Gríma - 01.11.1929, Síða 30

Gríma - 01.11.1929, Síða 30
10 ÞÁTTUR AF HELGA PRESTI BENEDIKTSSYNI 5. Hllöð í Húsavíkurbæ. Einhverju sinni, er Helgi prestur var að Húsavík, vaknaði fólk þar.í baðstofunni á náttarþeli við hljóð mikið frammi í bænum; leið svo nokkur stund, þar til annað enn meira hljóð heyrðist, svo að hvert mannsbarn hrökk upp. Brá séra Helgi þá við og fór á nærfötunum upp úr rekkjunni og fram í bæ; var hann stundarkorn frammi. Þegar hann var kominn inn aftur í rekkjuna til konu sinnar, spurði hún hann, hvað þetta muni hafa verið; sagði prest- ur það hafa verið anda manns eins, er grafinn sé í garðinum, og hafi lifað illa; hann búizt við, að grafinn verði innan skamms við hlið sér góður maður, en hann kunni því illa. Sagðist prestur ætla að gera sitt til, að það verði ekki gert. Ef þriðja hljóðið hefði komið, sagði hann að fólkið mundi hafa ærzt í baðstofunni. Björg, dóttir þeirra hjóna, svaf til fóta þeirra og heyrði talið. 6. Frá Stafúsi Helsasyni. Svo er sagt, að Sigfús, sonur séra Helga, hafi verið að bauka við kukl og forneskju sér til nytja, en að faðir hans hafi verið fljótur að taka fram í fyrir honum. Einhverju sinni stóð uppi í Húsavík- urkirkju lík af merkum manni úr sókninni. Fór þá Sigfús og maður sá, er Þorvaldur hét, með honum út í kirkjuna og tóku þeir af líkinu sveitadúk og eitthvað fleira, helzt neglur, og höfðu með sér upp í svefnloft sitt. Hugðust þeir með þeim hætti að hafa fréttir af hinum dána um ókomna og ókunna hluti. En þegar þeir höfðu þetta aðhafst, urðu þeir svo hræddir um aðsókn í svefnloftið af hendi hins dána, að þeir þorðu eigi annað en viðhafa varúðar-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Gríma

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.