Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Líf og starf
Myndlistarsýningin
„Sveitin mín“ og tónlistar-
flutningur í fjósinu í Króki
Álfheiður Ólafsdóttir frá
Kirkjulæk í Fljótshlíð hefur
opnað listsýningu á olíumál-
verkum í Króki, Garðaholti í
Garðabæ. Álfheiður er mennt-
aður myndlistarmaður frá
Myndlista- og handíðaskólan-
um. Hún hefur sýnt víða, mynd-
irnar hafa selst víða um heim
og eru einnig í opinberri eigu.
Sveitarómantíkin, húmorinn,
kærleikurinn og litagleðin er
skammt undan í málverkun-
um. Á sýningunni eru húsdýrin
sem heilla og ævintýraveröldin.
Álfheiður flutti nýverið ásamt
fjölskyldu sinni suður í Flóa en
umhverfið í Flóanum og dvölin
á vinnustofunni í Króki eru inn-
blástur verkanna á sýningunni,
að hennar sögn.
Sýningin er opin á laugardög-
um í ágúst frá 14.00–17.00 og á
sunnudögum frá kl. 13.00–17.00.
Alla laugardaga í ágúst klukk-
an 14 og 16 verða þær Jóhanna
Halldórsdóttir altsöngkona og
Helga Aðalheiður Jónsdóttir blokk-
flautuleikari með tónleika í Króki á
Garðaholti. Jóhanna og Helga eru
báðar klassískt menntaðar í tónlist
og hafa sérhæft sig í túlkun eldri
tónlistar. Þær flytja m.a. íslensk
þjóðlög ásamt tveggja radda
lögum eftir franska miðaldatón-
skáldið Guillaume de Machaut
(1300–1377). Tónlistarkonurnar
flytja verkin í fjósinu á Króki
en áheyrendur verða hins vegar
í hlöðunni og því berast tónarnir
þeim í gegnum tvær heygjafalúgur.
Spennandi hljóðupplifun í sögu-
legu og fallegu umhverfi.
Sauðfjársetrið og fjölskyldan í Tröllatungu
fá menningarverðlaun Strandabyggðar
Menningarverðlaun Stranda-
byggðar voru afhent á dögunum á
bæjarhátíðinni Hamingjudögum
á Hólmavík. Þetta var í sjöunda
skipti sem verðlaunin eru veitt
og þetta árið hlaut Sauðfjársetur
á Ströndum verðlaunin og far-
andgripinn Lóuna til varðveislu.
Sauðfjársetrið hefur áður fengið
menningarverðlaunin árið 2013 og
sérstaka viðurkenningu í tengslum
við þau árið 2012. Í umsögn kom
fram að safnið fékk menningar-
verðlaunin vegna öflugrar aðkomu
að menningarlífi í sveitarfélaginu,
sýningahaldi, ótal menningar-
tengdra viðburði og síðast en ekki
síst fyrir nýsköpunarverkefnið
Náttúrubarnaskólinn. Það verk-
efni, sem byggir á hugmyndafræði
um náttúrutúlkun og mennta-
tengda ferðaþjónustu, hefur nú
verið starfrækt frá því í fyrravor.
Í umsögn sagði einnig að
Sauðfjársetur á Ströndum hafi verið
sérstaklega öflugt síðasta árið og eftir
því tekið víða. Safnið var til dæmis í
hópi þeirra tíu framúrskarandi menn-
ingarverkefna á landsbyggðinni sem
voru tilnefnd til Eyrarrósarinnar fyrr
á árinu. Enn fremur að aðstandend-
ur Sauðfjárseturs á Ströndum byggi
á þeirri hugmyndafræði að söfn og
menningarstofnanir eigi að vera
virkir þátttakendur í því samfélagi
sem þær eru hluti af og að í tilviki
Sauðfjársetursins hafi heppnast afar
vel að byggja á þeim grunni.
Við sama tækifæri fengu Sigríður
Drífa Þórólfsdóttir og Birkir Þór
Stefánsson, bændur í Tröllatungu,
sérstaka viðurkenningu vegna menn-
ingarmála. Í umsögn segir að þau
hafi með einstakri elju og myndar-
skap varðveitt menningarminjar
gamla kirkjugarðsins í Tröllatungu.
Starf þeirra við umhirðu og fegrun
kirkjugarðsins hafi orðið til þess að
hann er staðarprýði á Ströndum og
Strandamönnum til sóma. Útimessa
hefur verið í garðinum síðustu ár á
Hamingjudögum sem hefur gefið
öllum kost á að njóta svæðisins og
eiga þar kyrrðar- og friðarstund.
