Bændablaðið - 11.08.2016, Page 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Fréttir
Fátt bendir til þess að slátur-
leyfishafar miði verðlagningu nú
á komandi hausti við tillögur um
viðmiðunarverð Landssamtaka
sauðfjárbænda (LS) sem kynntar
voru í lok júlí þar sem farið er fram
á að skilaverð til bænda hækki
um 12,5%. Sláturleyfishafar hafa
enn ekki kynnt verð fyrir sláturtíð
haustið 2016.
Frumframleiðendur njóti
sanngjarnrar hlutdeildar
„Algengt er að íslenskir bændur fái
sem nemur á bilinu 25%–41% af
endanlegu útsöluverði lambakjöts
í sinn hlut. Þegar tekið hefur verið
tillit til 11% virðisaukaskatts þýðir
þetta að milliliðir; sláturhús, kjöt-
vinnslur og verslanir, taka á bilinu
49% til 65% af endanlegu útsölu-
verði til sín,“ segir í tilkynningu
frá LS.
Fram kemur í rökstuðningi sauð-
fjárbænda að skilaverð til bænda
hafi lækkað undanfarin tvö ár og
haldi ekki í við verðbólgu eða launa-
þróun og því sé nauðsynlegt að
hækka verð til bænda í haust. Bent
er á að sala á kindakjöti hafi aukist
síðustu mánuði, m.a. um 21,5% á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þeir
nefna einnig í sínum rökstuðningi
að afurðaverð til sauðfjárbænda
hafi lækkað um 0,7% undanfarin
tvö ár. Telja þeir eðlilegt að sem
frumframleiðendur njóti þeir sann-
gjarnrar hlutdeildar af endanlegu
söluverðmæti eigin framleiðslu og
sjá litla sanngirni í að bera allan
kostnaðarauka sem leiðir af hækkun
aðfangaverðs eða launahækkunum
annars staðar í virðiskeðjunni.
„Hófstilltar og sanngjarnar kröfur
bænda hlutu ekki hljómgrunn í fyrra
og útgefið viðmiðunarverð þeirra
var ekki lagt til grundvallar við
útgáfu verðskráa sláturleyfishafa.
Þetta hefur þýtt beina kjaraskerðingu
bænda,“ segir stjórn LS í tilkynn-
ingu og leggur því til að afurðaverð
verði leiðrétt á komandi hausti til
samræmis við launavísitölu síðast-
liðinna 12 mánaða, eða um 12,5%.
Verð tekur ekki mið af
markaðsaðstæðum
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
segir sauðfjárbændur eiga rétt á
að birta við-
miðunarverð
og sjálfsagt að
þeir geri það.
Engin sérstök
viðbrögð séu
af hálfu SS
við þeirri við-
miðun sem sauðfjárbændur hafa
birt, „en ljóst að hún tekur ekki mið
af markaðsaðstæðum og lágu verði
innanlands og utan,“ segir hann.
Sláturleyfishafar muni væntanlega
birta verð síðar í mánuðinum og þá
kæmi verðlagning haustsins í ljós.
Höfum ekki annan kost
„Miðað við núverandi aðstæð-
ur á markaði
fyrir sauðfjár-
afurðir, ekki
síst á útflutn-
ingsmörkuð-
um þangað
sem drjúgt af
kjöti þarf að
fara og flestar
aukaafurðir, er því miður fátt sem
bendir til þess að hægt sé að miða
við tillögur LS við ákvörðun verð-
lagningar haustið 2016. Við höfum
ekki annan kost en að miða við
söluverð okkar afurða þegar inn-
kaupsverð hráefnis er ákvarðað,
það er veruleikinn í okkar rekstri,“
segir Ágúst Torfi Hauksson, fram-
kvæmdastóri Norðlenska, en félag-
ið hafi kynnt sér röksemdafærslu og
viðmiðunarverð LS vegna komandi
sláturtíðar. / MÞÞ
Landssamtök sauðfjárbænda fara fram á 12,5% hækkun á skilaverði:
Telja eðlilegt að frumframleiðendur
fái meira í sinn hlut af útsöluverði
Sala á kjöti síðustu 12 mánuði er
8,6% meiri en árið á undan. Sala á
kindakjöti í júlí var 1,7% meiri en í
júlí í fyrra. Kjúklinga- og svínakjöt
er í sókn en samanburðurinn þar
milli síðustu 12 mánaða og sama
tímabils þar á undan sýnir 8,4%
og 8,3% söluaukningu. Miklar
breytingar eru á framleiðslu og
sölu á nautgripakjöti.
