Skessuhorn - 29.05.2019, Qupperneq 51
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 2019 51
Vísnahorn
Stundum er fundið að
því við mig að ég birti of
lítið af hestavísum. Má
vera að ég forðist um of
að lita þáttinn af eigin áhugamálum en eitt-
hvað ætti nú að vera hægt að tína til. Mikið er
til af góðum hestavísum eftir Dala Jóa eða Jó-
hann Kristjánsson frá Bugðustöðum og væri
nú gaman ef Dalamenn gaukuðu einhverju af
slíku til mín en við skulum nú sjá hvað finnst
ef grannt er leitað.
Þeir voru góðir vinir og um margt sálu-
félagar Eyjólfur í Sólheimum og Jói. Báð-
ir hestamenn fram í fingurgóma og liprir og
næmir hagyrðingar. Eftir einhver samskipti
þeirra fékk Eyjólfur bréf frá Jóhanni sem end-
aði á þessari stöku:
Ég læt vaða öllu á,
eldar hraðir glóa,
eigðu blað með bögu frá
Bugðustaða Jóa.
Ég held (og takið eftir því að ég held en ekki
veit) að næsta vísa sé svar við þeirri á undan:
Svalt á klárnum sýnir lag,
sindra járn og glóa,
þakka ég fyrir bros og brag
Bugðustaða Jóa.
Ætli þessi sé ekki tengd inn í þau samskipti
líka:
Yfir birtir öllu þar,
eldi járnin dreifa,
sýnir klárinn sveiflurnar
Sólheima hjá Eyfa.
Næsta vísa finnst mér líka falla vel í þetta
samhengi en er ekki viss um höfund. Held þó
að þar hafi verið að verki annarhvor þeirra fé-
laga og þó líklega Eyjólfur frekar. Hún var í
mínum fræðum merkt sem afmælisvísa til
Sigurðar í Gröf og væri gaman ef einhver gæti
frætt mig nánar þar um. Dalamenn?:
Enn er klárnum gatan greið,
gleði árnar staka.
Þó að kárni og hvessi reið
hvergi járnin slaka.
Einhvern veginn minnir mig að næsta vísa
Jóa sé úr lengri flokki en sá er mér allavega
ekki tiltækur í augnablikinu og vísan stendur
fyllilega ein án nokkurs stuðnings:
Oft mig dreymir er ég finn
að mér streymir vorið.
Ég kom heim með hestinn minn,
hauðrið geymir sporið.
Þessi á heldur ekki að þurfa mikilla skýr-
inga við:
Finnst mér ganga flest í vil
fyrst ég hef á járnum,
meðan ég á tuggu til
töðu gef ég klárnum.
Seinni ár sín var Jói starfsmaður Reykjavík-
urborgar við gatnahreinsun og ýmis tilfallandi
verkefni. Hesta sína hélt hann þó og kvaddi
þá eitt vorkvöldið með þessum orðum:
Eydd eru dagsins orðin völd,
unaðsstundir horfnar,
ykkur sæll ég kveð í kvöld,
kem svo þegar morgnar.
Og um einn reiðhesta sinna í byrjun tamn-
ingar:
Fremur stutt ég fer á Gorm,
finnst hann vanta þorið
en gaman væri að fá í form
folann undir vorið.
Svo kom þessi þegar leið útá:
Það er að heyra af hófagamm
heldur meira fer hann.
Komin eyrun eru fram,
eitthvað fleira sér´ann.
Og enn seinna:
Upplitið er orðið kátt
ekkert fát við tauminn,
ófeiminn með höfuð hátt
horfir beint í glauminn.
Þessa lærði ég líka ungur og fannst hún góð
þá og finnst enn:
Hlægir mig að heyra grund
hljóma undan járnum.
Alla mína æfistund
uni ég mér á klárnum.
Allir sem eitthvað hafa fengist við tamning-
ar hafa öðru hverju lent á erfiðum hestum og
um einn slíkan orti Jói:
Trauðla bresta tökin stinn
tauma festir báða.
