Bændablaðið - 22.09.2016, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Fréttir
Gæðastýring í sauðfjárrækt:
Bændur sem ekki standast skilyrði
gæðastýringar missa greiðslur
Umræða um dýravelferð hefur
verið talsverð í þjóðfélaginu
undanfarið. Dýravelferð er einn af
mörgum þáttum í gæðastýringu í
sauðfjárrækt sem Matvælastofnun
hefur eftirlit með.
Bændablaðið leitaði til Jóns
Baldurs Lorange, framkvæmdastjóra
Búnaðarstofu hjá Matvælastofnun,
og innti hann eftir því hvort ein-
hverjir þátttakendur í gæðastýringu
í sauðfjárrækt hafi ekki uppfyllt öll
skilyrði reglugerðar um gæðastýr-
ingu sauðfjárframleiðslu og falli þar
með út úr gæðastýringunni.
Jón Baldur segir að samkvæmt
20. gr. reglugerðar um gæðastýringu
nr. 1160/2013 skal Matvælastofnun
tilkynna framleiðanda eigi síðar en
31. ágúst ár hvert ef hann uppfyllir
ekki skilyrði um gæðastýrða sauð-
fjárframleiðslu og gefa honum kost
á andmælum.
Skyldur fjölmargar
„Skyldur framleiðanda í gæðastýr-
ingu eru fjölmargar sem þarf að upp-
fylla til að fá gæðastýringargreiðslur.
Meðal þátta sem falla undir gæða-
stýringu eru aðbúnaður og með-
ferð dýra, umhverfi, skýrsluhald
og skráning á lyfjanotkun. Þá ber
framleiðanda að færa gæðahandbók
þar sem kemur meðal annars fram
áburðarnotkun, gróffóðuröflun og
fóðrun dýra. Einnig ber framleiðanda
að uppfylla skilyrði um landnýtingu
og er meginreglan að landnýting skal
vera sjálfbær á öllu landi framleið-
anda samkvæmt umsókn og skal það
land jafnframt standast viðmið um
ástand samkvæmt ströngum kröf-
um sem koma fram í sérstökum
viðauka við reglugerð um gæðastýr-
ingu. Landbótaáætlun er gerð fyrir
beitiland sem uppfyllir ekki kröfur
samkvæmt fyrrgreindum viðauka.
Landgræðsla ríkisins áritar land-
bótaáætlun og Matvælastofnun
þarf að staðfesta ef skilyrði reglu-
gerðar um gæðastýringu eru upp-
fyllt. Jafnframt þurfa allir þátt-
takendur í gæðastýringu að sækja
undirbúningsnámskeið á vegum
Matvælastofnunar. Í dag eru um
1.710 bændur þátttakendur í gæða-
stýringunni og þeir þurfa að uppfylla
kröfur um öll þessi atriði til að fá
gæðastýringargreiðslur.“
Góð skil á skýrsluhaldi í
sauðfjárrækt
Jón Baldur segir að Búnaðarstofa
sendi öllum bændum sem eru í gæða-
stýringunni bréf í upphafi árs sem
ekki hafa gengið frá skýrsluhaldinu
fyrir árið á undan, en því ber að skila
eigi síðar en 31. desember.
„Í ár voru það í kringum eitt hund-
rað framleiðendur af þessum 1.710
sem fengu bréf frá Matvælastofnun
vegna þessa. Næstum því allir
drifu í því að ganga frá haustbók
2015 meðal annars með aðstoð
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnað-
arins, en þeir framleiðendur sem
brugðust ekki við féllu út úr gæða-
stýringunni. Þeir sauðfjárbændur,
sem koma nýir inn í gæðastýr-
ingu og hafa ekki áður tekið þátt í
skýrslu haldinu í sauðfjárrækt þurfa
fyrsta árið að skila inn vorbók.
Þetta voru um 15 nýliðar sem höfðu
ekki skilað vorbók á réttum tíma.
Matvælastofnun sendi þeim bréf í
byrjun sumars og bættu þeir allir úr
því innan þess tímafrests sem þeim
var gefinn.“
Eftirlit dýraeftirlitsmanna lagt til
grundvallar
Búnaðarstofa Matvælastofnunar,
sem hefur með framkvæmd á stuðn-
ingsgreiðslum til bænda að gera,
ber að fella niður gæðastýringar-
greiðslu ef framleiðandi stenst ekki
öll skilyrði gæðastýrðrar sauðfjár-
framleiðslu. Fyrir enda ágústmánaðar
ber Matvælastofnun að senda öllum
þátttakendum í gæðastýringu bréf ef
stofnunin telur að þeir standist ekki
lengur öll skilyrði gæðastýrðrar sauð-
fjárframleiðslu.
