Skessuhorn


Skessuhorn - 29.05.2019, Page 41

Skessuhorn - 29.05.2019, Page 41
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 2019 41 Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn Stefán Jónsson á Akranesi hefur róið á handfærum undanfarna áratugi. Á sínum handfæraveiðiferli hefur hann verið mest við veiðar á Norðvest- urlandi, en síðustu árin hefur hann sótt sjóinn frá Arnarstapa og vill hvergi annars staðar vera. Stefán rær á Grími AK-1 og var aflahæstur á strandveiðunum síðasta sumar með 49,5 tonn og 68 kílóum betur. „Ég verð ekki efstur núna,“ segir Stef- án þegar blaðamaður prílar til hans um borð í Grím á fallegu maíkvöldi á Arnarstapa, réttri viku eftir að strandveiðitímabilið hófst. Stefán var þá nýlega búinn að landa eftir langan dag á sjónum. „Ég kom hingað síð- asta fimmtudag, um leið og tímabil- ið byrjaði. Það er búin að vera mjög fín veiði núna þessa fyrstu daga og ég hef alltaf fengið skammtinn. Dag- urinn í dag gekk reyndar ekki alveg nógu vel, aðallega út af straumi. Ég var ekki búinn að fá skammtinn fyrr en eftir hádegi, en fór út á sjó rúm- lega fjögur í nótt. í fyrra var maður nánast alltaf kominn með skammt- inn fyrir hádegið. Ég var hérna fyrir vestan Nesið í dag, en þar var mikill straumur, erfitt að veiða þar og það fóru alls ekki allir á sjóinn í dag. Síð- an hef ég mikið verið við Hellisbrot- ið, sem er hérna fjórar, fimm mílur suður af höfninni. Það er mjög stutt og hefur gengið fínt að veiða þar,“ segir Stefán. Lítið af ufsa Hann telur að nú stefni í aðeins öðruvísi strandveiðisumar en á síð- asta ári. „Núna sér maður voða lítið af ufsa en í fyrra var fullt af honum. Það var eiginlega ufsanum að þakka að ég varð aflahæstur síðasta sumar. En þó það sé lítið af ufsa finnst mér vera meira af fiski núna en í fyrra, heilt yfir. Fiskurinn er líka mjög góð- ur, stór og fallegur þorskur og hann veiðist víðar en í fyrra,“ segir hann og kveðst engu að síður bjartsýnn á tímabilið. „Sumarið leggst bara vel í mig. Þó það hafi gengið illa í dag hefur þetta farið vel af stað. Mér heyrist sú vera raunin hjá öðrum sem eru hérna líka. Það koma allir með skammtinn nema ef þeir lenda í bilun eða eitthvað kemur upp á,“ segir hann. Stefán ætlar að vera allt tímabilið á veiðum ef þess er nokk- ur kostur. „Maður má ekki svíkja lit,“ segir hann og brosir. „Reyndar hafa menn verið að spá því að kvótinn verði búinn í ágúst. En við skulum sjá hvernig fer. Það var nú líka talað um það í fyrra en kvótinn kláraðist ekki einu sinni, en það var reyndar ekki mikið eftir af honum.“ Gott að róa frá Stapa Stefán er enginn nýgræðingur þeg- ar kemur að handfæraveiðum, búinn að róa í nálægt því tvo áratugi. „Ég er búinn að vera á handfærum síðan fyrir 2000, minnir mig. Ég man ekki hvaða ár ég byrjaði,“ segir Stefán og brosir. „Mér hefur alltaf gengið vel, líka í dagakerfinu svokallaða þangað til það var lagt niður 2004. Mest fisk- aði ég 86 tonn eitt sumarið í daga- kerfinu og svo fékk ég tæp 50 tonn í fyrra,“ segir Stefán. „Ég hef róið á handfærum víða um Norðvestur- landið en byrjaði að róa frá Stapa 2016 og er búinn að vera hérna all- ar götur síðan. Það er mjög gott að róa héðan. Þjónustan er mjög góð, hafnarvörðurinn er algjör snillingur, stutt að sækja fiskinn bæði norður og suður. Andinn er góður yfir öllu hérna og mér líkar mjög vel hérna,“ segir hann. „Aldrei einn á sjónum“ Stefán gerir raunar meira en að róa frá Arnarstapa. Yfir sumartímann býr hann á Stapa á virkum dögum. „Ég sef um borð í bátnum og fer heim á Akranes um helgar. Við erum nokkrir sem sofum alltaf í bátunum á sumrin. í fyrra vorum við þrír en núna erum við sex eða sjö. Við hitt- umst alltaf hérna á hafnarsvæðinu, spjöllum saman, spáum og spek- úlerum í veiðina, hvar menn hafi verið og svona. Það myndast alltaf skemmtileg stemning hjá þeim sem eru í bátunum,“ segir hann. „Og það er aldrei eins gott að sofna og þegar báturinn vaggar manni svona rólega í svefn í höfninni,“ bætir hann við. Báturinn vaggar einmitt mjúklega til hliðanna í höfninni þar sem við sitj- um í stýrishúsinu og ræðum saman yfir kaffibolla. Alla sína strandveiðisjómannstíð hefur Stefán róið á einmitt þessum báti, Grími AK-1. „Þetta er voða skemmtilegur bátur. Hann var áður 3,7 tonn, en síðan lengdi ég hann og breytti honum aðeins. Það er gott að róa á Grími. Ég nefndi hann eftir afa mínum og hann er alltaf með mér við veiðarnar. Maður er aldrei einn á sjónum,“ segir Stefán og brosir. Alltaf jafn gaman Stærstan hluta ársins starfar Stefán sem smiður á Akranesi. Hann hefur haft í nógu að snúast við að byggja hús, enda töluvert verið byggt á Skaga undanfarin ár. Engu að síður rífur hann sig upp á hverju vori, set- ur bátinn á flot og fer vestur á Stapa til að róa til fiskjar. Af hverju? „Ég hef ótrúlega gaman af strandveiðun- um, annars væri ég ekkert að þessu. Það er eitthvað við þetta. Mað- ur ræður sér algerlega sjálfur og þó það sé leiðindaveður þá skiptir það engu máli. Ánægjan er alltaf jafn mikil og maður er alveg ómögulegur ef maður kemst ekki á sjóinn,“ segir hann og brosir. „Ég held að margir sem eru í þessu eigi voðalega erfitt með að hætta. Það þarf þá eitthvað að koma upp á. Maður eldist nátt- úrulega og slitnar með árunum. Ég er búinn að vera í líkamlegri vinnu bæði vetur og sumar frá því ég man eftir mér, nánast. En ég á von á því að róa svo lengi sem ég get,“ segir Stefán Jónsson að endingu. kgk „Ég hef ótrúlega gaman af strandveiðunum“ - segir Stefán Jónsson á Grími AK Stefán Jónsson um borð Grími AK-1 í höfninni á Arnarstapa. Kærkominn kaffisopi eftir langan dag á sjó. Stefán frammi á Grími að fylgjast með öðrum sjómanni koma með skammtinn inn í höfnina á Stapa. Góðviðrismynd frá Arnarstapa. Ljósm. úr safni/ Mats Wibe Lund.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.