Bændablaðið - 22.09.2016, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Gífuryrði á samfélagsmiðlum eftir samþykkt Alþingis á búvörusamningum:
Sagðir innihalda „ríkisstyrkt dýraníð“
− Bændur um allt land sárir og reiðir út af orðum forstjóra Haga
Mikið hefur verið rætt í fjölmiðl-
um og á samskiptamiðlum um
búvörusamningana sem sam-
þykktir voru á Alþingi í síðustu
viku. Á sama fundi var tillaga um
fullgildingu tollasamnings við ESB
einnig samþykkt, en hann getur
haft veruleg áhrif á sumar greinar
íslensks landbúnaðar.
Athygli vakti að fjöldi þingmanna
var fjarstaddur atkvæðagreiðsluna
um búvörusamningana, þrátt fyrir
yfirlýsingar um mikilvægi málsins.
Samningarnir voru samþykktir með
19 atkvæðum gegn 7. Alls greiddu
16 þingmenn ekki atkvæði við loka-
atkvæðagreiðslu og 21 þingmaður
var fjarverandi. Þeir sem ekki treystu
sér til að greiða atkvæði við frum-
varpið í heild höfðu þó greitt atkvæði
með einstökum liðum frumvarps-
ins eftir að breytingartillögur þeirra
höfðu verið felldar. Þannig var það
t.d. varðandi kaflann um dýravelferð
sem einna mestu átökin voru um.
Forstjóri Haga sagði samningana
innihalda ríkisstyrkt dýraníð
Finnur Árnason, forstjóri Haga, full-
yrti á Facebook-síðu sinni í kjölfar
samþykktar búnaðarsamninga að
þeir innihéldu „ríkisstyrkt dýraníð“
eins og hann orðaði það, en stafsetti
reyndar „nýð“ með ypsiloni. Þessi
ummæli forstjórans hafa lagst mjög
illa í bændur sem telja að hann hafi
með orðum sínum stimplað alla
bændur landsins sem dýraníðinga.
Formaður BÍ sendi forstjóranum
tóninn í harðorðri yfirlýsingu
Sindri Sigurgeirsson, formaður
Bændasamtakanna, sendi frá sér
yfirlýsingu vegna þessara ummæla
þar sem sagði m.a.:
„Forstjóri Haga ætti að sjá sóma
sinn í að biðja bændur afsökunar á
fráleitum ummælum um að búvöru-
samningar séu ríkisstyrkt dýraníð.
Honum er í sjálfsvald sett að gagn-
rýna samningana en ummæli af
þessu tagi eru út fyrir öll mörk og
bera vott um einkar fjandsamlegt
viðhorf í garð íslenskra bænda.
Ítrekað hefur forstjóri Haga haft
uppi neikvæð ummæli um íslenskan
landbúnað en með þessum tilteknu
ummælum tekur steininn úr og eru
því fyrirtæki sem hann starfar fyrir
til háborinnar skammar.
Íslenskir bændur vinna að því
hörðum höndum allan ársins hring
að tryggja íslenskum almenningi
heilnæm matvæli án sýklalyfja
eða annarra aukaefna sem algeng
eru í landbúnaði í öðrum lönd-
um. Það er eitt af forgangsmálum
Bændasamtakanna að íslenskir
bændur standist ýtrustu kröfur um
dýravelferð svo að Ísland verði í
fararbroddi í þeim efnum.“
Fjöldi umsagna um málið í
atvinnuveganefnd
Haraldur Benediktsson, bóndi á
Vestra-Reyni, alþingismaður og
fyrrverandi formaður Bændasamtaka
Íslands, segir að atvinnuveganefnd
hafi verið nokkur vandi á höndum
með afgreiðslu búvörusamninganna.
Nefndinni höfðu borist mikill fjöldi
umsagna, sem voru allt frá eindregn-
um stuðningi við þingmálið og yfir
í að láta það niður falla.
„Við tókum á móti miklum fjölda
gesta og fundirnir um málið voru
margir. Það fór reyndar minna fyrir
tillögum í öllum þessum umsögnum
og gestakomum, en þó var það alls
ekkert reglan. Nokkrir umsagnar-
aðilar lögðu málinu gott til – en þá
var vandinn að samræma það sjón-
armiðum og áherslum samninganna.