Þeir framleiðendur sem fengu bréf
frá stofnuninni um niðurfellingu gæða-
stýringargreiðslu fengu andmælarétt í
samræmi við stjórnsýslulög en að sögn
Jóns Baldurs liggur fyrir að í þessum
fasa muni 5 til 10 framleiðendur falla
út úr gæðastýringunni, en endanleg tala
liggur fyrir í lok mánaðarins. Stofnunin
leggur til grundvallar þessari ákvörðun
margvísleg gögn, m.a. niðurstöður eft-
irlitsskýrslna dýraeftirlitsmanna stofn-
unarinnar. Auk þess eru dregnar saman
niðurstöður annarra þátta gæðastýr-
ingarinnar svo sem skil á skýrsluhaldi
og landbótaáætlunum.
„Dýraeftirlitsmenn Matvæla-
stofnunar heimsækja á hverju ári
nokkur hundruð bændur og ganga
frá eftirlitsskýrslu í framhaldi af
þeim heimsóknum. Ef upp koma
mál vegna frávika sem varða aðbún-
að og meðferð dýra, umhverfisþátta,
færslu gæðahandbókar og fleiri þátta
sem dýraeftirlitsmenn skoða er það
fært inn í eftirlitsskýrslur og er tekið
til meðferðar innan stofnunarinnar
í kjölfarið. Matvælastofnun hefur
ýmis úrræði til að bregðast við og
m.a. eru gerðar úrbótaáætlanir fyrir
framleiðendur. Í slæmum tilfell-
um eru til úrræði um dagsektir og
vörslusviptingu gripa. Búnaðarstofa
Matvælastofnunar hefur síðan það
úrræði að fella niður gæðastýringar-
greiðslu framleiðanda með því að taka
ákvörðun um að fella viðkomandi út
úr gæðastýringu. Framleiðandinn þarf
þá að sækja aftur um til að komast
í gæðastýringuna fyrir næsta ár og
getur þá Matvælastofnun farið fram
á að hann þurfi að sækja gæðastýr-
ingarnámskeið að nýju,“ segir Jón
Baldur Lorange, framkvæmdastjóri
Búnaðarstofu Matvælastofnunar. /VH
Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri Búnaðarstofu hjá Matvælastofnun.
Mynd / HKr.
Góðar horfur á landsvísu með kornuppskeru:
Víðast hvar metuppskera á Suðurlandi
– Helst á Norðausturlandi sem tíð hefur verið óhagstæð kornbændum
Talsvert hefur birt yfir kornrækt-
inni í sumar, eftir nokkur erfið
samdráttarár. Tíðarfar hefur
víðast hvar verið gott og útlitið
varðandi uppskeru er eftir því.
Samdráttarskeiðið var afleiðing
af nokkrum þáttum. Tíðarfar hefur
verið greininni frekar óhagstætt,
ágangur álfta og gæsa verið mörgum
kornbændum afar erfiður og svo hefur
minna fengist fyrir íslenska byggið á
heimamarkaði vegna gengis- og verð-
þróunar á alþjóðlegum mörkuðum.
Bændablaðið leitaði til ráðunauta
og starfsmanna búnaðarsambanda á
helstu kornræktarsvæðum landsins til
að kanna hvort ekki hafi hýrnað yfir
kornbændum eftir gott sumar.
Þremur vikum fyrr í Árnessýslu
Sveinn Sigurmundsson, hjá Búnaðar-
sambandi Suðurlands, segir að á
vesturhluta Suðurlands hafi þresking
hafist víðast hvar í lok ágúst – eða allt
að þremur vikum fyrr en alla jafna
– og uppskeruhorfur séu almennt
mjög góðar. Hann telur ekki meira
um óværu eða illgresi samfara góðri
tíð, en svo virðist sem ágangur álfta sé
jafnvel enn harðari en í fyrra á sumum
stöðum. Hann segir ástæðurnar vera
þær að kornakrarnir sem þær hafi úr
að moða séu færri og svo er líklegt
að álftinni fjölgi hratt. Sveinn telur
eðlilegt að kornbændur fengju leyfi –
að uppfylltum skilyrðum – til að verja
lönd sín fyrir þessum ágangi.
Guðmundur Sigurðsson, hjá
Búnaðarsamtökum Vesturlands, segir
að á Vesturlandi hafi kornræktin geng-
ið mjög vel í sumar. „Víða er byrjað
að þreskja kornið og nokkrir alveg
búnir að þreskja. Uppskera er góð, til
að mynda þrjú til fjögur tonn af þurru
korni á hektara hjá einum. Fjórir aðil-
ar eru með þurrkaðstöðu; Belgsholt,
Langholt, Hurðarbak og Kolviðarnes.
Langholt kom nýtt inn síðastliðið
haust og er að endurbæta aðstöðuna.
„Varðandi gæsir þá hef ég ekki heyrt
mikið kvartað undan henni sem af er,
enda er hún fyrst að koma í akra þessa
dagana. Álftin er nokkuð staðbundin
slæm í Reykholtsdal og Hálsasveit.
Þeir sem ná að þreskja snemma sleppa
við skaða af fugli. Varðandi svepp í
korni þá eru margir sem eru farnir að
úða og sleppa að mestu en sveppurinn
er fyrst og fremst þar sem korn er mörg
ári í sama akri. Þannig að ef vel á að
takast með kornrækt verður að stunda
skiptiræktun.