Þetta er hestur harðsnúinn
hann vill flestu ráða.
Stundum þurfa menn að ríða ógætilega og
sagði ekki Ásgeir frá Gottorp að Skagfirðing-
ar hefðu á tímabili haft gaman af slíku ef þeir
höfðu eitthvað til að gera það með. Allavega
hefur Jói riðið eitthvað geistlega þegar þessi
varð til:
Ekki lenti af laginu,
liggur fyrri dauður,
festist ekki í flaginu
fótalipri Rauður.
Það var nú eiginlega ekki meiningin að
helga Jóa einum þennan þátt þó hann hefði
vissulega átt það skilið en hér kemur ein eftir
Eyjólf í Sólheimum:
Sviphreinn skundar svifin auðs,
svell og grundir dala
myndu funda minnast Rauðs
mættu þær stundum tala.
Höskuldur Einarsson frá Vatnshorni var
einn af snillingum hestavísnanna og kvað um
einn af folum sínum:
Greiðar hófi ganga mátt
glaður móti vori.
Taktu fótinn fagra hátt
fleygðu grjóti úr spori.
Og í smalamennskum eða öðrum snúning-
um sem gátu orðið margir á hestbaki áður en
vegasamband komst á var ekki verra að vera á
röskum hesti:
Rennur fjallaleiðir létt
lappasnjalli kallinn.
Brennir hjalla grjótið grett,
geislar allur hallinn.
Það var hinsvegar Skagfirðingurinn Jóhann
Ólafsson sem var á heimleið að kvöldlagi ofan
af afrétti ásamt tveimur vinum sínum eftir erf-
iðan dag í girðingavinnu þegar þessi fæddist:
Dags úr bætir brasinu
bjartar næturstundir
að eiga glætu á glasinu
og góða fætur undir.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Brennir hjalla grjótið grett geislar allur hallinn
Borgarverksmót Hestamannafélags-
ins Borgfirðings var haldið í blíðskap-
arveðri um síðustu helgi. Á laugar-
deginum fór fram forkeppni í hring-
vallargreinum, gæðingaskeið og 100
m skeið. Á sunnudeginum voru úr-
slit í hringvallargreinum en samtals
voru 17 úrslit þann dag. Mótið var
mjög vel heppnað og veðrið lék við
gesti, að sögn mótshaldara.
Helstu úrslit voru þessi:
Fjórgangur meistarflokkur
1. Sigrún Rós Helgadóttir, Ljúfur
frá Egilsstaðakoti
2. Heiða Dís Fjeldsteð, Aljón frá
Nýjabæ
3. Þórdís Fjeldsteð, Líf frá Ferju-
bakka 3
Fjórgangur 1. flokki
1. Guðný Margrét Siguroddsdótt-
ir, Stæll frá Hrísdal
2. Anna Renisch, Alúð frá Lund-
um II
3. Hrafnhildur Jónsdóttir, Kraftur
frá Keldudal
Fjórgangur 2. flokkur
1. Guðrún Agata Jakobsdóttir,
Dimmir frá Strandarhöfði
2. Marthe Skjæveland, Gýgur frá
Skáney
3. Hanna Blixt, Svala frá Odds-
stöðum I
Fjórgangur Ungmenna
1. Gyða Helgadóttir, Freyðir frá
Mið-Fossum
2. Carolin Annette Boese, Bylgja
frá Sturlureykjum 2
3. Inga Dís Víkingsdóttir, Röðull
frá Söðulsholti
Fjórgangur Unglinaflokkur
1. Aníta Eik Kjartansdóttir, Lóðar
