Skessuhorn - 29.05.2019, Qupperneq 50
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 201950
Það var aldeilis gaman hjá leik-
skólabörnunum á meðfylgjandi
mynd síðastliðinn miðvikudag. Þá
voru börn af Vallarseli í heimsókn
á slökkvistöðinni við Kalmansvelli
og fengu að skoða sjúkrabíla, lög-
reglubíla og slökkviliðsbíla, máta
hjálma og fengu meira að segja að
setjast undir stýri og kveikja á sír-
enum. Börnin hreinlega geisluðu
af gleði og fannst þetta skemmtileg
upplifun. Að sögn Sigurðar Þórs
Elíssonar slökkviliðsmanns er þétt
bókuð dagskrá flesta daga til mán-
aðamóta að taka á móti skólum í
kynningar af þessu tagi. Börnun-
um er meðal annars sýnt hvernig
slökkva á eld í kari og fengu leik-
skólakennarar að spreyta sig á því.
mm
Ásta Marý Stefánsdóttir frá Skipa-
nesi í Hvalfjarðarsveit hélt burtfar-
arprófstónleika frá Söngskóla Sig-
urðar Demetz í Neskirkju 17. maí
síðastliðinn. Tónleikarnir voru
lokaverkefni hennar fyrir útskrift
frá skólanum. Spurð hvað tæki við
næst í söngnum segir hún það enn
óljóst. „Þetta er eins langt og ég get
komist en næsta stig í söngnámi er
í raun háskólanám. Ég var að ljúka
við að syngja í inntökuprófi fyrir
Listaháskóla íslands og það verður
bara að koma í ljós hvort ég kom-
ist inn eða ekki,“ segir Ásta Marý
þegar Skessuhorn heyrði í henni. Á
tónleikunum söng Ásta Marý verk
sem hún hefur verið að vinna að
síðustu ár. „Ég var með ljóðaflokk
sem ég kynnist fyrir fimm árum og
var að ljúka að læra núna, ljóða-
flokk eftir norska skáldið Edvard
Grieg. Ég söng líka aríu úr óper-
unni Suor Angelica eftir Puccini
sem við í Söngskólanum settum
upp í vor, aðra aríu eftir Puccini og
tvo sænsk ljóð eftir finnska skáld-
ið Sibelius,“ segir hún. Ásta Marý
syngur með mótettukór Hallgríms-
krikju og á tónleikunum fékk hún
kórfélaga sína, kórstjóra og organ-
ista til að flytja með sér verk. „Ég er
svo heppin að hafa fengið að syngja
sóló í þessu verki. Þetta er tíu mín-
útna kórverk með orgeli, sem við
fluttum saman á tóneikunum því
mér þótti skemmtilegt að geta
sýnt aðeins meira en bara óperu og
ljóðasöng,“ segir Ásta Marý.
„Kórstjórinn minn sagði
þetta vera fullorðins“
Tónleikarnir voru mjög vel heppn-
aðir og fékk Ásta Marý prýðilega
umsögn. „Umsögnin sem ég fékk
var alveg hreint frábær og ég fór
næstum að gráta þegar ég sá hana.
Ég var rosalega stressuð og hafði
áhyggjur af því að ég væri ekki
með nóg en svo kom á daginn að
þetta var bara frekar metnaðar-
fullt og stórt prógram. Kórstjór-
inn minn sagði þetta vera fullorð-
ins,“ segir Ásta Marý og hlær. Um
50 manns komu á tónleikana og
var Ásta Marý mjög ánægð með þá
mætingu. „Þetta var náttúrulega á
mjög slæmum tíma fyrir sveitunga
mína, svona í miðjum sauðburði.
En það voru nokkrir sem gátu lát-
ið sjá sig, sem mér þótti vænt um,“
segir hún. Á tónleikunum fékk
Ásta Marý mömmu sína upp á svið
með sér þar sem þær sungu dúett
sem aukalag. „Við sungum Sól-
setursljóð saman, en pabbi henn-
ar mömmu hefur beðið okkur um
að syngja þetta saman í nokkur ár.
