Skessuhorn - 29.05.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201930
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
„Þessi grásleppuvertíð nær ekki með-
alvertíð í magni talið. Fiskgengd-
in hefur ekki verið mikil, en ástand
þeirrar grásleppu sem gengur inn
á grunnslóð hefur verið gott. Hins
vegar er mikil eftirspurn eftir grá-
sleppuhrognum og verðið hefur því
verið gott í vor, eða þetta yfir 300
krónur fyrir kílóið fyrir heila grá-
sleppu,“ segir Rögnvaldur Einarsson
grásleppusjómaður á Akranesi í sam-
tali við Skessuhorn.
Með bátinn á lista
Grunnskólakennsla var ævistarf
Rögnvaldar sem í fjóra áratugi
kenndi við Barnaskóla Akraness eða
Brekkubæjarskóla eftir að skólinn
fékk annað nafn. Rögnvaldur hætti
kennslu þegar hann náði 95 ára regl-
unni, en hefur haldið áfram að stúss-
ast í kringum veiðar, fer á grásleppu,
fellir net á haustin og vinnur auk þess
við beitningu á veturna. Alltaf sam-
hliða kennslunni stundaði hann þó
sjómennsku á vorin og sumrin, gerði
meðal annars út um tíma bát með
Inga Steinari Gunnlaugssyni þáver-
andi skólastjóra Barnaskóla Akra-
ness. Þegar þeir félagar voru eitt sinn
á sjó gerðu hinir karlarnir stólpagrín
að þeim. „Við fengum glósur eins og:
„Sjáiði nú menntamennina, nú eru
þeir alveg komnir með bátinn á lista.
Nú ætla þeir að drepa sig.“ Þetta
sagði einn sem hafði ekki mikla trú
á okkur menntamönnunum, eins og
hann kallaði okkur kennarana. Þetta
að vera kominn á lista þýddi að bát-
urinn var orðinn svo hlaðinn að sjór-
inn náði að borðstokknum og þá
þurfti ekki stóra öldu til að fylla bát-
inn af sjó og sökkva honum.“
Úr skóla og beint á sjó
„Hér á árum áður var ég iðulega far-
inn beint á sjóinn þegar ég var bú-
inn að afgreiða síðustu prófin hjá
börnunum á vorin. Var m.a. á skip-
um frá HB en eignaðist síðan eigin
bát og byrjaði fljótlega að gera út á
grásleppu.“ Þótt kominn sé yfir sjö-
tugt og hættur kennslu fyrir nokkr-
um árum er dagskráin þétt allt árið
hjá Rögnvaldi sem segist einfaldlega
velja sér þann lífsstíl að hafa nóg að
gera, þannig líði honum best. Á vet-
urna starfar hann við að beita línu
fyrir Ebba AK í beitningarskúr niður
á Breið ásamt fleiri körlum. Sjálfur á
hann svo tvo báta; Ver AK-38 sem er
sex tonna bátur og annan minni, Gára
AK-6 fjögurra tonna bát. Hann hef-
ur grásleppuleyfi fyrir báða bátana,
er nú búinn með dagafjöldann á Ver
en er nú búinn að skipta yfir á Gára
og hyggst veiða fram undir lok júní.
Grásleppuveiðarnar standa því yfir
hjá Rögnvaldi í tæpa þrjá mánuði.
Stórþorskurinn
elti loðnuna
„Þótt kennsla hafi verið ævistarfið
mitt þá hef ég verið viðloðandi sjó-
inn alla tíð. Ætlaði einhverju sinni að
hætta á sjó og lengi stóð það til hjá
mér að selja Gára AK. Keypti hann
upphaflega með Inga Steinari á átt-
unda áratugnum og hef átt síðan.
Verðið var hins vegar svo lágt fyr-
ir báta að ég gat rétt eins átt hann
áfram.“
í vor hafa um átta bátar verið gerð-
ir út á grásleppuveiðar frá Akranesi
og hefur fækkað á liðnum árum. „Við
máttum byrja veiðar 20. mars en ég
lagði ekki netin fyrr en 4. apríl vegna
brælu. Þá strax var grásleppan geng-
in hér á miðin. Það hefur svosem
gengið þokkalega í vor að öðru leyti
en því að núna var engin loðnuveiði
og stóri þorskurinn elti loðnuna upp
í harða land. Það fer afleitlega með
netin hjá okkur þegar kannski nokkr-
ir 10-15 kílóa þorskar flækjast í þau.
