Bændablaðið - 11.08.2016, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Efst á baugi MÆLT AF
MUNNI FRAM
Til þess að ekki halli á með hag-yrðingum frá vísnakvöldi Karlakórs Eyjafjarðar, þá fær Jóhannes
Sigfússon auðvitað tvo vísnaþætti undir sinn
kveðskap þetta kvöld. Eins og frá var greint
í síðasta þætti, þá kom Jói frekar fátæk-
lega búinn af kveðskap til samkomunnar, en
orti þeim mun ákafar undir borðum. Birgir
beindi spurningu til Jóhannesar: „ Er mikið
stóðlíf í Þistilfirði“?
Vel menn búa öllu að,
og aðeins þynna blóðið.
Seint þó komist kannski á blað
Krossavíkurstóðið.
Hér er Jóhannes að sveigja dólgslega að
stjórnandanum Birgi, en ekki síður konu
hans Rósu, vammlausri vildiskonu, ættaðri
frá Krossavík.
Birgir beinir næst til Jóa hvað honum
þyki um hinn gríðarlega fjölda ferðamanna
sem nú sæki Ísland heim:
Allir menn það ættu að sjá
að til fjandans stefnum,
ef ferðamönnum Fróni á
fjölgar eins og refnum.
Jói sendi svo sessunautum sínum
óumbeðinn, umsagnir við hæfi. Björn
Ingólfsson fékk þessa vísu:
Ætla má að enga vörn
eigi sér við hæfi
þeir sem hafa þolað Björn
þetta langa ævi.
Og um læknisafrek Péturs Péturssonar og
Hjálmars Freysteinssonar orti Jói:
Ég afrek þeirra illa skil.
Um það vitna merkin
að fjarska verða fáir til
frásagnar um verkin.
Og Árna Geirhirti færði hann þessa vísu:
Sölumaður Árni er
alveg af besta tagi.
En selur ekki sykur og ger
sitt í hvoru lagi.
Jóa er það mikil skemmtan og hefur verið
lengi, að nudda mér upp úr landasölu og
dreifingu:
Árni í Felli yrkja kann
þó ekki á honum beri,
ef sett er ögn af sykri í hann
og svolítið af geri.
Fyrir margt löngu vældi Jóhannes út úr mér
fáeinar landaflöskur sem mér höfðu verið
gefnar til gleðiauka. Kvaðst hann myndi
launa mér þær ríkulega síðar. En svo liðu
nú árin, en í jólakorti kom þó greiðslan
fyrir rest:
Oft mig hefur áður meir
andagiftin snortið
þegar niður læt ég leir
leka á jólakortið.
Ennþá hvílir alger smán
yfir verkum mínum,
frá því að ég flöskulán
fékk úr sjóði þínum.
Ennþá hef ég ekkert greitt
og það verður snúið,
því flöskunum hef ég alveg eytt
og innihaldið búið.
Um söngstjóra Karlakórsins, Petru Björk
Pálsdóttur, eiginkonu Árna Geirhjartar,
orti Jóhannes:
Indæl er alla daga,
allt vill hún bæta og laga.
Sexí og sæt
og sérlega mæt,
en hefur sinn djöful að draga.
Síðan er Jói spurður um forsetaefnin í
Bandaríkjunum og hvort hann kysi frekar,
Donald Trump eða Hillary Clinton?
Clinton virðist vösk og trú
og vera á öðru plani.
En djöfull sýnist Donald nú
dæmigerður Kani.
159
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Forsetahjónin kynntu sér landbúnað og handverk í Eyjafirði:
Handverkshátíð og
landbúnaðar-
sýning að Hrafnagili
„Hátíðin tókst afskaplega vel, veðrið
lék við okkur alla dagana,“ segir Guðný
Jóhannesdóttir, annar af tveimur fram-
kvæmdastjórum Handverkshátíðar að
Hrafnagili sem haldin var um liðna helgi.
Jafnframt var efnt til veglegrar landbúnað-
arsýningar sem vakti verðskuldaða athygli.
Heimsóknir á hátíðina voru um 20 þúsund,
en meðal gesta voru forsetahjónin, hr. Guðni Th.
Jóhannesson og frú Eliza Reid sem nutu þess
að ganga um sýninguna og kynna sér glæsilegt
handverk og starfsemi íslensks landbúnaðar.
Árlega velur valnefnd Handverkshátíðar fal-
legasta sölubás ársins og handverksmann ársins.
Handverksmaður ársins er Guðrún Kolbeins
fyrir frábæra hönnun og handverk sem unnin
er af fagmennsku, þar sem aldagömul vefn-
arðarhefð er færð til nútímans. Hildur H. List-
hönnun hlaut verðlaun fyrir sölubás ársins og
Kristján Guðlaugsson hjá Brak-handverk fékk
hvatningarverðlaun hátíðarinnar, en skemmtileg
nýting hans á rekavið kemur á óvart í frumleg-
um slaufum.
/MÞÞ
Pétur Halldórsson, kynningarstjóri Skógræktarinnar, bauð forsetahjónunum upp á hið rómaða
Myndir / MÞÞ og FB-síða Handverkssýningarinnar
Listamaðurinn Hreinn Halldórsson með skö-
punarverkum sínum, þeim Guðrúnu frá Lundi
Guðni spreytti sig á getraun þar sem spurt
Guðrún Kolbeins var valin handverksmaður