Skessuhorn - 29.05.2019, Page 55
MIÐVIKUDAGUR 29. MAí 2019 55
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Knattspyrnumaðurinn Bjarki
Steinn Bjarkason hefur skrifað
undir þriggja ára samning við íA.
Bjarki er fæddur árið 2000 og al-
inn upp hjá Aftureldingu í Mos-
fellsbæ, en hefur leikið með liði
Skagamanna frá því á síðasta ári.
Hann hefur farið vel af stað með íA
nú í vor, leikið alla sex leiki liðsins í
deild og bikar og skorað tvö mörk.
Allt í allt á Bjarki að baki 26 leiki
fyrir lið Skagamanna og í þeim hef-
ur hann skorað þrjú mörk. „Það er
stór áfangi að ungur og efnilegur
leikmaður eins og Bjarki sé búinn
að semja til lengri tíma við félagið.
Þetta sýnir að hann er með metn-
aðinn í lagi og ætlar sér stóra hluti
í framtíðinni,“ segir Sigurður Þór
Sigursteinsson, framkvæmdastjóri
KFíA. Bjarki Steinn var sömuleið-
is ánægður með nýja samninginn.
„Ég er ánægður með að gera nýj-
an samning við íA. Það er frábær
stemning í hópnum og liðsheildin
er mjög þétt. Tímabilið hefur byrj-
að ótrúlega vel og það er virkilega
gaman að taka þátt,“ segir Bjarki
Steinn.
kgk
„Borgfirðingar taka alltaf þátt í
Hreyfiviku UMFí. Við leggjum
okkur líka fram um að bjóða öll-
um að vera með, bæði börnum og
fullorðnum,“ segir Sigurður Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Ung-
mennasambands Borgarfjarðar.
Hreyfivika UMFí hófst á mánudag-
inn og geta landsmenn tekið þátt í
alls konar hreyfitengdum viðburð-
um í sinni heimabyggð. í tilkynn-
ingu frá UMFí segir að samtökin
vonist til að hreyfivikan virki sem
hvatning til að fólk hreyfi sig og
að allir finni sína uppáhalds hreyf-
ingu og njóti hennar reglulega í að
minnsta kosti 30 mínútur á hverj-
um degi. Hreyfivika UMFí er sam-
evrópskt verkefni sem hefur verið
haldið á hverju ári síðan árið 2012.
100 viðburðir um
allt land
Boðið er upp á meira en 100
viðburði um allt land í vikunni.
Hægt er að sjá á vefsíðu Hreyfi-
vikunnar hvað er í boði í hver-
ju sveitarfélagi. í Borgarfirði er
Hreyfivikan í samstarfi við heil-
sueflandi samfélag í Borgarbyggð.
Hægt hefur verið að koma á æfingu
hjá knattspyrnudeild Skallagríms,
mæta á aðra viðurði, taka þátt í
gönguferðum eða stunda crossfit.
Fyrirlestrar um hreyfingu og heil-
brigði eru í Hjálmakletti, Stefanía
Nindel býður í jógatíma á Hvan-
neyri, þar verður einnig ringó og
fleira í boði. Sigurður hvetur íbúa
Borgarbyggðar til að nýta sér
viðburðina sem boðið verður upp
á alla vikuna. mm
íA og Grindavík gerðu marka-
laust jafntefli þegar liðin mætt-
ust í þriðju umferð Inkasso deild-
ar kvenna í knattspyrnu á föstudag-
inn. Leikið var í blíðskaparveðri á
Akranesi.
Leikurinn var heilt yfir frekar
jafn og mikill baráttuleikur. Bæði
lið fengu sín marktækifæri en tókst
ekki að nýta þau. Grindvíkingar
vildu fá vítaspyrnu á 29. mínútu
þegar Birgitta Hallgrímsdóttir féll
í teignum eftir átök við Dagnýju
Halldórsdóttur. Guðni Þór Þórs-
son, dómari leiksins, var hins vegar
ekki á þeim buxunum og lét leikinn
halda áfram.
Síðari hálfleikur var keimlíkur
þeim fyrri, jafnræði með liðun-
um og hart barist. Hvorugu liðinu
tókst hins vegar að koma knettin-
um í netið og því lauk leiknum með
jafntefli, 0-0.
Skagakonur hafa fimm stig eftir
fyrstu þrjá leiki sumarsins og sitja í
fjórða sæti deildarinnar, stigi á eft-
ir Augnabliki í sætinu fyrir ofan en
stigi á undan næstu liðum fyrir neð-
an. Skagakonur leika næst í deild-
inni fimmtudaginn 6. júní næst-
komandi, þegar þær heimskja íR.
í millitíðinni leika þær hins vegar
gegn Þrótti R. í Mjólkurbikarnum.
Sá leikur fer fram á Akranesvelli á
föstudaginn, 31. maí.
kgk
íA styrkti stöðu sína á toppi Pepsi
Max deildar karla í knattspyrnu
með 2-0 sigri á Stjörnunni á Akra-
nesvelli á sunnudag. Stjarnan byrj-
aði leikinn af krafti og náði Guðjón
Baldvinsson skoti á markið strax á
fyrstu mínútu leiksins. Það gaf hins
vegar ekki tóninn fyrir það sem á
eftir kom, því fyrri hálfleikur var
fremur bragðdaufur. Skagamenn
spiluðu þétta vörn og hvorugt liðið
náði að skapa sér nein alvöru mark-
tækifæri.