frá Tóftum
2. Anita Björk Björgvinsdóttir,
Fákur frá Skjólbrekku
3. Berghildur Björk Reynisdóttir,
Fúsi frá Flesjustöðum
Fjórgangur Barnaflokkur
1. Kolbrún Katla Halldórsdóttir,
Sigurrós frá Söðulsholti
2. Kristín Karlsdóttir, Frú Lauga
frá Laugavöllum
3. Harpa Dögg Heiðarsdóttir,
Flugsvin frá Grundarfirði
Tölti meistaraflokkur
1. Siguroddur Pétursson, Eldborg
frá Haukatungu Syðri 1
2. Þórdís Fjeldsteð, Snjólfur frá
Eskiholti
3.-5. Heiða Dís Fjeldsteð, Frami
frá Ferjukoti
3.-5. Þorsteinn Björn Einarsson,
Kristall frá Varmalæk
Tölti 1. flokkur
1. Guðný Margrét, Siguroddsdótt-
ir Stæll frá Hrísdal
2. Denise Michaela Weber, Brynja
frá Oddsstöðum I
3. Klara Sveinbjörnsdóttir, Garún
frá Eystra-Fróðholti
Tölti 2 flokkur
1. Marthe Skjæveland, Gýgur frá
Skáney
2. Gústaf Fransson, Hjörtur frá
Eystri-Hól
Tölt Ungmenna
1. Inga Dís Víkingsdóttir, Ósk frá
Hafragili
2. Arna Hrönn Ámundadóttir,
Seifur frá Miklagarði
3. Carolin Annette Boese, Bylgja
frá Sturlureykjum
Tölt unglingaflokkur
1. Heiður Karlsdóttir, Ómur frá
Brimilsvöllum
2. Aníta Eik Kjartansdóttir, Lóðar
frá Tóftum
3. Berghildur Björk Reynisdóttir,
Fúsi frá Flesjustöðum
Tölt Barnaflokkur
1. Kolbrún Katla Halldórsdóttir,
Sigurrós frá Söðulsholti
2. Kristín Karlsdóttir, Frú Lauga
frá Laugavöllum
3. Kristín Eir Hauksdóttir Holake,
Sóló frá Skáney
Tölt T4
1. Máni Hilmarsson, Lísbet frá
Borgarnesi
2. Hrafnhildur Jónsdóttir, Hrímnir
frá Syðri-Brennihóli
3. Sigrún Rós Helgadóttir, Tvífari
frá Varmalæk
Fimmgangur Meistarflokkur
1. Siguroddur Pétursson, Sægrím-
ur frá Bergi
2. Máni Hilmarsson, Nótt frá
Reykjavík
3. Heiða Dís Fjeldsteð, Gleði frá
Hvanneyri
Fimmgangur 1. flokkur
1. Leifur George Gunnarssonn,
Sveðja frá Skipaskaga
2. Klara Sveinbjörnsdóttir, Garún
frá Eystra-Fróðholti
3. Hanna Sofia Hallin, Krakatind-
ur frá Hæli
Fimmgangur Ungmennaflokkur
1. Arna Hrönn Ámundadóttir,
Brennir frá Votmúla
2. Kolbrún Katla Halldórsdóttir,
Drangey frá Saurbæ
3. Linnea Pedersen, Naha frá
Áskoti
Gæðingaskeið 1. flokkur
1. Leifur George Gunnarssonn,
Finnur frá Skipaskaga
2. Tinna Rut Jónsdóttir, Ómur frá
Litla-Laxholti
3. Arna Hrönn Ámundadóttir,
Brennir frá Votmúla
Gæðingskeið meistarflokkur
1. Haukur Bjarnason, Bragi frá
Skáney
2. Þórdís Fjeldsteð, Niður frá
Miðsitju
3. Máni Hilmarsson, Nótt frá
Reykjavík
100 m skeið
1. Styrmir Snorrason, Glitnir frá
Skipaskaga
2. Randi Holaker, Þórfinnur frá
Skáney
3. Haukur Bjarnason, Bragi frá
Skáney
arg/iss
Borgarverksmótið í blíðskaparveðri
Fimm efstu í tölti í 1. flokki taka við verðlaunum sínum. Ljósm. iss.