Skessuhorn - 29.05.2019, Side 45
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 2019 45
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
20912 –
Skólaakstur fyrir
Hvalfjarðarsveit
Ríkiskaup, fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar kt. 630606-1950
óska eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur Heiðarskóla í
Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða 5 aksturleiðir og er áætlaður
akstur á dag um 262 km.
Óskað er eftir tilboðum í skólaakstur fyrir grunnskólanema í fjögur
skólaár, þ.e. frá byrjun skólaárs haustið 2019 til og með loka
skólaárs vorið 2023. Möguleiki er á framlengingu 3×1 árs, að
hámarki 7 ár.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðslýsingu í rafrænu
útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni:
http://utbodsvefur.is/20912-skolaakstur-fyrir-hvalfjardarsveit/
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi
eru nú tveir veitingavagnar hlið við
hlið; Fancy sheep sem opnaður var
á mánudaginn og Fish and Chips
vagninn sem nýr eigandi hefur nú
tekið við.
Hamborgarbíll
Hamborgarabíllinn Fancy sheep
var nýverið opnaður við höfn-
ina. Það eru þau Martin Fabry og
Justina Materna sem eiga bílinn
og ætla þau að bjóða upp á ham-
borgara og franskar. Hamborgar-
ana gera þau sjálf frá grunni og eru
búin að leggja töluverða vinnu í að
finna besta kjötið og bestu sam-
setninguna til að bjóða gestum og
gangandi. Einnig langar þau að
bjóða upp á franskar sem þau búa
til sjálf en að sögn Martins hafa þau
ekki enn fundið réttu kartöflurnar í
það verk svo þau kaupa frönskurnar
tilbúnar til steikingar. Fancy sheep
hyggjast þau hafa opið alla daga
í sumar og til að byrja með verð-
ur opið frá klukkan 11 á morgn-
ana þar til kjötskammturinn klár-
ast þann daginn, eða til klukkan
20-21. „Okkur langar að bjóða upp
á morgunmat en við gerum það
ekki strax. Þá langar okkur að verða
með svona fínni morgunmat,“ segir
Martin. „Við tökum vel á móti öll-
um og Hólmarar fá 10% afslátt hjá
okkur,“ bætir hann við.
Nýr eigandi að
Hafnarvagninum
Hafnarvagninn Fish and Chips var
opnaður af nýjum eiganda föstu-
daginn 24. maí við höfnina í Stykk-
ishólmi. Vagninn hefur verið á op-
inn yfir sumartímann undanfarin
fjögur ár en nú er hann kominn í
eigu Guðmundar Rúnars Hallgerð-
arsonar. Vagninn verður opinn alla
daga í sumar frá klukkan 12-21.
Eins og nafnið gefur til kynna
verður hægt að fá fisk og franskar í
Hafnarvagninum Fish and Chips.
arg/ Ljósm. sá
Guðmundur Rúnar Hallgerðarson er nýr eigandi Hafnarvagnsins Fish and Chips.
Með veitingasölu á kajanum
Martin og Justina hafa opnað hamborgarabílinn Fancy sheep við höfnina í
Stykkishólmi.
Hettupeysur
fáð� verðtilboð fyrir þin� hóp
www.smaprent.is • smaprent@smaprent.is • sími 666-5110
Ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira
er enginn sendingarkostnaður!
www.smaprent.is
3 fyrir
2
í vefver
slu�
1.400 kr/stk
1.290 kr/stk
2.990 kr/stk
990 kr/stk
1.200 kr/stk
2.190 kr/stk 1.490 kr/stk
Elís�
A
FS
LÁ
T
TA
R
K
Ó
Ð
I:
3
FY
R
IR
2
3
FY
R
IR
2