Áfram var jafnræði með liðunum
í upphafi síðari hálfleiks, eða allt
þar til Einar Logi Einarsson kom
Skagamönnum yfir á 54. mínútu.
Eftir innkast frá vinstri fékk Stein-
ar Þorsteinsson boltann, sendi góða
sendingu fyrir markið á Einar sem
skoraði af stuttu færi.
Stjörnumenn virkuðu slegnir
og fóru varla yfir miðju fyrst eftir
markið. Eftir það komst leikurinn í
meira jafnvægi, en Skagamenn voru
heilt yfir áræðnari í sínum aðgerð-
um. Þeir náðu nokkrum ágætum
sprettum án þess þó að skapa sér
nein opin marktækifæri.
Eftir því sem leið á leikinn
reyndu Stjörnumenn hvað þeir gátu
að jafna metin, en aðgerðir þeirra
virkuðu ekki líklegar til árangurs.
Það var síðan í uppbótartíma sem
Skagamenn innsigluðu sigur sinn.
Eftir aukaspyrnu frá vinstri vængn-
um var boltinn sendur fyrir mark-
ið. Skagamenn unnu fyrsta boltann
á fjær, boltinn barst fyrir markið
að nýju og þar renndi Steinar sér á
hann og skoraði af stuttu færi.
Skagamenn hafa 16 stig á toppi
deildarinnar eftir sex umferðir,
þremur stigum meira en Breiðablik
í sætinu fyrir neðan. Næsti deildar-
leikur íA verður gegn íBV í Vest-
mannaeyjum 2. júní næstkomandi.
í millitíðinni leika Skagamenn hins
vegar gegn FH í Mjólkurbikarn-
um. Sá leikur fer fram á morgun,
fimmtudaginn 30. maí.
kgk
Víkingur Ó. vann góðan
sigur á Þór Ak. í fjórðu um-
ferð Inkasso deildar karla
í knattspyrnu á föstudags-
kvöld, 2-0. Leikið var á
Ólafsvíkurvelli.
Heimamenn fengu óska-
byrjun og komust yfir strax
á 8. mínútu leiksins. Martin
Kuittinen tók hornspyrnu
frá hægri og sendi boltann
fyrir. ívar Örn Árnason reis
manna hæst í vítateignum
og skallaði í átt að marki þar
sem Jacob Andersen potaði honum
í netið eins og sönnum framherja
sæmir.
Þórsarar sóttu í sig veðrið eftir
að heimamenn komust yfir og fen-
gu vítaspyrnu á 20. mínútu. Nacho
Gil, sem skoraði úr tveimur vítas-
pyrnum í síðasta leik, fór á punktinn
en spyrna hans var hins vegar afleit
og framhjá markinu. Jafnræði var
með liðunum næstu 20 mínúturnar,
eða allt þar til Ólafsvíkingar fengu
vítaspyrnu á 40. mínútu leiksins. Ja-
cob ætlaði framhjá Aroni Birki Ste-
fánssyni, markverði Þórs, sem felldi
hann og vítaspyrna dæmd. Harley
Willard tók spyrnuna og skoraði af
miklu öryggi. Víkingur Ó. var 2-0
yfir í hálfleik.
Gestirnir frá Akureyri byrjuðu
síðari hálfleikinn af miklum kraf-
ti en vörn Víkings Ó. stóð
sína plikt. Vörn Víkinga
var frábær allan leikinn og
líklega það sem skóp si-
gur heimamanna. Leiku-
rinn róaðist síðan eftir því
sem leið á og liðin sköpuðu
sér ekki mikið af færum.
Það var ekki fyrr en á lo-
kamínútunum að gestirnir
sóttu í sig veðrið að nýju.
Þeir höfðu hins vegar ekki
erindi sem erfiði og liðs-
menn Víkings Ó. hrósuðu
2-0 sigri.
Ólafsvíkingar eru í öðru sæti
deildarinnar með tíu stig eftir fyr-
stu fjórar umferðirnar, jafn mörg
stig og topplið Keflavíkur og sti-
gi meira en Fjölnir í sætinu fyrir
neðan. Næsti leikur Víkings Ó. er
útileikur gegn Leikni R. á föstu-
daginn, 31. maí.
kgk
Sigurður Guðmundsson er framkvæmdastjóri UMSB.
Margir taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ
Yfir 100 viðburðir eru á dagskrá hreyfiviku UMFÍ.
Sigurður Þór Sigursteinsson, fram-
kvæmdastjóri KFÍA og Bjarki Steinn
Bjarkason handsala samninginn.
Ljóms. KFÍA.
Bjarki Steinn semur við ÍA til þriggja ára
Sterkur varnarleikur skóp sigurinn
Leikmenn Víkings Ó. fagna marki í leiknum gegn Þór Ak.
Ljósm. af.
Skagamenn tróna
á toppnum
Varnarmaðurinn Einar Logi Einarsson skoraði annan leikinn í röð þegar hann kom
Skagamönnum yfir gegn Stjörnunni. Ljósm. gbh.
Tori Ornela, markvörður ÍA, handsamar knöttinn. Hún var valin maður leiksins af
áhorfendum á Akranesvelli. Ljósm. gbh.
Markalaus baráttuleikur