Það var heldur ekki gott hve deild-
ar meiningar voru á meðal bænda.
Sjónarmið þeirra sem mótmæltu
sérstaklega sauðfjársamningnum
voru mjög gild. Sérstaklega þar
sem í upphafi var ekki til útfærsla á
sértækum byggðastuðningi.“
Fleira þarf til að tryggja búsetu
en búvörusamning
„Þegar vinna í nefndinni hófst í ágúst
voru komnar tillögur um þann þátt.
Eftir situr að það er ekki lengur
hægt að ætlast til þess að afurða-
verð og búvörusamningur tryggi
eitt og sér búsetu. Þar þurfa aðrir
kraftar að koma til – sérstaklega á
veikari svæðum landsins. Framtíð
sauðfjárræktar er stórt byggðamál
og mikilvægt að takist að treysta
undirstöður hennar.
Í sumarhléinu hafði síðan
Samkeppniseftirlitið birt úrskurð
sinn um starfshætti MS. Það mál lit-
aði síðan talsvert okkar vinnu í ágúst.
Það er því miður ekki skilningur á
hlutverki og tilgangi ýmissa þátta í
starfsumhverfi mjólkurframleiðsl-
unnar. Það var álit meirihlutans að
ekki væri heppilegt að við vinnslu
málsins væri hægt að sjá að þingið
tæki afstöðu i þeirri deilu. Þá hafði
Ísland líka tekist á hendur skuld-
bindingar í nýjum viðskiptasamn-
ingi við ESB. Það hafði mikil áhrif
á vinnu við þingmálið.“
Ekki sjálfgefið að fá samningana
afgreidda í þinginu
− Kom einhvern tíma sú staða upp
að málið fengi ekki afgreiðslu þings-
ins?
„Meirihluti atvinnuveganefnd-
ar taldi mikilvægt að tefja ekki
frekar nauðsynlegar breytingar á
starfsumhverfi landbúnaðarins.
Samningarnir sem eru að renna sitt
skeið eru að stofni til frá 2004 og
2006. Breytingar samkvæmt nýjum
samningum þurfa aðdraganda og
tollasamningurinn kallar á allt annað
starfsumhverfi. Því var ekki hægt
að fallast á þau sjónarmið að vegna
þess hve málið er umdeilt að fresta
afgreiðslu þess og framlengja gamla
samninga. Það sjónarmið var sannar-
lega uppi. Heldur fór meirihluti
nefndarinnar þá leið að móta næstu
skref um frekari breytingar á starfs-
umhverfi landbúnaðarins.
Nefndin ræddi ítarlega þau mörgu
sjónarmið sem komu fram í umsögn-
um um málið og gerir þeim í raun
skil, í þeim áhersluatriðum sem
nefndin felur samráðsvettvangi um
landbúnað. Meginmálið er að endur-
skoða á samningana árið 2019, sam-
kvæmt ákvæðum þeirra. Það er mik-
ilvægt að undirbúa þá endurskoðun
rækilega. Þar nefnum við atriði sem
alltof lengi hafa ekki fengist einu
sinni rædd í tengslum við landbúnað
en er löngu tímabært að taka á.
Ég nefni þar atriði eins og
afkomuþróun í landbúnaði. Stöðugt
er kallað á kerfisbreytingar og hag-
ræðingu. Samt er enginn með á tak-
teinum hve miklum árangri hefur
tekist að ná á undanförnum árum.
Ég nefni starfsumhverfi afurða-
stöðva. Við berum okkur stöðugt
saman við útlönd, en engin nefnir
hve umfangsmikil regluverk eru í
öðrum löndum til að verja afkomu
bænda, afurðastöðva eða öllu held-
ur búvörumarkaðinn. Hér á landi
hefur orðið mikil breyting á rekstri
þeirra og síðan aftur breyting á því
umhverfi sem þær þurfa að starfa
í. Aukinn innflutningur, færri smá-
salar, aukið eftirlit og íþyngjandi
regluverk.
Þá er áhersla okkar á að þau atriði
sem við höfum lagt í lög og reglur
og sannarlega aukakostnað bænda og
búvöruframleiðslu, eins og aðbúnað-
arkröfur í alifuglarækt, svínarækt og
flestum greinum, verði kostnaðar-
greind og þannig dregið fram að við
höfum ekki sömu samkeppnisstöðu.