Þetta kemur fram í nýju söluyfirliti
Matvælastofnunar. Sala á innfluttu kjöti
er ekki inni í talnasafni MAST.
Sala á íslensku nautgripakjöti síðustu
12 mánuði er tæpum 30% meiri en 12
mánuðina þar á undan. Kúabændur
hafa nú dregið úr mjólkurframleiðslu
og afsett gripi í meira mæli en áður. Þá
er líklegt að þeir hafi sett aukinn kraft
í kjötframleiðsluna á móti minnkandi
tekjum af mjólkinni. Þann 1. júlí var
hætt að greiða mjólkurframleiðendum
sama verð fyrir mjólk sem framleidd er
innan og utan greiðslumarks.
Á sama tíma og innan lands-
framleiðsla á nautakjöti hefur aukist
hefur innflutningur dregist saman.
Fyrstu 6 mánuði ársins hefur innflutn-
ingsmagn minnkað um tæp 50% en
verðmæti aðeins dregist saman um
rúm 12%. Innlenda framleiðslan er
með stærri hlut af markaðnum en áður
en þó er áfram aukning í innflutningi
á lundum, eða dýrasta hluta nautsins.
Mun minna er flutt inn af hakkefni en
áður.
Í kindakjötinu reyndist fyrri hluti
ársins mjög góður en söluaukning var
rúm 8% fyrstu 6 mánuði ársins. Það
er nær allt vegna innanlandssölu, en
selt magn á tímabilinu var 270 tonnum
meira í ár en í fyrra, en útflutningurinn
var nánast sá sami. /TB
Kjötsala eykst
um 8,6%
Réttardagar á
komandi hausti
Undanfarin ár
hefur Bænda-
blaðið tekið
saman og birt
lista yfir réttar-
daga í helstu
fjár- og stóð-
réttum landsins að hausti, bæði
í blaðinu og á bbl.is.
Mikilvægt er að upplýsingar
um réttardaga berist sem fyrst til
blaðsins. Eru fjallskilastjórar og for-
ráðamenn sveitarfélaga, auk annarra
sem hafa öruggar upplýsingar um
réttahald í haust, því beðnir að senda
þær upplýsingar á netfangið tb@
bondi.is.
Vilja lægri
flugfargjöld
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
tók á fundi sínum nýverið eindreg-
ið undir bókun sem samþykkt var
í Bæjarstjórn Akureyrar í byrjun
sumars og varðar innanlandsflug
sem almenningssamgöngur.
Í bókun Bæjarstjórnar Akureyrar
er skorað á ríkisstjórn Íslands að
taka til skoðunar niðurgreiðslu og
jöfnunarkerfi í innanlandsflugi. Bent
var á leið sem farin hefur verið í
Skotlandi til að koma til móts við
íbúa sem treysta á flugsamgöngur á
strjálbýlum svæðum landsins. Hún
gengur út á að veita íbúum með lög-
heimili á ákveðnum svæðum rétt til
50% afsláttar af fargjöldum hjá flug-
félögum.
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
bendir á að í afskekktum byggðum
erlendis séu enn hærri afslættir í boði
en bókunin segir til um. /MÞÞ
Björn Víkingur Björnsson,
framkvæmdastjóri Fjallalambs
á Kópaskeri, segir að á aðalfundi
félagsins fyrr í sumar hafi verið
rætt um að trúlega þyrfti að
lækka verð til bænda á komandi
hausti. Fjallalamb hefur ekki
gefið út verðskrá fyrir komandi
haust.