Ég er ekki með tölur um stærð akra
en það mun liggja fyrir í október þegar
búið verður að taka út jarðabætur. Þó
er tilfinningin sú að eitthvað er minna
um byggrækt í ár en síðastliðin ár þótt
munurinn sé ekki afgerandi. Varðandi
að heimila veiði á álft þá hefur sú
umræða vissulega verið hér og er
mikilvægt að vinna að þeim málum
enn frekar,“ segir Guðmundur.
Mikið að magni og góð fylling
Eiríkur Loftsson, ráðunautur hjá
Ráð gjafarmiðstöð landbúnaðar-
ins, segir að á Norðvesturlandi séu
uppskeruhorfur góðar. „Almennt er
kornið mikið að magni, fylling þess
víðast góð en nokkuð misjafnt hve
mikið það er farið að þorna. Þresking
hófst í Skagafirði í síðustu viku.
Fugl kemur í kornakrana strax og
færi gefst, víðast er það ekki fyrr en
byrjað er að þreskja og hann hefur
svæði til að lenda. Hópar af fugli
hafa sums staðar legið í túnum, mest
nýræktuðum og einnig grænfóðri,
bitið, traðkað og skitið – og spillt
uppskeru bæði að magni og gæðum.
Blaðsveppur hefur verið áberandi í
stöku ökrum en heilt yfir ekki til vand-
ræða. Illgresi sækir mjög á í landi þar
sem korn er ræktað samfellt í nokkur
ár ef ekki er unnið á því.
Verkun korns er með líku móti og
verið hefur en núna þegar það er meira
þroskað og þurrara við þreskingu má
búast við að meira verði þurrkað,“
segir Eiríkur.
Guðmundur Helgi Gunnarsson,
hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar-
ins í Eyjafirði, segir að ekki sé búið
að þreskja mikið á svæðinu. „Það var
sáð frekar seint í akra í vor, aðallega á
tímabilinu 10.–20. maí, vegna klaka
og kulda framan af vori. Á síðustu
vikum hefur verið talsverð úrkoma á
svæðinu, sem einnig skýrir að hluta að
ekki er meira búið að þreskja.
Þar sem búið er að skera er upp-
skeran misjöfn og virðist kornfyllingin
sums staðar ekki nægilega góð – sem
getur tengst veðurfarinu í sumar. En í
júlímánuði var hér fremur sólarlítið og
úrkomusamt.
Nokkuð hefur orðið vart við
sveppasmit í ökrum og þá meira í þeim
eldri, en á því hefur ekki verið gerð
nein úttekt. Slíkt smit rýrir bæði gæði
og magn uppskeru.
Kornþurrkurum hefur ekki fjölgað
á svæðinu, enda erfitt að reka þá með
svo litlu magni sem þurrkað er. Margir
súrsa kornið, enda þarf það að vera vel
fyllt svo það uppfylli lágmarks skil-
yrði sem söluvara,“ segir Guðmundur.
Hann bætir því við að ekki sé vitað um
mikið tjón af völdum álfta og gæsa,
en það sé þó alltaf eitthvað um það á
einstaka ökrum.
Metuppskera hjá flestum
kornbændum á Suðurlandi
Kristján Bjarndal Jónsson kann-
aði stöðuna á Suðurlandi, austan
Árnessýslu. „Það er nánast sama hvar
við berum niður, það er metuppskera
hjá flestum bændum í öllu. Menn hafa
t.d. þorað að nefna allt að 40 prósenta
aukningu á hektara í korninu.
Að vísu var þurrt framan af og
byggið spíraði seint og með þessum
hlýindum hafa komið fram mikið af
grænum hliðarsprotum og þeir bændur
sem hafa lent í slíku hafa frekar viljað
súrsa slíkt korn. Það er dýrt að þurrka
það og lítið verður úr því.
Snemma var hægt að fara að
þreskja korn og urðu bændur því
víða á undan fuglaplágunni. Vitað er
til að byrjað var að þreskja 18. ágúst,
en það er allt að tveimur vikum fyrr
en í meðalári.
Ég á von á því að allir hafi náð sex
raða korninu, en það er viðkvæmara
fyrir fyrstu óveðrunum en tveggja
raða. Öxin verða þyngri og því við-
kvæmari í bleytu og stormi.
Þar sem tveggja raða kornið er
orðið vel þroskað – og því þungt í
þessari vætu sem nú er – hefur það
tilhneigingu til að brotna niður, þar
sem ekki er búið að þreskja það. Því er
víða að bresta á barátta á milli fugla og
bænda um það hvor hefur betur þegar
það styttir upp og hægt verður að halda
þreskingu áfram. Fuglinn er aðeins
seinna á ferðinni í góðæri eins og nú.
Sem dæmi má nefna að ég veit til þess
að einn bóndi lagði sig smá stund efir
hádegismatinn sem varð til þess að
hann tapaði orrustu við fuglinn. Þetta
er því oft mjög fljótt að gerast.
Það er samdráttur í kornræktinni.
Mér finnst það mikil synd af ýmsum
búrekstrarlegum ástæðum,“ segir
Kristján. /smh