Bændablaðið - 11.08.2016, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta -
Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Beinn innflutningur til Akureyrar
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
%
afsláttur af öllum dekkjum
til . 201
Handverkfæri
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412
Gráblesi í Reykjadal
Til sölu sumarhúsið Gráblesi og land í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu
Staðsetningin er nánast í miðju þríhyrningsins Mývatn, Akureyri og Húsavík.
Landstærð er talin vera um 4 hektarar, upphaflega
úr landi Helgastaða og er um að ræða eignarland.
Mikill gróður og ægifagurt land. Algjör paradís sem
fáir vita um. Mikið fuglalíf. Hefur alltaf verið í eigu
sömu fjölskyldu í 50 ár. Sumarhúsið er svokallað
A-hús sem fengið hefur gott viðhald. Niðri er stofa,
eldhúskrókur, snyrting og forstofa. Tvö svefnher-
bergi eru uppi. Útisturta við húsið. Húsið er kynt
með rafmagni. Kamína einnig til upphitunar. Kalt vatn úr sér vatnsveitu. Góður geymsluskúr við
hliðina. Mjög áhugaverð eign.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali
magnus@fasteignamidstodin.is sími 550 3000 eða 892 6000
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs:
Tvö smáforrit
tilnefnd af
Íslands hálfu
Níu verkefni frá Norðurlöndunum
fimm hafa verið tilnefnd til
Umhverfisverðlauna Norður-
landaráðs. Tvö íslensk smáforrit
eru tilnefnd af Íslands hálfu; e1,
sem tengir saman rafbílaeigend-
ur og eigendur hleðslustöðva, og
Strætó-appið, en með því er hægt
að kaupa farmiða og fylgjast með
ferðum strætó í rauntíma.
Þema umhverfisverðlaunanna
í ár er stafræn nýsköpun sem ýtir
undir sjálfbæran lífsstíl. Verðlaunin
hreppir norrænt fyrirtæki, samtök
eða einstaklingur sem stuðlar að
sjálfbærum lífsstíl og hvetur til hans
með skapandi stafrænum lausnum.
Rafbílavæðingunni hraðað
Að smáforritinu e1 standa þeir
Axel Rúnar Eyþórsson, Konráð
Örn Skúlason og Diðrik Steinsson
– og rekstur þess er í gegnum fyrir-
tækið Natus ehf. Það á rætur sínar
að rekja til námsára þeirra félaga í
meistaranámi í verkefnastjórnun við
Háskólann í Reykjavík – í námskeiði
um arðsemisverkefni.
Í lýsingu á smáforritinu á vefnum
e1.is kemur fram að það sé mark-
aðstorg nettengdra hleðslustöðva
fyrir rafbíla. „Farsímalausn e1 gefur
rafbílaeigendum tækifæri til að fá
upplýsingar um allar aðgengilegar
hleðslustöðvar sem skráðar eru í
kerfi e1. Eigendur hleðslustöðva geta
boðið aðgang að sínum hleðslustöðv-
um í gegnum kerfið og þannig haft
tekjur af fjárfestingunni. Eigendur
hleðslustöðvanna geta verið ýmsir
ólíkir aðilar, s.s. heimili, húsfé-
lög, fyrirtæki og stofnanir. Þannig
munu eigendur rafbíla hafa aukið
aðgengi að hleðslumöguleikum og
hvati fyrir eigendur hleðslustöðva
að skrá sig í kerfið sem getur stuðl-
að að hraðari og hagkvæmari upp-
byggingu nauðsynlegra innviða
fyrir rafbíla. Kerfið tryggir gagnsæi
í verðlagningu sem eykur samkeppni
á milli eigenda hleðslustöðva með
tilheyrandi ábata fyrir neytendur.
Með þessu fyrirkomulagi er líklegra
að rafbílavæðingin verði hraðari.
Aðgengilegt og þéttriðið hleðslu-
stöðvanet er ein meginforsenda hjá
stórum hópi neytenda fyrir því að
kaupa sér rafbíl,“ segir enn fremur
á vefnum.
Styður við umbreytingu
til græns hagkerfis
Strætó-appið er hægt að nota til
þess að kaupa farmiða ásamt öðrum
möguleikum sem einfalda fólki að
nota Strætó á auðveldan og fljótlegan
máta, til dæmis er hægt að sjá í raun-
tíma hvar strætisvagninn er staddur
og hvað biðtíminn er langur. Strætó-
appið gerir þannig almenningssam-
göngur einfaldari í notkun og styður
við umbreytinguna til græns hagkerf-
is. Strætó bs. á og rekur Strætó-appið.
í 22. sinn við hátíðlega athöfn í
Kaupmannahöfn þann 1. nóvember
ur 350.000 danskar krónur.
/smh
Smáforritið e1, sem tengir saman
rafbílaeigendur og eigendur hleðslu-
stöðva.
1.440 fm. stálgrindarhús (Reiðhöll Gusts í Kópavogi).
Húsið er í heild 60 x 24 m en höllin sjálf 45 x 24 m.
Vegghæð er um 4 m og mænishæð um 7,4 m, 5 m á milli stálbita.
Húsið er stálgrind. H- bitar með soðnum eyrum fyrir timbur-
leiðara, einangrað með steinull. Klæðning að utan er skrúfuð á
(trapisujárn). Mest allt efni sem var til staðar í húsinu fyrir niðurrif
fylgir með, t.d. hurðar, kaplar, loftljós (80 stk.). Teikningar fylgja
o.fl. Möguleiki er á að skipta húsinu upp minni einingar. Verð
25 milljónir króna.
Sigurður Tyrfingsson,
lögg. fasteignasali,
gsm 898-3708.
Til sölu reiðhöll
til flutnings