Skessuhorn - 29.05.2019, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201942
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Landhelgisgæsla íslands gegnir
veigamiklu hlutverki þegar kem-
ur að öryggi sjófarenda. Mælingar
sýna að til stofnunarinnar er bor-
ið mikið traust. Landsmenn finna
til öryggis að grannt sé fylgst með
ferðum skipa og báta, þyrlur Gæsl-
unnar þekkja allir og varðskipin
gegna mikilvægu hlutverki við eft-
irlit og björgun. í Stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar við Skógarhlíð í
Reykjavík er fjölþættri starfsemi
Gæslunnar stýrt allt árið um kring,
alla daga og alla nætur. í björgun-
armiðstöðinni Skógarhlíð eru höf-
uðstöðvar Gæslunnar, en auk þess
er Neyðarlínan þar til húsa, Slysa-
varnafélagið Landsbjörg hefur höf-
uðstöðvar sínar þar og þar er sam-
hæfingarmiðstöðin sem virkjuð er
umsvifalaust þegar stærri slys eða
óhöpp verða á sjó eða landi og vá
vegna eldgosa eða annarra náttúru-
hamfara grúfir yfir. Þar koma all-
ir lykilstjórnendur viðbragðsaðila
saman ef stórslys verða. Blaðamað-
ur Skessuhorns kíkti í heimsókn
í Vaktstöð Landhelgisgæslunnar
í síðustu viku. Sest var niður í þá
annars mannlausri samhæfingar-
miðstöðinni á björtum maídegi og
rætt við Ásgrím L Ásgrímsson sem
gegnir stöðu framkvæmdastjóra að-
gerðasviðs Landhelgisgæslunnar.
Ásgrímur sýndi blaðamanni húsa-
kynnin og meðal annars vaktstöð-
ina þar sem alltaf er fylgst með um-
ferð á sjó. Rætt er um vöktun með
skipaumferð og sitthvað fleira.
Ætíð á bakvakt
Stjórnstöð Landhelgisgæslunn-
ar er hjartað í starfsemi stofnunar-
innar og þar starfa 17 manns. Innan
hennar er leitar- og stjórnstöð fyr-
ir sjófarendur og loftför á íslandi.
Vaktstöðin sinnir fiskveiðieftirliti
og er um leið landamærastöð fyr-
ir ytri landamæri Schengen fyrir
skipa umferð. Einnig er hún fjar-
skiptastöð fyrir skip og sinnir leið-
arstjórnun fyrir Reykjanes og inn
í Faxaflóa. Á Vaktstöðinni í Skóg-
arhlíð eru alltaf að minnsta kosti
þrír á vakt hverju sinni, allan sólar-
hringinn, allt árið. Á stórum skjám
er fylgst með bátum og skipum og
haldið samskiptum við skipsstjór-
nendur. „Það koma sannarlega
álagstímar hjá okkur á vaktstöðinni.
Við erum alltaf við öllu búin því
óhöpp gera ekki boð á undan sér
hvort sem er á sjó eða landi.“ Ás-
grímur tekur sem dæmi að fimmtu-
daginn 16. maí hafi allt farið á fullt
í Samhæfingarmiðstöðinni í Skóg-
arhlíð þegar rúta valt í Skaftafells-
sýslu og mikill viðbúnaður björgun-
araðila var settur í gang. „Þá önn-
uðumst við samskipti og stýringu
þeirra björgunaraðila sem tiltækir
voru á vegum Landhelgisgæslunn-
ar, þyrla okkar og af dönsku varð-
skipi sem hér var statt kom einnig
þyrla sem og flugvél Landhelgis-
gæslunnar. Landhelgisgæslan ann-
ast samskipti á milli áhafna þessara
loftfara og björgunarsveita, lög-
reglu og annarra sem koma þurfa
að slysum af þessari stærðargráðu.