Hann segir að árið 2015 hafi
verið sláturleyfishöfum mjög
erfitt, reksturinn verið þungur.
„Skýringuna á því er aðallega að
finna í magni lambakjöts á mark-
aði, hækkun launa, stöðu íslensku
krónunnar og annarra gjaldmiðla,“
segir hann.
„Fyrir nokkrum árum var
útflutningsskylda á framleið-
endum sem fundin var út þannig
að tekin var heildarframleiðsla
lambakjöts og ársneysla þjóðar-
innar dregin frá því.
Sú framleiðsla sem var
umfram neyslu þjóðarinnar var
þessi útflutningsskylda. Hún var
oft 20–25%. Bændur fengu svo
greitt í samræmi við það verð sem
fékkst fyrir hana í útflutningi.
Þessi munur á milli framleiðslu
og neyslu þjóðarinnar hefur síst
minnkað.“
Kjöt lendir á útsölum
Hann segir að sláturleyfishafar verði
að flytja út fyrir landið talsvert magn
af kjöti, meðal annars til þess að ekki
safnist upp birgðir. Vegna gengis
íslensku krónunnar gagnvart gjald-
miðlum okkar helstu viðskiptalanda
verður sá útflutningur rekinn með
tapi á komandi ári, „þá lendir þetta
kjöt á útsölum hér innanlands þar
sem allir sláturleyfishafar tapa, til
viðbótar við óhagstætt gengi er verð
á hliðarafurðum að lækka umtals-
vert,“ segir Björn Víkingur.
Eina stýritækið
„Eðlileg markaðslögmál virka
þannig að ef of mikið framboð er
á ákveðinni vöru þá lækkar hún í
verði, neytendum og smásöluaðilum
til góða. En hversu mikils virði er
það fyrir Íslendinga að geta keypt
lambakjöt á lægra verði út úr búð ef
það verður til þess að bændur hætti
framleiðslu?
Það er mjög slæmt að lækka verð
til bænda á komandi hausti en það
er eina stýritækið í dag sem slát-
urleyfishafar hafa til að mæta lækk-
andi verði á mörkuðum.“ /MÞÞ
Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs á Kópaskeri:
Rætt um á aðalfundi að
trúlega þyrfti að lækka verð
Steinþór Skúlason.
Hauksson.
Söluaukning á mjólkurvörum þrátt fyrir úrskurð Samkeppniseftirlitsins:
MS jók söluna í júlí um 4 prósent frá fyrra ári
– mikil söluaukning hefur orðið hjá Örnu og BioBúi
Sem kunnugt er sektaði Sam-
keppnis eftir litið Mjólkur-
samsöluna í byrjun júlí síð-
astliðnum vegna alvarlegrar
misnotkunar fyrirtækisins á
markaðsráðandi stöðu. Í kjölfar-
ið bárust fréttir af mikilli sölu-
aukningu hjá mjólkurvinnslunni
Örnu í Bolungarvík í júlímánuði.
Hjá Mjólkursamsölunni kann-
ast menn ekki við að ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins hafi haft
neikvæð áhrif á sölutölur í júlí.
Jón Axel Pétursson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
Mjólkursamsölunnar, segir að góð
sala hafi verið á mjólkurvörum í dag-
vörusölu í síðastliðnum júlímánuði.
„Júlí er stærsti mánuður ársins, eins
og í fyrra. Áætlanir okkar gerðu ráð
fyrir sölu að verðmæti 2.063 m.kr. en
mánuðurinn endaði í 2.144 m.kr., eða
fjórum prósentum yfir áætlun okkar
fyrir mánuðinn.
Sé árið í heild frá janúar til júlí
skoðað í samanburði við áætlanir
okkar fyrir árið, standast áætlanir
okkar hvað sölu varðar – bæði hvað
varðar birgðavöru og ferskvöru.
Þannig voru áætlanir okkar fyrir
janúar til júlí 13.114 m.kr. en salan
reyndist 13.396 m.kr. – eða 2,1 pró-
sent yfir áætlun í verðmætum.