Það er ekki bara hægt að krefjast
meiri samkeppni með innflutningi
ef síðan á að hefta íslenska bændur
í að takast á við þá samkeppni.
Meirihlutinn leggur líka mikla
áherslu á neytendasjónarmið í til-
lögum sínum. Rétta upplýsingagjöf,
rétt neytenda til að þekkja uppruna
matvælanna.“
Góð samstaða um hlutverk
landbúnaðar í loftslagsmálum
− Hvert er stærsta atriðið í þessum
áherslum atvinnuveganefndar?
„Tvímælalaust áhersla sem við
leggjum á hlutverk landbúnaðar-
ins í loftslags- og umhverfismál-
um. Ísland hefur tekist á hendur
skuldbindingar um loftslagsmál.
Verkefni næstu endurskoðunar bún-
aðarsamninga er að ramma vel inn
hlutverk landbúnaðarins í því. Ekki
síður að landbúnaðurinn geti feng-
ið tækifæri til að láta til sín taka í
þeim efnum. Um þessi atriði er góð
samstaða meirihluta og minnihluta.
Þótt minnihlutinn skrifi ekki endi-
lega á nefndarálit okkar er vel hægt
að segja að í öllum aðalatriðum er
góð samstaða um málið. Það er mik-
ilvægt.“
− Er það ásættanlegt að land-
búnaðurinn þurfi að sitja uppi með
samstarfsvettvang um starfsumhverfi
sitt?
„Með nefndaráliti okkar fylgir
samantekt um hvernig starfsum-
hverfi landbúnaðarins hefur þróast.
Sú saga er ekki einstök fyrir Ísland.
Eftir þjóðarsáttina 1991 var
umfangsmikil umræða um land-
búnað og í kjölfar þess veruleg
uppstokkun á starfsumhverfinu. Í
aðdraganda mjólkursamnings 2004
var umfangsmikil greiningarvinna
og umræða. Það var ekki núna –
enda var það helsta gagnrýnin á ferl-
ið síðasta vetur. Nú var meira stuðst
við rannsóknir frá Hagfræðistofnun
og Rannsóknarmiðstöð Háskólans
á Akureyri.
Það hefði skapað miklu meiri
grundvöll að eiga t.d. góðan hóp af
þeim sem hafa margvíslega hags-
muni af landbúnaði að ræða þær
skýrslur.
Þá kom tollasamningurinn í
spilið og hann breytir mjög miklu.
Ég held að fáir átti sig ennþá hve
djúp spor hann mun skilja eftir sig.
Landbúnaðurinn er ekki stærsta
atvinnugreinin en hann er stór hluti
af sjálfsmynd þjóðarinnar. Því veld-
ur hann heitum tilfinningum.
Meirihluti atvinnuveganefnd-
ar leggur alla áherslu á að endur-
skoðun 2019 valdi umfangsmikilli
uppstokkun og breytingar sem gagn-
ast bæði bændum, neytendum og
þess iðnaðar og þjónustu sem hann
skapar.“
Fyrirfram neikvæð afstaða ASÍ
„Ég tek eftir því t.d. að ASÍ gerir
lítið úr þessari endurskoðun. Það
er einmitt helsta hættan að undir-
búningurinn verði ekki góður þegar
samtök og hópar mæta til þessa
verks með fordóma og ekki af heil-
um huga.
Við formaður atvinnuveganefnd-
ar kynntum fjölmörgum aðilum
þessar áherslur okkar og þeim
var alls staðar fagnað. Ég er mjög
bjartsýnn á góðan árangur af slíkum
samstarfsvettvangi. Samningagerðin
sjálf er hins vegar alltaf í beinum
viðræðum bænda og ríkisins.
Ég beini því líka beint til samtaka
bænda, afurðastöðva og annarra sem
eru hluti af íslenskum landbúnaði
að næstu þrjú árin ráða mjög um
framtíðina og að þau láti sig varða
vandaða umfjöllun og umræðu
um atvinnugreinina. Nú verður að
grafa sundurlyndið og einhenda
sér í slíkt samstarf,“ segir Haraldur
Benediktsson. /HKr.
Fréttir
Sindri Sigurgeirsson. Haraldur Benediktsson.