Á vaktstöðinni hér eru alltaf ein-
hverjir á bakvakt. Ég og kollegar
mínir fara í aðgerðastjórnun. Það
sama á við ef slys eða óhapp verður
á hafi úti. Til dæmis kviknaði ný-
verið í vélarrúmi Sóleyjar Sigur-
jóns úti á hafi norðan við landið og
þá er bakvaktin umsvifalaust köll-
uð út og tók þátt í stýringu aðgerða
úr stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
með aðkomu bakvaktar Slysavarna-
félagsins Landsbjargar og almanna-
varnadeildar Ríkislögreglustjóra.“
Fjölþætt verkefni
Gæslunnar
í fyrstu ræddum við Ásgrímur
um Landhelgisgæsluna og hlut-
verk hennar í öryggisneti lands-
manna. „Landhelgisgæsla íslands
hefur nokkur skilgreind verkefni
með höndum. Eitt af því er að vera
svokölluð JRCC björgunarmið-
stöð fyrir hafið og vegna loftfara,
lögregla ber síðan ábyrgð á eftir-
liti og björgun á landi. í starfi okk-
ar felst meðal annars rekstur þyrla
og flugvélar, varðskipa og annars
búnaðar. Sérstök sprengjusveit er
til dæmis starfandi hjá Landhelg-
isgæslu íslands. Landhelgisgæslan
er samskiptaaðili fyrir skip almennt
og loftför sem taka þátt í leitar- og
björgubnaraðgerðum og sinnir auk
þess landamæraeftirliti fyrir hafið.
Öll skip og bátar sem koma úr er-
lendri lögsögu eru vöktuð og þurfa
þau að senda komuskýrslu með við-
eigandi upplýsingum, það er okk-
ar lagalega skylda að sjá til þess að
því sé sinnt. Síðan sinnum við fjöl-
breyttum verkefnum og mönnum
meðal annars Vaktstöð siglinga sem
heyrir lagalega undir Siglingasvið
Vegagerðarinnar. Það er þó Neyð-
arlínan sem tæknilega rekur vakt-
stöðina, AIS kerfið og fjarskipta-
kerfið sem sjófarendur nota og
treysta á. Eftirlit með allri þessari
starfsemi er síðan á höndum Sam-
göngustofu. Starfsemin sem fram
fer hér í Skógarhlíðinni heyrir svo
undir nokkur ráðuneyti,“ segir Ás-
grímur.
Ber að tilkynna sig
Eitt af veigameiri verkefnum Land-
helgisgæslunnar er að fylgjast með
öryggi sjómanna á hafi úti innan ís-
lenska leitar- og björgunarsvæðis-
ins. „Sjálfvirka tilkynningaskyld-
an virkar þannig að skipstjórnar-
mönnum ber að hafa alltaf kveikt á
AIS kerfinu í bátum sínum ef þeir
fara úr höfn. Þeim ber einfaldlega
lagaleg skylda til þess að kveikja á
búnaðinum, að tilkynna sig úr höfn
til að hægt sé að vita hvar þeir eru
staddir. Þá er einnig mikilvægt að
þeir tilkynni sig í gegnum talstöð-
ina þegar haldið er úr höfn því um
leið eru þeir að ganga úr skugga um
að talstöðin virkar og sé stillt á rétta
rás. Mörgum finnst fylgja því mik-
ið skvaldur að hafa stillt á Rás-16,
en hún er engu að síður mikilvæg
þeirra eigin öryggi og annarra sem
staddir eru á veiðum eða siglingu í
grenndinni. Þá hefur einnig verið
búið til app sem sjómenn geta not-
að í stað þess að tilkynna sig í gegn-
um talstöð.“
STK kerfið var gallað
Áður en sjálfvirka tilkynningaskyld-
an með búnaði sem kallast AIS var
tekin í gagnið um borð í öllum bát-
um og skipum var svokallað STK
kerfi notað við íslandsstrendur frá
árinu 1995. Það var séríslenskur
búnaður frá Reycal sem notast var
við allt til ársins 2009. „Það kerfi
hafði sína galla og í því voru mörg
svokölluð skuggasvæði. Ekki síst
var þjónustan við það þyngslaleg og
búnaðurinn einungis í notkun við
íslandsstrendur. Til dæmis þurfti
að senda tækin til viðgerðar í Bret-
landi og erfitt að fá lánstæki á með-
an. Það var ekki ásættanleg þjónusta
fyrir útgerðir. Við slíkar aðstæður
var örygginu ábótavant að því leyti
að hafa þurfti talstöðvarsamband á
þriggja tíma fresti og í millitíðinni
gat margt gerst. Það kerfi var því
barn síns tíma. Svo þegar strand-
veiðar hófust réði kerfið einfald-
lega ekki við þá miklu fjölgun sjó-
farenda sem varð samhliða því. Þá
voru yfir þúsund skip og bátar á sjó
í einu og allt upp í 1100 þegar mest
lét árið 2014.“
Sjálfvirk boð
Ásgrímur segir það almennt mjög
mikilvægt að sjómenn láti vita þeg-
ar þeir fara á sjó og umgangist ör-
yggiskerfið, þeirra eigin öryggi,
af virðingu. „Um leið og menn
láta vita af sér þegar haldið er frá
bryggju er gengið úr skugga um
að AIS kerfið sé í lagi og þar með
sjálfvirka tilkynningakerfið eft-
ir að þeir eru komnir lengra á haf
út. Við höldum síðan skráningu
meðan þeir eru á sjó og vöktum þá
þar til komið er í land að nýju. Ef
ekki berast sjálfvirk boð frá bátnum
eða skipinu, þá er einfaldlega eitt-
hvað að og eftirgrennslan fer í gang
samkvæmt okkar viðbragðsáætlun.
