Bændablaðið - 11.08.2016, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
FRÓÐLEIKSBÁSINN
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Garðabrúðan geðþekka
Baldrían var eitt af fyrstu plöntu-
heitunum sem ég lærði sem barn.
Roskin kona sem var á heimili
afa míns og ömmu í innan-
verðu Ísafjarðardjúpi notaði
það um snotra og státlega jurt
sem óx í nokkrum hnausum í
deiglendisurð innan við elsta
bæjarstæðið í Reykjarfirði.
Urðin verndaði plönturnar vel
gegn ágangi og beit. Lítið munu
konurnar á bænum hafa gert af því
að nýta jurtina eða farið leynt með,
því snemma var ég yfirleitt með
nefið nærri og eyrun þanin þar sem
eitthvað var verið að sýsla með grös
og gróður. Nokkru seinna lærði ég
heitið garðabrúða notað um sömu
jurt. Og af því að það var í bókum
hef ég notað það síðan.
Risastór ættkvísl
– um víða veröld
Garðabrúðan er ein af rúmlega
þrjú hundruð tegundum sem grasa-
fræðingar eru núorðið nokkuð sáttir
um að standi undir þeirri skilgrein-
ingu í garðabrúðuættkvíslinni. En
það er langt frá því að svo hafi alltaf
verið og enn eru nafngiftir nokkuð á
reiki. Fyrir utan þessi þrjú hundruð
viðurkenndu tegundir hafa komið
fram ríflega fimm hundruð sam-
nefni eða hliðarnöfn fræðiheitanna.
Garðabrúðuættkvíslin er útbreidd
um alla Evrasíu úthafanna á milli,
Norður-Ameríku og suður eftir
Andesfjöllum Suður-Ameríku.
Íslenskar tegundir
– ein eða tvær?
Á Íslandi eru tegundirnar utan-
garðs taldar tvær. Jafnvel bara ein,
sé farið ofan í saumana á grein-
ingunni. Þessar tegundir eru garða-
brúða, Valeriana officinalis, og
hagabrúða, Valeriana sambucifol-
ia. Grasafræðingar hafa ekki verið
alveg sammála um að greina þær til
tveggja tegunda. Flestir þeirra hall-
ast nú að því að hagabrúðan sé bara
ferlitna undirtegund af garðabrúðu.
En satt að segja er varla nokkur
vegur fyrir leikmenn að þekkja þær
í sundur og flórulýsingar eru nokk-
uð misvísandi.
Munurinn á þeim er ekki mikill
og einna greinilegastur á endaflipa
laufblaðanna. Garðabrúðan hefur
mjóan endableðil en hagabrúðan
breiðan. Garðabrúðan er þétt-
vaxnari, blaðbleðlar mjórri og
blómin smærri og oftast ljósari en á
hagabrúðu, stundum næstum alveg
hvít. Hagabrúðan er öll grófari og
frekari til fjörsins en garðabrúðan.
Hún er fljótari að skríða út til allra
hliða og mynda samhangandi breið-
ur ef hún fær frið til þess. Hana er
víða að finna sjálfsána í frjósömu
og röku landi um sunnanvert landið.
Útbreiðslusvæði þessara tveggja á
heimsvísu er samt nokkuð ólíkt í
stórum dráttum. Hagabrúðan hefur
lagt undir sig Vestur- og Norður-
Evrópu. Hún er stórvaxnari og
harðgerðari. Báðar hafa þær numið
land í Norður-Ameríku eftir að
Evrópufólk fór að flytjast þangað.
En garðabrúðan er suðlægari og
austlægari. Báðar hafa þær jöfnum
höndum verið ræktaðar og notað-
ar sem lyfjajurtir frá ómunatíð og
enginn greinarmunur gerður á þeim
í þeim efnum. Það verður heldur
ekki gert eftirleiðis í þessum pistli.
Baldrían, valerían, velantsurt
eða garðabrúða
Eins og gefur að skilja hefur jurt
sem svo lengi hefur þjónað mann-
kyninu fengið ótal alþýðunöfn
í flestum tungumálum. Í þýsku
eru alþýðuheitin vel yfir þrjátíu.
Baldrían-heitið sem hún Jóna bless-
unin Dósóþeusdóttir kenndi mér í
bernsku, er notað í þýsku, dönsku
og nokkrum slavneskum málum.
Séra Björn í Sauðlauksdal setur það
nafn líka inn í Grasnytjabók sína.
Þessu heiti hafa margir velt fyrir
sér til að finna út af hverju það er
dregið.