Hann varð svo áttræður núna fyr-
ir stuttu og hefur sagt að flutning-
urinn okkar hafi verið afmælisgjöf-
in hans og hann er alveg rosalega
ánægður með hana,“ segir Ásta
Marý. Aðspurð segir hún að nú
taki við að læra nýtt verk sem hún
ætlar að flytja um páskana á næsta
ári með samnemanda sínum. „Það
er fallegt verk með tveimur kven-
nröddum sem við ætlum að skella í
og þurfum að fara að læra. En núna
næst hjá mér verður að halda tón-
leika á Hvalfjarðardögum í sum-
ar. Þar ætla ég að syngja svolítið af
efninu sem ég var með á tónleikun-
um,“ segir Ásta Marý.
arg
Síðastliðinn föstudag fór kunn-
uglegur ilmur að berast um
Grundarfjörð. Þá voru Bald-
ur Rafnsson og starfsfólk hans
að kveikja á pottunum í pylsu-
vagninum Mæstró street food í
miðju bæjarins. Nokkrir svangir
starfsmenn Grundarfjarðarbæj-
ar runnu á lyktina og voru með
þeim fyrstu til að bragða á góm-
sætum pylsum og bátum sem
starfsmenn vagnsins eru þekktir
fyrir að framreiða. Þetta er orð-
inn ákveðinn sumarboði er ilm-
andi matarlyktin frá vagninum
hans Baldurs ærir upp sultinn í
gestum og gangandi.
tfk
SjóSnæ hélt sitt árlega sjóstang-
veiðimót í Ólafsvík um liðna helgi.
Keppendur voru 29 að þessu sinni
og róið á sjö bátum. Sigurjón Helgi
Hjelm er formaður SjóSnæ. Hann
segir í samtali við Skessuhorn að
þátttakan á mótum þeirra hafi far-
ið upp á við, en engu að síður duttu
nokkrir sem höfðu skráð sig á þetta
mót út vegna útskriftar hjá fram-
haldsskólum sem voru víða þessa
sömu helgi. Sigurjón Helgi seg-
ir að þrátt fyrir leiðindaveður hafi
aflinn verið 9,2 tonn sem sé mjög
gott. Allir keppendur fengu nesti
og meðlæti með sér á sjóinn og sá
kirkjukórinn um að úbúa nestið.
Auk þess fengu þeir kaffi og með-
læti í grunnskólanum sem nem-
endur 9. bekkjar og foreldrar þeirra
sáu um. Á laugardagskvöldinu voru
verðlaun afhent í Von, húsi björg-
unarsveitarinnar Lífsbjargar. Þar
var einnig boðið upp á glæsilegan
kvöldverð. af
Pétur Sigurðsson frá SjóAk var afla-
hæstur með 926 kíló. Ljósm. þa.
Prýðileg veiði á sjóstang
veiðimóti SjóSnæ
Keppendur að landa aflanum. Ljósm. af.
Sigurjón Helgi Hjelm formaður SjóSnæ, Þröstur Albertsson aflahæsti skipstjórinn,
Elín Snorradóttir var aflahæst kvenna, Pétur Sigurðsson aflahæstur karla og Gun-
nar Jónsson leikari og aflakló. Ljósm. af.
Fengu að kynnast vælubílunum
Mæstró street food opnar
á ný í Grundarfirði
Þeir Gísli Már Jóhannsson, Dominik Wojciechowski og
Sigmundur Elías Kjartansson, starfsmenn Grundarfjarðar-
bæjar, létu sig ekki vanta fyrsta daginn.
Þær Freyja Líf Ragnarsdóttir og Kristbjörg Ásta Viðarstóttir
tóku brosandi á móti fyrstu viðskiptavinum sumarsins.
Hélt metnaðarfulla burtfararprófstónleika
Ásta Marý Stefánsdóttir. Ljósm. úr safni.