Það þarf ekki marga slíka fiska til að
slíta og vefja upp netin. Þetta hefur
aldrei verið svona slæmt áður.“
Rögnvaldur er með netalagnir
sínar á grunnslóð utan skerja norð-
an við Akranes, alltaf á sömu slóð-
um. Þetta er þekkt veiðislóð sem
nýtt hefur verið svo lengi sem elstu
menn muna, en í Höfðavíkinni voru
allt upp í tíu grásleppubátar gerð-
ir út á árum fyrr. Einungis er um
hálftíma stím á miðin frá höfninni
á Akranesi, en veiðislóð Rögnvald-
ar nær frá Ósi og vesturum á móts
við Slippinn. „Ég hef í þessi fjöru-
tíu ár sem ég hef stundað gráslepp-
una verið á svipuðum slóðum.“
Hver grásleppubátur hefur leyfi
til að leggja samtals sjö kílómetra af
netum. „Hvert net er um 80 metra
langt þannig að við erum að nota í
lagnirnar ríflega 80 net. Fiskistofa
fylgist svo grannt með að við sjó-
menn virðum netafjölda og almennt
þær reglur sem gilda um veiðarnar.
Auk þess fylgist Landhelgisgæslan
með veiðunum úr lofti.“
Trúr sama kaupanda
Rögnvaldur hefur haldið sig lengi
við sama kaupanda að hrognunum.
„Ég byrjaði að selja Vigni G Jóns-
syni hrognin fyrir margt löngu.
Fyrirtækið reyndist mér vel og ég
hef haldið mig við það þrátt fyr-
ir að það hafi nú skipt um eigend-
ur. Nú eru sjómenn hættir að taka
sjálfir hrognin úti á sjó heldur landa
grásleppunni heilli. Hún fer síðan
öll í gegnum fiskmarkaðinn þrátt
fyrir að kaupandinn í mínu tilfelli
sé alltaf sá sami. Þannig er hald-
ið utan um magn og verð og allir
borga sína skatta og skyldur. Það-
an er fiskurinn sendur með bílum
til Vopnafjarðar þar sem hrognin
eru unnin og söltuð í tunnur. Svo
er ekið með þau suður til vinnslu
hjá Vigni G Jónssyni hér á Akra-
nesi. Grásleppan er svo fryst til út-
flutnings. Af þessum sökum er lítið
sem ekkert um það lengur að sjó-
menn séu að skera og hengja upp
grásleppu til að láta síga.“
Þjófurinn var gómaður
Frá þeim tíma sem sjómenn verk-
uðu grásleppu rifjar Rögnvaldur
upp sögu af þjófi sem gerðist að-
gangsharður þar sem hann var að
láta grásleppu síga niður á Breið.
„Það hafði vaknað grunur um afföll
í þessu hjá mér. Ég hafði hengt grá-
sleppuna upp á snúru milli skúra.
Friðþjófur Helgason ljósmyndari
var í leit að myndefni. Hann góm-
aði þjófinn, náði meira að segja af
honum mynd. Það reyndist vera
krummi sem var búinn að komast
upp á lag með að toga í spyrðuna
þangað til hún féll niður. Þá náði
hann henni og flaug alsæll í burtu.“
Innan fjölskyldunnar
Rögnvaldur nýtur aðstoðar sona
sinna við veiðarnar og þá er þriðji
ættliðurinn einnig með þeim feðg-
um. Auk þess hefur Gísli bróðir
Ætlar að stunda grásleppuveiðar
áfram meðan heilsan er góð
Rætt við Rögnvald Einarsson grásleppukarl á Skaganum
Rögnvaldur með væna grásleppu á miðunum.
Rögnvaldur á veiðum. Ljósm. Friðþjófur Helgason.
Netin eru sjö kílómetrar að lengd og því mikil vinna að fella netin, halda þeim við
og endurnýja fyrir næstu vertíð. Ljósm. úr safni/þá.
Rögnvaldur og Hjálmar gera klárt fyrir næstu trossu. Ljósm. úr safni/hb