Mæðgurnar Ester Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri og Dagrún Ósk Jónsdóttir
sín. Ljósm: Jón Jónsson
Árstíðirnar í íslenskum þjóðlögum og sálmum
Hljóðverk unnin úr náttúruhljóðum - Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld
Dúettar eftir Guillaume de Machaut 1300-1377
Experience old Iceland
Winter- spring - summer - autumn
Through icelandic folksongs and hymns
Surrounded by sound compositions - Hilmar Örn Hilmarsson
Duets by Guillaume de Machaut 1300-1377
€
Hrútaþuklarar gera sig
klára fyrir Íslandsmótið
í hrútadómum
Mikið hefur verið um að vera á
Sauðfjársetrinu á Ströndum í
sumar, margvíslegar uppákom-
ur og viðburðir. Fram undan
er stærsta samkoma ársins,
Íslandsmeistaramótið í hrúta-
dómum, sem verður haldið sunnu-
daginn 21. ágúst og hefst kl. 14.00
í Sævangi við Steingrímsfjörð.
Jafnan er góð þátttaka í hrúta-
dómunum, bæði í flokki þaul-
reyndra hrútadómara og líka í
flokki óvanra hrútaþuklara. Að
venju verður kjötsúpa á boðstólum
og kaffihlaðborð allan liðlangan
daginn.
Síðasta ár sigraði Guðmundur
Gunnarsson, bóndi á Kjarlaksvöllum
í Saurbæ, í öðru sæti var Vilberg
Þráinsson, Hríshóli í Reykhólahreppi
og í þriðja sæti varð Bjarki Reynisson,
Kjarlaksvöllum.
Sýningar í Sauðfjársetrinu
Á Sauðfjársetrinu eru nú uppi þrjár
sérsýningar, fyrir utan fastasýn-
ingu safnsins sem ber yfirskriftina
Sauðfé í sögu þjóðar. Í kaffistofunni
er sýningin Manstu? sem er grein-
ingarsýning á ljósmyndum Tryggva
Samúelssonar sem voru teknar á
árabilinu 1950–1970. Á listasviðinu
er sýningin Álagablettir og í sér-
sýningarherbergi verður nýopnuð
sögusýning sem ber yfirskriftina
Sumardvöl í sveit.
Nú er annað árið sem Náttúru-
barnaskóli á vegum Sauðfjársetursins
er starfræktur og hefur yfirnátt-
úrubarnið Dagrún Ósk Jónsdóttir
umsjón yfir verkefninu sem hefur
tekist mjög vel.
Safnið verður opið alla daga milli
10–18 út ágúst. Í haust er stefnt að
frekari viðburðum. Þá verða m.a.
þjóðtrúarkvöldvaka, handverksnám-
skeið o.fl. Árleg sviðaveisla verður
síðan haldin í október. viðstaddra í fyrra. Ljósmyndir / Angantýr Ernir Guðmundsson
Ferðalög:
Kona sem kann sitt Kína
Kínaklúbbur Unnar stendur fyrir
ferð til Kína 1. til 19. nóvember
næstkomandi. Í ferðinni verður
farið til borga eins og Sjanghæ,
Suzhou, Tongli, Guilin, Yangshuo,
Xian og Peking. Auk skemmtisigl-
ingar á Li-fljótinu og gengið verð-
ur á Kínamúrinn.
Ferðin er sú 37. sem Unnur
Guðjónsdóttir skipuleggur til Kína.
Unnur Guðjónsdóttir, sem staðið
hefur fyrir fjölmörgum ferðum til
Kína undanfarna áratugi, segir að
ferðin sé ekki erfið þrátt fyrir að dag-
skráin í ferðinni sé digur og bætir við
að fólk á öllum aldri hafi gagn og
gaman af þessari ferð. „Kína breytist
óðfluga, svo ef fólk vill sjá eitthvað
af gamla Kína þá er um að gera að
bíða ekki með að fara þangað.“
Heildarverð á mann fyrir ferðina
er 660 þúsund krónur og þá allt inni-
falið. „Þá á ég við flug, fulla dagskrá
samkvæmt ferðaáætlun sem þegar
liggur fyrir, gisting í tvíbýli á 4 eða
5 stjörnu hótelum, fullt fæði með
máltíðardrykkjum, skattar og gjöld,
staðarleiðsögumenn og mín farar-
stjórn,“ segir Unnur.
Flogið er frá Keflavík til Kaup-
mannahafnar og þaðan er beint flug
til Sjanghæ en flogið verður heim frá
Peking. Ferð til Kína með Unni er
ógleymanlegt ævintýri sem undirrit-
aður mælir hiklaust með enda hefur
hann farið í eina slíka sjálfur. Unnur
Guðjónsdóttir er kona sem kann sitt
Kína. /VH