Þegar júlí í ár og júlí í fyrra eru
skoðaðir saman verður að taka mið
af fjölda sölu-
daga sem hefur
mikil áhrif á
veltu ferskra
vara eins og hjá
okkur.
Í júlí í fyrra
voru 24,6 sölu-
dagar á móti 23
söludögum í ár
og það hefur áhrif á þennan sam-
anburð, en við tökum tillit til þessa
við áætlanagerðina. Salan í júlí núna
var engu að síður 2.144 m.kr. á móti
2.062 m.kr. í fyrra – eða fjögur pró-
sent meiri. Með sama hætti verður
ágúst með fleiri söludögum núna
heldur en í fyrra.“
Jón Axel segir erfitt að fullyrða
að úrskurðurinn hafi engin áhrif haft
á söluna. „Við vitum ekki hver salan
væri ef hann hefði ekki komið til. Það
sem við horfum fyrst og fremst á, er
að ná þeim sölumarkmiðum (í magni
og verðmætum) sem sett eru fram í
söluáætlun ársins og úrskurðurinn
hefur, í það minnst hingað til, ekki
haft neikvæð áhrif því sölumarkmið
ársins hafa náðst.“
Mikil söluaukning hjá Örnu
Hálfdán Óskarsson, framkvæmdastjóri
Örnu, segir að aðeins sé farið að
hægja á söluaukningunni á eftir mikla
aukningu í júlí
– sérstaklega
í drykkjar-
mjólkinni þar
sem salan átt-
faldaðist. „Í
þessari viku er
aukningin fjór-
föld sem ég hef
trú á að haldist
áfram. Yfir heildina tvöfaldaðist salan
og endar líklega í 40 prósenta aukn-
ingu þegar rykið sest.
Núna í næstu viku setjum við á
markað hreina gríska jógúrt sem ætluð
er til matargerðar, í september kemur
Grísk haustjógúrt sem við bragð-
bætum með íslenskum aðalbláberj-
um. Síðan er stefnan að fjölga bragð-
tegundum í þeim vörum sem við erum
nú þegar með auk þess sem við erum
að hefja framleiðslu á laktósafríum ís.
Að sögn Hálfdánar hefur ekki
verið vandamál að fá mjólk, vegna
söluaukningarinnar. „Hrámjólkin
kemur héðan af svæðinu en ef vantar
meira þá er það keyrt úr Dölunum.
Mjólkursamsalan hefur keyrt hana
hingað vestur þegar þörf hefur verið á.
Hillupláss fyrir okkar vörur hefur
aukist með meiri sölu, síðan er það
eilíf barátta að halda sínu plássi á milli
áfyllinga. MS hefur öflugt gengi sem
er að vinna úti í búðunum og ef okkar
vörur klárast eru þeir fljótir að setja
sínar vörur þar ef búðarfólkið passar
ekki upp á,“ segir Hálfdán.
Hann segir að á þessu ári hafi Arna
þurft að fjölga starfsmönnum jafnt
og þétt og ljóst sé að fjölga þurfi
starfsmönnum einnig í haust.
Öll lífrænt vottuð mjólk
er nú þegar nýtt
Helgi Rafn Gunnarsson er fram-
kvæmdastjóri BioBús, sem sér-
hæfir sig í vinnslu
á lífrænt vottuðum
mjólkurafurðum.
Hann segist hafa
fundið fyrir aukinni
sölu í júlí, en hún
sé ekki nema um 20
prósent og væri meiri
ef lagerinn hefði ekki
klárast fljótlega eftir að umræð-
an fór af stað í kjölfar úrskurð-
ar Samkeppniseftirlitsins. Nú er
verk efni okkar að skammta vörur
í verslanir og lágmarka vöruskort í
verslunum.
Vaxtamöguleikar okkar eru mjög
takmarkaðir þar sem við nýtum nú
þegar alla lífræna mjólk sem er í
boði. Verkefni dagsins er að finna
framsýnan jákvæðan bónda sem er
til í að skipta úr hefðbundinni fram-
leiðslu yfir í lífræna.“ /smh
Jón Axel Pétursson. Hálfdán Óskarsson.