Skessuhorn - 29.05.2019, Side 48
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201948
Atli Teitur Brynjarsson útskrifað-
ist síðastliðinn laugardag af nátt-
úrufræðibraut frá FVA og var hann
dúx skólans á vorönn með 9,3 í
meðaleinkunn. Atli Teitur segir
náttúrufræðibraut hafa orðið fyrir
valinu því honum þykir skemmti-
legast í raungreinum. Aðspurður
segist hann ekki geta sagt að eitt-
hvað eitt sé lykillinn að því að ná
þessum árangri í náminu, en að
námið liggi vel fyrir honum þökk
sé þeim genum sem hann fékk í
vöggugjöf. „Ég tel mig vera frek-
ar samviskusaman, ég mætti alltaf
þegar ég gat og skilaði öllum verk-
efnum,“ segir hann.
„í tilefni dagsins skálaði ég við
mömmu og ömmur mínar og afa,
skellti mér síðan í veislu og lyfti
mér upp um kvöldið,“ segir hann
aðspurður. „Ég held mína veislu
síðan um næstu helgi, þegar pabbi
verður kominn heim,“ bætir hann
við. Samhliða námi vann Atli Teit-
ur aðeins, til að fá smá auka pen-
ing, auk þess sem hann æfir fót-
bolta og æfði golf fyrstu fjórar
annirnar í náminu en fótbolti og
golf eru helstu áhugamálin hans.
Atli Teitur segir að nú taki við pása
frá námi í eitt ár, sem hann ætlar
að nýta eins vel og hann getur. „Ég
er ekki 100% viss um hvað ég ætla
að nýta hana í en ég ætla að nýta
hana vel,“ segir hann.
arg
Atli Teitur dúxaði við FVA
Atli Teitur Brynjarsson og Halla Margrét Jónsdóttir hlutu námsstyrk Akranes-
kaupsstaðar auk þess sem Atli Teitur hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur
á stúdentsprófi á vorönn í FVA. Á myndinni eru Atli Teitur, Sævar Freyr Þráinsson
bæjarstjóra á Akranesi og Sigríður Valdimarsdóttir, móðir Höllu Margrétar.
Laugardaginn 25. maí voru braut-
skráðir 74 nemendur frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðar-
skólameistari flutti annál vorann-
ar við athöfnina. Ylfa Örk Davíðs-
dóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir
hönd útkskriftarnema, þar sem hún
rifjaði upp nokkur eftirminnilieg
augnablik skólagöngunnar. Helga
Braga Jónsdóttir, fyrrverandi nem-
andi, flutti ávarp og Bergdís Fann-
ey Einarsdóttir, Ólöf Gunnarsdótt-
ir og Edgar Gylfi Skaale Hjalta-
son sáu um tónlistarflutning við
athöfnina. Þá flutti Elena Vallad-
ares Ramirez kveðjuorð, en hún er
spænskur skiptinemi sem stundaði
nám við skólann í vetur.
Atli Teitur Brynjarsson hlaut
viðurkenningu skólans fyrir best-
an árangur á stúdentsprófi á vor-
önn 2019. Námsstyrk Akranes-
kaupstaðar hlutu þau Atli Teitur
og Halla Margrét Jónsdóttir sem
brautskráðist frá skólanum fyrir
síðustu áramót.
Ágústa Elín Ingþórsdóttir skóla-
meistari ávarpaði útskriftarnem-
endur í lok afhafnar þar sem hún
óskaði þeim gæfu og velfarnaðar.
Að lokum risu gestir úr sætum og
sungu lagið Nú er sumar, áður en
þeir héldu út í góða veðrið.
Verðlaun og
viðurkenningar
Eftirtaldir útskriftarnemar fengu
verðlaun og viðurkenningar fyr-
ir ágætan námsárangur og störf að
félag- og menningarmálum. Nöfn
þeirra sem gáfu verðlaun eru inn-
an sviga.
Aðalbjörg Egilsdóttir fyr-
ir ágætan árangur í þýsku (Þýska
sendiráðið), ágætan árangur í ís-
lensku (Fjölbrautaskóli Vestur-
lands), ágætan árangur í líffræði (ís-
landsbanki) og fyrir góð störf að fé-
lags- og menningarmálum en hún
var meðal annars ein af formönnum
leiklistarklúbbs skólans og Góð-
gerðafélagsins Eynis (Minningar-
sjóður um Karl Kristin Kristjáns-
son)
Agnes Rós Sveinbjörnsdóttir
fyrir ágætan árangur í þýsku (Fjöl-
brautaskóli Vesturlands)
Amelija Prizginaite fyrir ágætan
árangur í ensku (Fjölbrautaskóli
Vesturlands)
Arna Berg Steinarsdóttir fyr-
ir ágætan árangur í íslensku (Fjöl-
brautaskóli Vesturlands)
Atli Teitur Brynjarsson fyr-
ir ágætan árangur í spænsku (VS
Tölvuþjónusta), ágætan árangur í
stærðfræði (Skaginn 3X), ágætan
árangur í íslensku (Fjölbrautaskóli
Vesturlands) og fyrir framúrskar-
andi árangur í raungreinum á stúd-
entsprófi (Háskólinn í Reykjavík)
Bergdís Fanney Einarsdótt
ir fyrir ágætan árangur í erlend-
um tungumálum (Mála- og menn-
ingardeild Háskóla íslands), ágæt-
an árangur í stærðfræði og raun-
greinum (Faxaflóahafnir), ágætan
árangur í íslensku (Fjölbrautaskóli
Vesturlands) og ágætan árangur í
íþróttum (Omnis Verslun). Einn-
ig hlaut Bergdís verðlaun úr sjóði
Guðmundar P. Bjarnasonar fyr-
ir framúrskarandi námsárangur í
raungreinum og Menntaverðlaun
Háskóla íslands sem eru veitt nú í
annað sinn til allra framhaldsskóla
landsins, ein verðlaun til hvers
skóla. Bergdís fær verðlaunin fyr-
ir framúrskarandi árangur á stúd-
entsprófi og fyrir árangur á sviði
íþrótta.