Stundum kemur í ljós að menn hafi
haft slökkt á búnaðinum eða þá að
hann hafi bilað og því sé ekkert að
óttast, en ef það reynist ekki ástæð-
an fer viðbragðsáætlun umsvifa-
laust í gang.“ Ásgrímur segir að
ekki sé óalgengt á álagstímum að
10-20 bátar séu í „vöntun“ á sama
tíma og margvíslegar aðstæður geti
komið upp. Sumir bátar eru jafn-
vel að veiðum í víkum fyrir vestan
landið, alveg upp við kletta, þannig
að merkin berast ekki vaktstöðinni.
Aðrir drepi kannski á vélinni og af-
tengja allt rafmagn. Þannig auki
slíkt ástand álag og vinnu þeirra
sem sitja og fylgist með í Vaktstöð-
inni.
MarineTraffic er
einkaframkvæmd
Margir sem fylgjast með förum
skipa um lögsöguna á Internet-
inu þekkja Marinetraffic.com. í
því er hægt að fylgjast með ferð-
um margra sjófara sem skráð eru
þar inn, en þó engan vegin ferðum
allra. Ásgrímur segir að vegna pers-
ónuverndarsjónarmiða megi Land-
helgisgæslan ekki birta þau gögn
á sínum vegum. „Marinetraffic.
com er vefur sem rekinn er í einka-
framkvæmd og hafa þær upplýsing-
ar sem á honum er að finna ekkert
að gera með okkur eða aðra opin-
bera aðila. Þar birtast engu að síður
gögn um ferðir margra smærri báta
og stærri skipa ef þau senda út og í
nágrenninu er móttökuloftnet sem
nemur bylgjur frá þeim og sendir
áfram. Við hjá Landhelgisgæslunni
höfum hins vegar upplýsingar sem
við birtum ekki opinberlega en not-
um í okkar vaktstöð enda er okkar
hlutverk að fylgjast með öllum sem
á sjó eru hverju sinni.“
Traust ríkir
Almennt segir Ásgrímur að margir
sjómenn hafi í fyrstu ekki verið allt-
Litið við í Skógarhlíðinni og fræðst um
fjölþætt verkefni Landhelgisgæslu Íslands
Á Vaktstöð siglinga eru alltaf að lágmarki þrír á vakt
Þegar eldgos hófst í Holuhrauni 2014 var samhæfingarmiðstöin í Skógarhlíð
virkjuð. Hér er svipmynd frá því. Ásgrímur L Ásgrímsson viðmælandi okkar fyrir
miðri mynd. Ljósm. úr safni.
Ásgrímur L Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og Björgólfur H Ingason vaktstjóri eru hér
staddir í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar / Vakstöð siglinga.
Hér fylgist Hallbjörg Fjeldsted starfsmaður í Vaktstöðinni náið með skipaumferð
við landið.
Skagamaðurinn Jón Gunnar Ingibergsson hóf fyrir rúmu ári störf í Vaktstöð
siglinga. Hann var á vaktinni þegar kíkt var í heimsókn.