Hugsanlega er þarna bara um
hljóðskipti eða stafarugl að ræða.
Í gotnesku og kýrilsku letri er auð-
velt að mislesa hástafinn V sem B
í latínuletri. Því gæti Valerian hafa
orðið að Baldrian við þýðingar
eða leturskipti. En svo hafa ýmsir
komið með þá getgátu að heitið
baldrían tengist nafni Baldurs,
hins hvíta áss, og haft þá í huga
germanska orðstofninn „bald“ sem
merkir hvítt. En það stenst varla ef
slavnesku málin eru höfð í huga.
Garðabrúðan er þó, að þýskri sögn,
ein af þeim jurtum sem ásynjan
Freyja hafði sérstakar mætur á
og ávísaði konum til þægðar. Það
tengir jurtina við ásatrú.
Valerían, bæði í fræðiheitinu
Valeriana og alþýðuheitinu mun
komið af latneska hugtakinu „val-
ere“ sem merkir eiginlega „að
slappa af“ eða „að herða upp hug-
ann“ og gæti verið tilvísun á hin
róandi áhrif sem plantan, eða öllu
heldur plöntudrógin hefur á fólk.
Sumar heimildir vilja tengja það við
Valerian hinn eldri sem var keisari í
Róm á árunum 253–260, eða lækn-
inn Valerianus sem var í Rómaborg
um líkt leyti.
En Linné mun samt hafa haft
valere í huga og ítölskunnar
valeriane þegar hann ákvað ætt-
kvíslarheitið.
Hvernig velantsurtar-heitið er til
komið hef ég enga vísbendingu um
og fæ engan botn í. En garðabrúðu-
nafnið er séríslenskt og líklega
fundið upp af Stefáni Stefánssyni til
að spilla ekki tungunni með erlend-
um aðskotanöfnum. Vendilrót er
norska og sænska heitið. Það er
tilvísun á að með rótinni er hægt
að reka allt illt burt svo að hið góða
geti snúið til baka. Það nafn á sér
sögu langt aftur í aldir, jafnvel aftur
fyrir kristnitöku á Norðurlöndum.
Í germanskri og norrænni alþýðu-
trú mun garðabrúðan hafa tengst
Freyju eins og ég gat um hér að
ofan.
Á Íslandi
Hvenær og hvernig garðabrúðan
barst til Íslands er ekki gott að segja.
Vegna þess að hún hefur frá fornu
fari verið fyrst og fremst „konu-
jurt“, þ.e.a.s. jurtir sem reyndust
vel gegn ýmsum kvennakvillum og
jafnvel tengdar Freyju, gætu land-
námskonur hafa tekið hana með sér
hvort sem þær komu frá Noregi eða
Bretlandseyjum.
Eftir kristnitöku og stofnun
klaustra er líklegt að garðabrúðan
hafi verið ræktuð hér í urtagörðum,
þótt litlar heimildir séu til um það.
Og vel að merkja þá höfðu þær
Freyja og María mey hlutverka-
skipti hvað varðaði plöntu- og
munahelganir við kristnitökuna.
Freyja fór af vaktinni en María tók
við hlutverki hennar.
Á mörgum bæjum sem ég var
kunnugur þegar ég var að vaxa
úr grasi vestur í Djúpi um miðbik
liðinnar aldar var garðabrúðu ein-
hvers staðar að finna. Ýmist innan-
garðs við bæjarhús ellegar á frið-
sælum stað, sem sauðfé sótti sjald-
an, nærri þeim. Sennilega hefur hún
verið þar af mannavöldum, því ekki
virðist garðabrúðan dreifa sér af
sjálfsdáðum á Vestfjörðum líkt og
hún gerir hér um syðri part lands-
ins.
Útbreiðsla og saga garðabrúðu
sem og annarra aðfluttra nytjajurta
á Íslandi frá fyrri tímum þarfnast
sannarlega ýtarlegrar skoðunar. Við
vitum enn næsta lítið um þann þátt
þjóðmenningarinnar. Því þrátt fyrir
litlar heimildir og fá vegsummerki
hljóta þær að hafa skipt máli og
verið nokkuð hampað af þeim sem
kunnu með að fara, ekki síður en
í nágrannalöndunum. En kannski
eru slíkar heimildir samofnar
kvennasögunni og kviksettar með
henni, illu heilli. Þær umsagnir sem
við höfum frá eldri tíð eru oftast,
eða jafnvel eingöngu, komnar frá
skólagengnum körlum sem þýddu
og staðfærðu danskar jurtabækur.