Birta Margrét Björgvinsdóttir
fyrir góð störf að félags- og menn-
ingarmálum en hún starfaði með-
al annars í stjórn nemendafélags
skólans (Minningarsjóður um Karl
Kristin Kristjánsson)
Bjarney Helga Guðjónsdóttir
fyrir ágætan árangur í spænsku og
ensku (Rótarýklúbbur Akraness),
ágætan árangur í íslensku (Fjöl-
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
brautaskóli Vesturlands), ágæt-
an árangur í líffræði (Meitill GT
Tækni) og fyrir góð störf að félags-
og menningarmálum, en hún var
meðal annars ein af formönnum
Góðgerðafélagsins Eynis (Minn-
ingarsjóður um Karl Kristin Krist-
jánsson)
Bryndís Jóna Hilmarsdóttir
fyrir framfarir í námi (Fjölbrauta-
skóli Vesturlands)
Elísa Sjöfn Reynisdóttir fyr-
ir ágætan árangur í tréiðngreinum
(Trésmiðjan Akur) og hvatningar-
verðlaun til áframhaldandi náms
(Zontaklúbbur Borgarfjarðar)
Fríða Halldórsdóttir fyrir ágæt-
an árangur í þýsku (Þýska sendiráð-
ið) og ágætan árangur í stærðfræði
(Fjölbrautaskóli Vesturlands)
Halldór Vilberg Reynisson fyr-
ir ágætan árangur í málmiðngrein-
um (Blikksmiðja Guðmundar) og
fyrir ágætan árangur í verklegum
greinum (Katla Hallsdóttir)
Helena Dögg Einarsdóttir fyr-
ir ágætan árangur í spænsku (Fjöl-
brautaskóli Vesturlands), ágætan
árangur í efnafræði (Efnafræðifé-
lag íslands) og ágætan árangur í líf-
fræði (Gámaþjónusta Vesturlands)
Hugi Berg Þorvaldsson fyrir
ágætan árangur í þýsku (Fjölbrauta-
skóli Vesturlands)
Júlía Rós Þorsteinsdóttir fyrir
ágætan árangur í þýsku og ensku
(Fjölbrautaskóli Vesturlands) og
ágætan árangur í líffræði (Sorop-
timistasystur á Akranesi)
Karen Þórisdóttir fyrir ágæt-
an árangur í þýsku (Penninn Ey-
mundsson) og ágætan árangur í
íslensku (Fjölbrautaskóli Vestur-
lands)
Kristmann Dagur Einarsson
fyrir ágætan árangur í viðskipta-
greinum (Landsbankinn)
Ólöf Gunnarsdóttir fyrir ágæt-
an árangur í efnafræði (Efnafræði-
félag íslands), ágætan árangur í líf-
fræði (Elkem ísland) og fyrir góð
störf að félags- og menningarmál-
um en hún var meðal annars ein af
formönnum leiklistarklúbbs skól-
ans og Góðgerðafélagsins Eynis
(Minningarsjóður um Karl Kristin
Kristjánsson)
Sólveig Erla Þorsteinsdóttir
fyrir ágætan árangur í þýsku (Fjöl-
brautaskóli Vesturlands), ágætan
árangur í efnafræði (Fjölbrautaskóli
Vesturlands) og fyrir góð störf að
félags- og menningarmálum en hún
var ein af formönnum Góðgerða-
félagsins Eynis (Minningarsjóður
um Karl Kristin Kristjánsson)
Ylfa Örk Davíðsdóttir fyr-
ir framúrskarandi árangur í grein-
um sem tengjast heilsu (Embætti
landlæknis), fyrir ágætan árang-
ur í ensku (Fjölbrautaskóli Vestur-
lands) og fyrir góð störf að félags-
og menningarmálum en hún starf-
aði meðal annars í stjórn nemenda-
félags skólans (Minningarsjóður um
Karl Kristin Kristjánsson)
Þórhildur Arna Hilmarsdótt
ir fyrir ágætan árangur í þýsku og
dönsku (Verkalýðsfélag Akraness),
ágætan árangur í íslensku (Fjöl-
brautaskóli Vesturlands) og ágæt-
an árangur í efnafræði og líffræði
(Gámaþjónusta Vesturlands)
arg/ Ljósm. Myndsmiðjan/GH
Halldór Vilberg Reynisson ásamt Ágústu Elínu Ingþórsdóttir skólameistara. Hall-
dór hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í málmiðngreinum.
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.