, fyrst og
fremst til að þær séu öruggar. Fólk
fær sér oft göngutúr niður á bryggj-
una á Búðum og Hellnum, tekur
myndir og skoðar sig um. Við lent-
um reyndar í því í vetur að bryggjan
á Hellnum skemmdist. Við þurft-
um að loka henni og erum að vinna
í því með Vegagerðinni hvernig
við getum lagað hana,“ segir hann.
„Stóru verkefnin á þessu ári eru
hins vegar lenging Norðurgarðsins
í Ólafsvík en einnig verður höfn-
in dýpkuð á Arnarstapa. Ætlun-
in er að stækka töluvert það svæði
hafnarinnar sem er þriggja metra
djúpt. Það er orðið svo mikið um
þessa stærri smábáta að við þurf-
um einfaldlega meira pláss í höfn-
inni. Þá ætlum við að malbika um
7.000 fermetra á hafnarsvæðum
Ólafsvíkur og Rifshafnar. Síðan á
að taka Hafnarhúsið hérna í Ólafs-
vík í gegn, bæði að utan og innan.
Það stendur til að gera á þessu ári
enda tími til kominn. Við viljum
hafa húsið flott og snyrtilegt. Þetta
eru stærstu verkefni ársins. Einnig
má nefna að á þessu ári verður far-
ið í lokafrágang á 207 metra stálþili
í Rifi sem byrjað var á árið 2017,“
segir Björn. „Á næstu árum liggur
síðan fyrir að við þurfum að end-
urbyggja allt stálþilið á bryggjunni
við Norðurtangann í Ólafsvík og að
stækka trébryggjuna við enda þeirr-
ar bryggju. Það myndi bæta lönd-
unaraðstöðu smábáta mikið,“ segir
hann. Þá er nauðsynlegt að dýpka
hafnirnar í Rifi og Ólafsvík, bæði í
innsiglingu og innan hafnanna. Auk
þess ætlum við að halda áfram með
umhverfisverkefnin okkar.“
Líkaði vel á sjónum
Áður en Björn tók við starfi hafnar-
stjóra var hann lengi á sjó. „Ég kom
til Ólafsvíkur 1975 til að fara á sjó-
inn, þá 21 árs gamall. Fyrsti bátur-
inn sem ég var á var Halldór Jóns-
son SH-217, 95 tonna trébátur sem
var smíðaður af KEA á Akureyri.
Skipstjóri var þá Brynjar Krist-
mundsson. Fyrst var ég á Halldóri
sem háseti en seinna sem annar vél-
stjóri,“ segir hann. „Ég var á þess-
um bát til 1990 að mig minnir. Eft-
ir það var ég í tvö ár háseti á Svein-
birni Jakobssyni,“ bætir hann við.
„Þetta voru opnir trébátar, báð-
ir tveir og bara margt sem var allt
öðruvísi en í dag. Ýmislegt þótti
bara hið besta mál þá sem menn
myndu líklega ekki láta bjóða sér
núna. Það hefur orðið algjör bylting
í svo mörgu sem snýr að fiskveið-
unum, hvort sem það er tölvutækn-
in eða betri veiðarfæri,“ segir hann.
Aðspurður segir Björn að honum
hafi alltaf líkað vel á sjónum. „En
árið 1992 fannst mér kominn tími
til að breyta til, prófa eitthvað nýtt
og ég fór í land. Ég var formaður og
framkvæmdastjóri Verkalýðsfélags-
ins Jökuls í Ólafsvík í tvö ár, þar til
ég var ráðinn hafnarstjóri 1994,“
segir hann. „Starf hafnarstjórans
hefur mér alla tíð þótt skemmti-
legt. Það er stórum dráttum eins og
að vera framkvæmdastjóri fyrirtæk-
is. Huga þarf að öllu sem viðkemur
rekstrinum og engir tveir dagar eru
eins, maður er alltaf í miklum sam-
skiptum við marga. Þegar fram-
kvæmdir eru í gangi er maður síðan
í nánast daglegum samskiptum við
verktaka, Vegagerðnia og fleiri,“
útskýrir Björn.
Stefnir í annað metár
Aflabrögð í Snæfellsbæ hafa ver-
ið afar góð í vetur og nýtur hafnar-
sjóður góðs af því. „Tekjur hafnar-
sjóðs á síðasta ári voru 204 milljónir
króna og var 2018 besta árið í sögu
hafnarsjóðsins. Á almanaksárinu
var landað samtals 34 þúsund tonn-
um í Snæfellsbæ og jókst aflinn um
6800 tonn frá árinu á undan,“ segir
hann og bætir því við að það stefni í
að árið 2019 verði enn betra. „Árið
fer mjög vel af stað hvað aflabrögð
varðar og 19. maí var búið að landa
um það bil 22 þúsund tonnum,
samanborið við 19 þúsund tonn
á sama tíma í fyrra,“ segir Björn
ánægður. „Verðið fyrir fiskinn hef-
ur líka verið betra í vetur en á síð-
asta ári. Það kemur sér auðvitað vel
fyrir sjómenn og útgerðina en líka
fyrir okkur, því um það bil 64% af
tekjum hafnarsjóðs koma af afla-
gjöldum sem eru ákveðin prósenta
af aflaverðmæti,“ útskýrir hafnar-
stjórinn. „Við erum heppin hérna
í bæjarfélaginu að eiga öll þessi
öflugu sjávarútvegsfyrirtæki, sem
eru öll samfélagslega þenkjandi og
leggja sitt af mörkum. Það skiptir
verulegu máli fyrir allt samfélagið
hérna í Snæfellsbæ,“ segir Björn
Arnaldsson að lokum.
kgk
„Engir tveir dagar eru eins“
- segir Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ
Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ. Höfnin í Rifi í baksýn.
Horft í átt að hluta hafnarsvæðisins í Ólafsvík.
Smábátar við bryggju í Ólafsvík.
Árið 2001 var ákveðið að setja umhverfismarkmið fyrir allar hafnirnar í Snæ-
fellsbæ. Síðan þá hefur verið ráðist í ýmis verkefni sem snúa að því að gera
hafnirnar snyrtilegri og bæta ásýnd þeirra. Smíði þessa útsýnispalls í Ólafsvík er
dæmi um eitt þessara um hverfisverkefna. Framkvæmdir við stálþil í Rifshöfn árið 2017. Ljósm. úr safni/ þa.