Það er samt betra en ekki.
Ræktun, úrvinnsla og notkun
Garðabrúða er enn nokkuð
ræktuð víða um lönd vegna
rótarinnar. Ræturnar, eða öllu
heldur rótarhnýðin, er þurrkuð
og úr þeim unnin margvísleg
efni til iðnaðar og lyfjagerðar. Af
þurrkuðum rótarhnýðunum leggur
stæka lykt sem minnir á sambland
af uppþornuðu kattahlandi og
táfýlu (fyrir þá sem slíka fnyki
þekkja!). Því var gríska heitið á
jurtinni einfaldlega „fý!“ eða „oj
bara!“ Að vísu ekki um að ræða
alveg sömu tegund en jafngilda.
Kettir og önnur kattardýr, jafnvel
rottur og mýs, laðast að og missa
stjórn á sér nálægt þurrkuðum
garðabrúðurótum. Í rótarhnýðunum
eru hópar af iríoíðum, alkaolíðum,
glýkosíðum, sýrusamböndum og
olíum sem vinna saman í „valerían-
drógum“ og hið upprunalega
valíum er unnið úr garðabrúðurót.
Apótekarar og grasalæknar
útbjuggu lyf úr rótunum. Þau þóttu
róa hugann, draga úr kvíða, depurð
og hugsanaflökti, bæta svefn
o.s.frv. Og milt te af garðabrúðurót
þótti með eindæmum góður undir-
búningur fyrir ástarleiki. Valerían-
olía er notuð í ýmis gamalþekkt og
vinsæl ilmvötn. Hómópatar unnu,
og vinna víst enn með garðabrúðu
í smáskammtalyfjum sínum. En
alltaf þurfti að hafa í huga að nota
garðabrúðuna með varúð og í hófi.
Ofneysla gat haft þveröfug áhrif á
virknina. En líklega er garðabrúðu
eða „valerian-tinktúra“ vinsælasta
og einfaldasti framleiðslumátinn
til heimabrúks og í hóflegum
mæli. Þá er fersk rótin notuð og
góður vínandi. Neysla í dropatali.
Oddur Hjaltalín gefur uppskriftina
í Grasafræði sinni frá 1830.
Úr Íslenzkri Grasafræði
Odds Hjaltalín, 1830,
stafrétt:
1. V e l a n t s u r t
(Valeriana).
a. Læknis-velantsurt (V.
officinalis ).
Blöðin öll ugguð. Uggarnir
lensulíkir, nöbbóttir; ísl.
Vélantsurt,
Rótin aungótt; staungullinn
uppreistr, sléttr röndóttr, grein-
óttr, sívalr.
Greinirnar mótstæðar.
Blöðin leggjuð með ójöfnum
nöbbum; endaugginn næstum
því eins stór og hinir aðrir, þeir
eru allir sitjandi, hinir neðstu
lensulíkir, hinir efri strikmynd-
aðir, með fjærskildari nöbbum;
blaðleggrinn ullhærðr.
Blómstrblöðin strikmynduð,
lensulík, með himnóttum rönd-
um. Hálfskýlan mörgum sinnum
3skipt. Krónurnar ljósrauðar.
Margra ára urt; blómstrar í
júlí.
Nytsemi og verkun:
Urt þessi er styrkjandi, svita
og þvagdrífandi, uppleysandi,
ver niðrfallssýki, og mótstendr
forrotnun. Hún er því góð móti
matarólyst, óstyrk magans, afl-
leysi, niðrfallssýki, hjartslætti,
skyrbjúgi og slæmum vessum.
Te af urtarinnar blöðum
drekkist svo tebollum skipti
4sinnum dagliga. Seyði af rót
urtarinnar takist, 2 matspænir í
senn, hvört dagsmark.
Dupt af rótinni takist inn
teskeið full 3svar dagliga í
spæni fullum af vatni. Af rótinni
má dropa tilbúa þannig: tak af
rótinni smáskorinni 2 lóð, bezta
brennivíns 10 lóð, lát standa við
il í 4 daga, sía síðan hið þunna
frá. Af dropum þessum takist 80
í senn 3svar dagliga.
Móti Sjóndepru er gott að
taka dupt rótarinnar i nefið, og
þvo augun optliga úr seyði rót-
arinnar.
Garðabrúða til vinstri. Hagabrúða til hægri. Munur á blaðendum.
Garðabrúða – deilitegundin hagabrúða.