Skessuhorn - 29.05.2019, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 2019 37
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
sjómennTil hamingju með daginn
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til
hamingju með daginn.
ATVIK-sjómenn er nýtt atvikaskráningakerfi sem
VÍS hefur þróað í samstarfi við Slysavarnaskóla
sjómanna og nokkur leiðandi fyrirtæki í
íslenskum sjávarútvegi.
Á þriðja tug fiskiskipa og um 600 sjómenn
hafa aðgang að ATVIK-sjómenn.
Nýjasta verkfærið í
öryggismálum sjómanna
Jó
i M
yn
d
ó
Útibú Fiskmarkaðs Snæfellsbæj-
ar á Akranesi fékk afhentan spá-
nýjan lyftara í gær. Sá er af gerð-
inni Linde H25, díselknúinn
með 2,5 tonna lyftigetu. Mun
þetta vera í fyrsta sinn sem fisk-
markaður sem starfræktur er í
þessu húsi getur státað af nýj-
um lyftara, beint úr kassanum.
Böðvar Ingvason, umsjónarmað-
ur útibús Fiskmarkaðs Snæfells-
bæjar á Akranesi, var að vonum
ánægður með nýja gripinn þegar
Skessuhorn hitti hann í gær.
kgk
Böðvar Ingvason, umsjónarmaður útibús Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar á Akranesi,
við nýja lyftarann.
Nýr lyftari á fiskmarkaðinum
fékk uppsagnarbréfið í slippnum og
líka dagurinn sem ég skrifaði und-
ir skilnaðarpappírana,“ segir Einar
léttur í bragði.
Botnlaust fiskirí í vor
Eftir stutt stopp hjá Tölvuþjón-
ustu Vesturlands var Einar at-
vinnulaus og snapaði upp þá vinnu
sem var að hafa. Starfaði meðal
annars við uppskipanir og fleira.
Hann hóf síðan störf sem vigtar-
maður í afleysingum hjá Akranes-
höfn sumarið 1995. „Það var síðan
árið 1998 eða 1999 sem ég var ráð-
inn fast á vigtina. Á þeim tíma var
mikið að gera á hafnarvoginni, en
hlutirnir hafa breyst mikið á þess-
um 20 árum sem ég hef starfað við
höfnina. Núna eru allir torgararn-
ir farnir og aðeins örfáir trillukarl-
ar eftir sem róa allan ársins hring,“
segir hann. „Fiskmarkaðurin sem
var lagði upp laupana og var mik-
il óvissa um framtíð markaðar á
Akranesi í nokkurn tíma. Hér var
því enginn markaður um tíma, þar
til Bjarni á Eskeynni og Alli Ei-
ríks komu honum af stað aftur fyr-
ir ekki löngu síðan og Böddi Ingva
tók við umsjón hans eftir áramót,
sem útibú frá Fiskmarkaði Snæ-
fellsbæjar. Hann á hrós skilið fyrir
sína eljusemi. Hann leggur sig all-
an fram um að veita góða þjónustu
og það skiptir máli,“ segir Einar.
„Slíkt fréttist og undanfarnar vikur
hafa komið bátar að til að landa á
Akranesi. Veiðin hefur verið alveg
prýðileg. Þetta skot sem kom núna
í vor var mjög kærkomið, búið að
bíða lengi eftir því. Það er búið að
vera alveg botnlaust fiskirí, stór og
fallegur fiskur,“ segir hann.
Þörf á bættri aðstöðu
„En heilt á litið er þetta samt allt-
of dauft, gegnumgangandi. Það er
lítið að gera á vigtinni megnið úr
deginum en kemur smá törn síð-
degis. Mestur tíminn fer í papp-
írsvinnuna sem fylgir þessu, skrá
inn í kerfinu og fleira í þeim dúr,“
segir Einar. „Það er alveg skýrt í
mínum huga að ef leysa á vanda
hafnarinnar þá er nauðsynlegt að
leggjast í töluverðar framkvæmd-
ir. Nú stendur til að lengja hafn-
argarðinn og brimvarnargarðinn.
Það mun verða mjög til bóta, því
það er allt of mikil hreyfing í höfn-
inni eins og hún er í dag, sértak-
lega í suðvestanátt enda ekkert
sem stoppar ölduna,“ segir hafn-
arvörðurinn. „Til að geta tekið við
skipum eins og stóru loðnuskip-
unum til dæmis þá þarf betri hafn-
araðstöðu. Það sama gildir um
skipin sem Skaginn 3X hefur ver-
ið að vinna við í höfninni. Höfnin
þolir varla svona stóra báta. Það er
óhemjumikið vindfang sem svona
skip hafa og þarf bæði sterkari
bryggjupolla og að minnka hreyf-
inguna í höfninni til að þau hrein-
lega geti verið hérna,“ bætir hann
við. „Með bættri aðstöðu gætum
við farið að sjá stærri báta, jafn-
vel togarana, til að landa hérna hjá
okkur. En það þarf að framkvæma
og gera það vel. Hvort við afskrif-
um höfnina eða ekki veltur allt
á réttum framkvæmdum,“ segir
Einar Guðmundsson hafnarvörð-
ur að endingu.
kgk
Akraneshöfn í glampandi sól síðastliðinn mánudag.